Þriðjudagur, 9. febrúar 2010
Merkileg saga
![]() |
Vann tvo milljarða í lottói en er kominn aftur á bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 4. febrúar 2010
Skemmtilegur vefur
Þriðjudagur, 2. febrúar 2010
Seint koma sumir en koma þó
Bændur eru enn að heimta fé. Nú rétt fyrir byrjun þorra heimtust ein útigengin ær með veturgamalli gimbur og lambhrútur, en féð fannst í Austurmúla í Dunkárdal í Dalasýslu. Það var Kjartan Jónsson bóndi á Dunki sem var þar á ferð á fjórhjóli að svipast um eftir fé og fann þá lambhrútinn sem hann átti sjálfur. Kallaði hann þá til vaska smala með hunda úr Kolbeinsstaðahreppi til aðstoðar. Fundu smalarnir hrútinn og skammt frá honum útigengna á með veturgamalli gimbur en þær mæðgur eru frá Hallkelstaðahlíð. Þetta kemur fram á vef Skessuhorns.
Fréttaritari Skessuhorns hafði spurnir af því að ærin Kvika frá Hallkelsstaðahlíð, sem nú kom í leitirnar, væri svolítið forvitnileg af kind að vera og brá sér því í heimsókn þangað heim. Hitti þar í fjárhúsunum þau Sigrúnu Ólafsdóttur og Sveinbjörn Hallsson. Kvika er fædd 2002 og er því að fara á sinn áttunda vetur. Hefur hún alls gengið fjóra vetur úti. Segir Sigrún að hún hafi í tvígang verið felld út úr fjárbókhaldinu því enginn hafi reiknað með henni aftur. Kvika hefur aðeins einu sinni komið heim með ómarkað lamb úr þessum vetrarútilegum sínum.
Sunnudagur, 31. janúar 2010
Enn fleiri góðar fréttir
Hvergi við Ísland er munur á flóði og fjöru jafnmikill og við innanverðan Breiðafjörð og þar sem óteljandi eyjar þrengja mynni Hvammsfjarðar myndast hin öfluga Hvammsfjarðarröst þegar sjórinn fossar til skiptis inn og út um sundin.
Þessa orku vill Sjávarorka beisla og hefur nú fengið rannsóknarleyfi frá Orkustofnun. Að fyrirtækinu standa RARIK og aðilar í Stykkishólmi, þeir stærstu Skipavík og Stykkishólmsbær. Athuganir benda til að þarna megi vinna álíka mikla orku og gert er í Sultartangavirkjun, sem er 120 megavött.
Stjórnarformaður Sjávarorku, Steinar Friðgeirssson, segir hugmyndina þó ekki að virkja svo stórt heldur stefnt að smærri túrbínum til að byrja með. Ekki er gert ráð fyrir neinum stíflugörðum heldur er hugmyndin að hafa hverflana einfaldlega bara í sjónum með sem minnstum áhrifum á lífríkið. Næstu skref, að sögn Steinars, verði að kanna hagkvæmni verkefnisins og að leita eftir erlendum samstarfsaðilum.
Tekið af vefnum www.visir.is
Miðvikudagur, 27. janúar 2010
Mjög góðar fréttir
Það er í raun og veru afar ánægjulegt að sjá hversu mikil aukning hefur verið á hverju ári í kornrækt á Íslandi. Að þjóðin geti orðið sjálfri sér næg um korn er mikilvægt við núverandi aðstæður.
Byggið er samt ekki mikið notað til manneldis. Sennilega vegna þess að við höfum lengst af vanist öðrum korntegundum. Það væri t.d nokkuð víst að ef hér yrðu ræktaðir hafrar að meira yrði notað af þeim. Engu að síður er byggið talið meinholt.
![]() |
Hægt að fjórfalda byggræktun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 25. janúar 2010
Veðrið enn einu sinni
Hér í Búðardal hefur verið gott veður í allan dag. Rok og rignin víða í kring t.d var nær aftaka veður í Saurbænum uppúr hádeginu. Það er sláandi hversu mikill munur er á veðri á þessum 30 km. Einnig svolítið skrýtið að það skuli í sunnan átt vera hvassara í Saurbæ og á Laugum heldur en í Búðardal...væri eðlilegra að álíta að svo væri í norðanátt.
Þriðjudagur, 19. janúar 2010
Álagahamur fellur þegar menn gangast við ábyrgð sinni
"Góðærið var ekki ávöxtur ræktunarstarfs Íslendinga heldur ávextir tíndir úr annarra garði. Hrunið er afleiðing heimsku. Nú eru álögin fallin og okkar hlutverk er að horfast í augu við ástæður og afleiðingar skaðans og læra af. Við eigum ekkert og áttum ekkert. Allt er að láni frá Guði, skapara alls sem er. Í okkar ábyrgð felst að fara vel með. Sú ábyrgð varðar það sem er í samhengi okkar en hún nær þó víðar. Við eigum að fara vel með hvert annað, með stofnanir samfélagsins, náttúruna og allt lífríkið. Álagahamur fellur þegar menn gangast við ábyrgð sinni."
Tekið af vefnum www.tru.is Öll greinin hér: http://tru.is/pistlar/2010/01/ur-alogum
Fimmtudagur, 14. janúar 2010
Til hamingju með daginn
Í dag eiga þeir nafnar Sturlaugur Eyjólfsson eldri og yngri afmæli. Sturlaugur hinn eldri er í 70 ára gamall og Sturlaugur hinn yngri 17 ára.
Til hamingju með daginn báðir tveir.
Þriðjudagur, 12. janúar 2010
Eru vextir af því illa ?
Á fyrstu öldum kristninar var ekki leyfilegt að taka vexti meðal kristinna manna. Gyðingum var hinsvegar heimilt að gera þetta og því urðu þeir m.a bæði framalega í viðskiptum og óvinsælir meðal sumra kristinna þjóða. í Islam er þetta litið illu auga og því eru ekki teknir vextir í bönkum þar með beinum hætti, heldur reynt að fara aðrar leiðir. Vaxtataka var álitn af því illa og er svo enn meðal hundruð milljóna manna.
Þetta hefur að sjálfsögðu breyst og nú fara kristin samfélög fremst í flokki þeirra sem nota bankastarfssemi með vöxtum. en því er ekki að neita að svo virðist sem okkar hugsun sé komin í þann farveg að án lána sé ómögulegt að framkvæma, að fjárfesta, að halda uppi hagvexti og framvegis. Nútíma bankastarfssemi byggir á þessari innrætingu og hrunið líka.
Svo koma svona dásamlegar fréttir og maður skilur ekki hvernig Orkuveitan og Landsvirkjun þurfa endalaust að endurfjármagna og taka lán fyrir framkvæmdum. Það er greinilega ástæðulaust...ef menn leyfa sér að hugsa um hlutina út frá gömlum gildum.
![]() |
Byggja virkjun án lántöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 8. janúar 2010
Jólin eru búin
Þegar jólin eru kvödd fylgir því að gjarnan sökknuður. Það er óskemmtilegt að slökkva öll þessi litríku ljós sem fyllt hafa hús og bæi birtu. Það er líklega vegna þess sem þetta gerist oft hægt. T.d ákveða margir að slökkva ekki ljósin fyrr en helgina eftir þrettándann.
Í raun er því janúar dimmari en desember og sennilega dimmasti mánuður ársins.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar