Föstudagur, 11. desember 2009
Dalamaður vinnur fyrstu verðlaun í ljósmyndasamkeppni
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. desember 2009
Tefla á netinu
Nú er ég að prufa að tefla á netinu. Þar eru aldeilis margir möguleikar í boði. Ég valdi mér að tefla gamaldags bréfskák, þar sem ég má vera allt að þrjá daga með hvern leik. Auðvitað mun skákin taka langan tíma, en á móti kemur að maður getur ef maður vill teflt margar í einu.
Ég valdi mér að tefla á www.gameknot.com en í sjálfusér er þetta hægt út um allt. Ég finn að ég er alveg orðinn kolryðgaður í skákinni.
Mánudagur, 7. desember 2009
Tahiti
Ég geri mér það stundum til skemmtunar og dundurs að ferðast um heiminn á Google Earth. Lengst af hef ég verið að ferðast um eyjar undan ströndum Afríku en er nú kominn til Asíu. Það er hægt að upplifa ótrúlega mikið í gegnum þennan glugga sem tölvan veitir. Ég horfi t.d á myndbönd með þjóðdönsum, hátíðum og ferðalögum fólks, les upplýsingar um land og þjóð og skoða ljósmyndir af umhverfi og náttúru.
Það kemur alltaf eitthvað á óvart. Ég var t.d á Tahiti alla helgina og þar komst ég m.a að því að það er franskt landsvæði með franska þjóðtungu og franskt velferðarsamfélag...og líka að þar finnast svartar baðstrendur...sem er mjög sjaldgæft...eins og á Íslandi.
Sjá myndir á þessari slóð: VááennflottáTahiti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 3. desember 2009
Svona skal skreyta hús
Þriðjudagur, 1. desember 2009
Vetur genginn í garð
Það má segja að nú um helgina hafi veturinn gegnið í garð. Það er 7 stiga frost og snjóar í fjöllum og skafrenningur víða. Það er því bísna kuldalegt hér um að litast eins og er.
Hinsvegar var hann hægur í gærkveldi og norðurljósin gerðu þorpið afar jólalegt.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28. nóvember 2009
Öll saman fyrir vestan
Hinn helmingur fjölskyldunnar sem býr á Selfossi ætlar að leggja land undir fót í dag og skreppa vestur í Dali og gista eina nótt. Það verður í fyrsta skipti sem við verðum öll saman hér í Búðardal og einnig í fyrsta skipti sem Káta kemur í heimsókn. Veðrið er þokkalegt, snjóar lítlega og fýkur af þökum...en allt er greiðfært ennþá allavega.
Þriðjudagur, 24. nóvember 2009
Haustmyndir
Jæja þá er ég búinn að setja nokkrar nýjar haustmyndir inn á Flickr svæðið mitt. Veit ekki hvort ég hleð þeim lika hér inn. Nettengingin er svo ótrúlega hæg hér í Búðardal...það tók mig daga að koma þessum fáu myndum inn.
Lítið á myndirnar: http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/sets/72157622861970832/show/
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. nóvember 2009
Besti flokkurinn
Fimmtudagur, 19. nóvember 2009
Asus fartölvur bestar
Þetta vissi ég. Ég hef lengi haft það á tilfinningunni að Asus fartölvurnar væru með lægri bilanatíðni en flestar aðrar. Enda hef ég keypt 4 slíkar. Sjá hér góða umfjöllun um bestu og verstu fartölvurnar...og merkilegt nokk...það eru til verri tölvur en Acer.
Mánudagur, 16. nóvember 2009
Ritskoðun Morgunblaðsins
Enn reynir Mogginn með Davíð Oddsson í fararbroddi að fela gagnrýni. Nýlega var birt í DV bréf frá einum áskrifanda Moggans, sem var að segja blaði sínu upp. Vitaskuld vildi Mogginn ekki birta bréfið enda ekki farið fögrum orðum um ritstjórann.
Hér má lesa bréfið: http://www.dv.is/frettir/2009/11/16/brefid-sem-mogginn-birtir-ekki/
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar