Leita í fréttum mbl.is

En ef forsetinn hefði nú haft virðingu ?

Eg spyr mig þeirrar spurningar hvort þetta snúist ekki hreint og beint um fyrri verk forsetans. Ef blessaði forsetinn okkar, sem synjaði undirritun, hefðu nú verið vinsæll og farsæll forseti - hvað þá ? 

Forseti sem hefði um leið og hrunið reið yfir rofið útsendingu sjónvarpsstöðva og talað uppörvandi til þjóðar sinnar líkt og Vigdís gerði þegar snjóflóðið féll á Súðavík.  Forseti sem hefði dag og nótt ferðast milli vinnustaða og landshluta og hvatt fólk áfram og kynnt sér aðstæður og síðast en ekki síst forseti sem hefði notað erlend tengsl sín til þess að vinna að málstað landsins.

Þess í stað hvarf forsetinn snögglega af vettvangi strax eftir hrun, skammaði sendirráðsmenn í veislu, mismælti sig hvað eftir annað í viðtölum við erlenda blaðamenn og gat ekki þvegið af sér þá smán að hafa mært útrásarvíkinga í öllum ræðum sínum og ferðast með þeim um heiminn.  Veit ekki um einn einasta mann sem hefur fundið fyrir stuðningi í hruninu frá forsetaembætti voru.

Fólkið hefur ekki treyst herra Ólafi í lengri tíma og eðllega slegið yfir ákvörðun hans nú og það er megin skýring þess að meirihluti þjóðarinnar er andvígur ákvörðun hans. 


mbl.is Meirihluti andvígur ákvörðun forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur sögðu að ekkert slæmt myndi gerast

Í allri umræðunni um Icesave voru fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins afar duglegir að sannfæra almenning um að ekkert slæmt myndi gerast þótt nýju lögunum yrði hafnað.  Þeir sögðu að hægt yrði að ná betri samningum við Hollendinga og Breta; að samningsstaða Íslands hefði batnað.

Raunin er önnur.  Gríðarlega sterk viðbrögð víðast hvar úr heiminum, sem sýna Íslendinga sem óáreiðanlegar manneskjur.  Núverandi ríkisstjórn neyðist til að vinna næstu vikur að því að minnka skaðann eins og hægt er og þjóðin má þola óvissu og að  allar væntingar um betri tíð eru nú að hverfa í þoku.

Kemur það á óvart að sömu flokkar og settu landið í hrun, skuli nú með lýðskrumi hafa komið þjóðinni á kaldan klaka ?


mbl.is Gríðarlega sterk viðbrögð erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrar myndir frá jólum og áramótum

Birna Björt og BjarniHef sett inn nokkrar myndir frá jólum og áramótum.  Sjá slóðina: http://loi.blog.is/album/haust_2009/.  Þetta er þó besta myndin

Gleðilegt nýtt ár

Ég óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka allar heimsóknirnar á þessa bloggsíðu mín.

Soldið skrýtið þegar maður bloggar um allt eða ekki neitt að maður veit svo sem ekkert hverjir koma til  að lesa það. 

En einhverjir gera það reglulega, það sýnir teljari síðunnar greinilega.


Snillingur sem vert er að skoða

Það er hreint ótrúlegt hvað þessi ágæti Skoti kann fyrir sér.  Allt sem hann sýnir hefði maður fyrirfram talið nær óhugsandi.  Þið verðið að skoða myndbandið.  http://www.youtube.com/watch?v=Z19zFlPah-o

Þá eru það áramótin

Við Gugga erum núna bara ein heima í kotinu.  Rikki varð samferða eldri börnunum suður eftir jólin.  Við erum að ljúka verkum hér í dag og förum á Selfoss í kvöld og verðum þar yfir áramótin og fram á nýja árið.

Það er ákaflega fallegt veður í Búðardal núna.  Tært, bjart og kyrrt.  Mikið mánaskin og falleg birta í skammdeginu.  Kann ekki ennþá að taka myndir af tunglinu...en verð að læra það því það speglast afar fallega í Hvammsfirðinum á morgnana.


Mögnuð og sönn saga

Sagan af því sem raunverulega gerðist í sjóslysinu við Skrúð 16. desember fer nú sem eldur um sinu í netheimum.  Slóðin er hér.

Gleðileg jól

Texti jólaguðspjallsins, hjá Guðspjallamanninum Lúkasi, eins og hann
hljóðaði í Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar sem var gefið út 1540.
Fyrsta þýðing Nýja testamentisins á íslenska tungu og auk þess fyrsta bók
sem prentuð var á íslensku og enn er til svo að vitað sé.

En það bar til á þeim dögum að það boð gekk út frá keisaranum Ágústo, það
heimurinn allur skyldi skattskrifast. Og þessi skattur hófst fyrst upp hjá
Kýrenó sem þá var landstjórnari í Sýria. Og allir fóru að tjá sig, hver til
sinnar bortar. Þá fór og Jósef af Galílea úr borginni Naðaret upp í Júdeam,
til Davíðs borgar, sú er kallast Betlehem, af því að hann var af húsi og
kyni Davíðs, að hann tjáði sig þar meður Maríu, sinni festarkvon óléttri.
En það gjörðist þá þau voru þar að þeir dagar fullnuðust eð hú skyldi fæða.
Og hún fæddi sinn frumgetinn son og vafði hann í reifum og lagði hann niður
í jötuna því að hún fékk ekkert annað rúm í herberginu.
Og fjárhirðar voru þar í sama byggðarlagi um grandana við fjárhúsin, sem
varðveittu og vöktu yfir hjörð sinni. Og sjá, að engill Drottins stóð hjá
þeim og Guðs birti ljómaði krinum þá. Og þeir urðu af milum ótta hræddir,
og engillinn sagði til þeirra. Eigi skuluð þér hræðast, sjíð, því ég boða
yður mikinn fögnuð, þann er sker öllum lýð, því í dag er yður lausnarinn
fæddur, sá að er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið það til merkis:
Þér munu finna barnið í reifum vafið og lagt vera í jötuna. Og jafnskjótt
þá var þar hjá englinum mikill fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og
sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og mönnum góðvilji.

(Hér fylgir einnig útskýring á orðinu góðvilji)

(Góðvilji er að menn hafi þar af ást og unaðssemd bæði fyrir Guði og svo
innbyrðis og það með þakklæti að meðtaka og alla hluti með góðfýsi þar fyrir að forláta og líða)

Keli brautskráður sem stúdent

Keli Stúdent

Þann 18. desember var Keli brautskráður sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands af náttúrufræðibraut.  Keli var aðeins fimm annir að ljúka stúdentsprófinu og var frá því greint að það væri nýtt met í skólanum. 

Athöfnin í Fjölbrautaskólanum var mjög vönduð, hátíðleg og skemmtileg.  Á eftir athöfnina kom fjölskylda Kela saman á Víðivöllunum og gerði sér dagamun.

 


Keli að verða stúdent

Jæja þá er komið að því.  Maður nýkominn í pásu við að halda fermingar þá er það næstu áfangar.  Keli útskrifast sem stúdent á morgun; föstudaginn 18. desember. Þetta tók strákinn bara tvö og hálft ár að ljúka þessu.

Ég og Rikki ætlum að rjúka héðan kl. 10.00, úr miðjum litlujólum, og aka suður á Selfoss í athöfnina.  Gugga fer í dag að laga til og undirbúa veisluna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband