Leita í fréttum mbl.is

Hagvöxtur...ömulegur mælikvarði ?

"Hagvaxtarhyggjan er stækasti rétttrúnaður samtímans. Hún er nánast eini mælikvarðinn sem er lagður á verk ríkisstjórna. Það sem er einkennilegast við hana er að hún íklæðist gervi skynseminnar, lætur eins og hún sé hin eina og sanna skynsemi. Því er svo erfitt fyrir stjórnmálamenn að víkja af götu hennar. Þrátt fyrir að í raun sé þetta skynsemi sem er gengin af göflunum.

Hagvaxtarhyggjan í síðustu birtingarmynd sinni – þeirri örvæntingarfyllstu liggur manni við að segja – gengur út á að fólk sé í búðum frá morgni til kvölds. Við höfum þetta hroðalega ljóta orð, neytendur. Það er notað yfir fólk – líkt og það sé skepnur sem eru reknar í réttir.

Okkur er hrósað fyrir að vera svo dugleg að neyta; það eru jú neytendurnir sem halda uppi hagkerfinu – björguðu heiminum meira að segja frá síðustu kreppu með því að steypa sér í skuldir. Þjóðverjar og sumar aðrar Evrópuþjóðir fá skammir frá hagfræðingum fyrir að slá slöku við í neyslunni.

Hagvaxtarhyggjan felur í sér að því sem er gamalt er kastað á haugana. Í staðinn höfum við fengið aðgang að ofboðslegu magni af ódýrum varningi sem hleðst alls staðar upp og enginn hefur raunverulega þörf fyrir. Við höfum einnota föt, tæki sem endast varla árið, bíla sem er skipt um ótt og títt. Alls staðar í heiminum eru sömu verslunarmiðstöðvarnar með sömu vörumerkjunum – allir eru að kaupa það sama, gera það sama, horfa á það sama.

Hnattvæðingin er ítrasta birtingarmynd hagvaxtarhyggjunnar. Það skal kappkostað að ná verði framleiðslunar niður og því er henni úthýst til Asíullanda í Kína. Til að þetta borgi sig þarf að mergsjúga verkafólk og að vissu leyti framleiðendur."

Tekið af Silfri Egils á slóðinni : http://silfuregils.eyjan.is/   


Lélegt úthald á hundunum mínum

Fór með hundana mína í þriggja tíma fjallgöngu á Ingólfsfjall í gærmorgun.  Bæði Erpur og Káta voru yfirsig spennt.  Á uppleið hálf sprungu hundarnir báðir og dröttuðst eftir það rétt á hæla mér upp fjallið og um það þegar upp var komið.  Reyndist ég bumbumaðurinn hafa meira úthald en hundarnir þegar til kom.  Káta er reyndar vambmikil og þung á sér en Erpur léttur og ungur...svo það kom allavega á óvart hvað hann er í lélegu formi.

Glæsilegt veður hér á Selfossi í síðustu daga  og dag. 18 - 19 stiga hiti og nánast logn með blessaðir sólinni.

 


Er á sama máli - kjósendur grínast ekki í skoðanakönnunum ...þeir gefa skilaboð

Flokkarnir ættu að gæta sín á að vanmeta ekki kjósendur. Flest sem skiptir máli um Besta flokkinn og frambjóðendur hans liggur fyrir. Þetta eru allt opinberar persónur sem hafa fengið mikla umfjöllun fyrr og nú. Vitandi vits velja 44% Reykvíkinga yfirlýstara brandarakarla frekar en atvinnupólitíkusa úr öllum flokkum. Það eru skilaboðin sem kjörnir fulltrúar og frambjóðendur þurfa að leggja mesta vinnu í að meðtaka og vinna úr fram að kosningum.
mbl.is Stolt af því að vera í baráttusæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Selfoss yfir Hvítasunnu

Þá erum við Dalamennirnir mætt á Selfoss og ætlum að eyða þar Hvítasunnunni.  Hér er veður gott og gróður og vorangan í lofti.  Skreppum á morgun í útskriftarveislu hjá Kristínu systurdóttur minni.  Hún er orðin stúdent.  Annars verður nóg að gera í garðinum og fl.

Starfi okkar er ærinn

Menntun er ferli þar sem við lærum að verða arkitektar eigin reynslu
og þannig lærum við að skapa okkur sjálf (Elliott Eisner, 2002).


Kartöflurnar komnar niður

Okkur tókst að setja niður kartöflur í gær þrátt fyrir talsverðan kulda.  Byrjuðum á því að setja niður í garðholu á Brunná og svo í aðra aðeins stærri garð hér í Stekkjarhvamminum í Búðardal.  Það eru nú orðin líklega þrjú eða fjögur ár síðan ég setti síðast niður kartöflur, en þetta hefur næstum því verið fastur liður hjá mér frá unglingsárum; að rækta kartöflur.

Kartöflur eru annars alltaf sífellt minna og minna borðaðar á mínum heimili.  Dökkt pasta og hrísgrjón hafa tekið mikið við sem meðlæti með mat.


Silfur á Norðurlandamótinu í Júdó

Sturlaugur Eyjólfsson hinn yngri stóð sig afar vel á Norðurlandamótinu í Júdó sem fram fór síðastliðinn sunnudag.   Stulli krækti þar í annað sætið eftir harða baráttu.   Allir á verðlaunapallinum voru með jafnmarga vinninga þannig að stig og innbyrðisviðureignir giltu.   Þeir sem lentu í 1. og 3. sæti eru báðir tveimur árum eldri.  Verðlaunapallur Þetta er fyrst alþjóðlega mótið sem Stulli tekur þátt í. 

Hér á myndinni má sjá Stulla með silfrið sitt.  Það var Hans Rúnar Snorrason sem tók myndna, því ég hafði aldrei þessu vant ekki myndavél með mér. 


Ferð um Strandir

Frá ferðinniFöstudaginn  7. maí  héldu starfsmenn skólaútibúsins í Tjarnarlundi í vorferð saman.  Var farið á Strandir.  Fyrst voru minjar í Hveravík skoðaðar, þá drukkið kaffi á Drangsnesi og farið þar í sund og sólbað.  Þá lá leið í Bjarnarfjörð og svo endað í Galdrasafninu á Hólmavík.   Veðrið lék við ferðalangana sjö alla leiðina.  Afar vel heppnuð ferð, sem skipulögð var af þeim stöllum Höllu og Jónu Möggu. 

Tottenham meðal þeirra bestu

Það er nú ekki hægt annað en að setja í loftið gleðiblogg.   Ég þorði varla að fylgjast með þessum leik.  En loksins loksins.

Svo er hugsanlega möguleiki á þriðja sætinu ennþá....


mbl.is Tottenham í Meistaradeildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lognið í Búðardal

Ég flyt þá stórfrétt að hér í Búðardal er nú búið að vera logn lengur en í sólarhring.   Svo mikið logn er fágætt og því  dýrmætt í augum heimamanna.

Hér eru því allir að innbyrða lognið með þeim skilningsvitum sem virka hjá hverjum og einum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 206437

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband