Leita í fréttum mbl.is

Letilif á Tenerife á enda

Komum heim á sunnudaginn.  Allir ordnir brunir, allur gjaldeyrir ad verda búinn, allir bunir ad hreyfa sig of litid og borda of mikid.... svo tad er kominn tími til ad koma sér heim aftur.

En Tenerife er flottur stadur til ad dvelja á.


Bara gott

Hér frá Tenerife er allt gott ad frétta.  Allir hafa thad gott, vedrid er gott, maturinn er gódur, íbúdirnar mjog fínar og fólkid hér elskulegt.  Allt semsagt í himnalagi og miklu betra en vid bjuggumst vid.

Hef verid latur ad taka myndir en tad stendur til bóta.  Thad er ekki internetsamband í íbúdum heldur verdur madur ad fara nidur í lobbý.

Kvedja fra Tenirife


Sumarfríið framundan á Tenerife !

Nú á sunnudagsmorgun heldur stórfjölskyldan til Tenerife saman.  Þetta er 20 manna hópur sem eru allir afkomendur ömmu Sillu frá Ártúnum.  Hún átti bara eitt barn; mömmu sem á fjörgur.  Það eru komin  fjögur barna börn og 10 barna barna börn hjá ömmu Sillu.  Þetta eru því þrjár kynslóðir sem fara saman ásamt mökum.

Við verðum í tvær vikur á stóru hóteli og er tilhlökkunin orðin mikil.  Vonandi verður enginn veikur en það hefur nær alltaf hent okkur þegar við förum á sólarströnd.

Hugsanlega blogga ég frá Tenerife og set jafnóðum inn myndir á Flicer síðuna mín...fer allt eftir hversu góðu og ódýru netsambandi ég verð í.


Hvar eru fiskiflugurnar ?

Eitt það eftirminnilegasta úr æsku manns er suðið í fiskiflugunum undir húsvegg á sólskinsdegi.  Suð og sól undir húsvegg...þannig leit björt minningin út.  Nú sé ég varla eina einustu fiskiflugu og virðist mér sem þær séu á undanhaldi.  Í þeirra stað eru komnir geitungar og hunangsflugur.   Hvað varð blessaðri fiskiflugunni að tjóni  veit ég ekki en gaman væri að vita það.

Svo ekki misskiljist þá er ég afar sáttur við hunangsflugurnar; duglegar, fallegar og skemmtilegar á að horfa.


Úrelt kjaftasamkunda ?

"Enn og aftur er þingið sér til skammar.  Enn og aftur þarf þjóðin að horfa upp á málþóf, þrætur og hártoganir, upplifa tregðu og taktleysi.  Hvernig fullorðið fólk nennir þessu er mér hulin rágáta en líkast er þetta kjaftasamkunduform gengið sér til húðar.   Þingheimur er klossfastur og þokar litlu og allt of hægt.  Undrun sjálfstæðismanna varðandi ásakanir um mútuþægni er að vonum og pínlegt að hlusta á umvandanir þeirra eftir allt sem á undan er gengið.   Þrái sama flokks gegn lýðræðisumbótum er umhugsunarefni, ekki síður en andstaða hans gegn þjóðareign auðlinda.  Hvaðan flokknum koma þessar hugsýnir veit ég ekki en óbreyttar munu þær viðhalda fylgistapi flokksins.   Tuð stjórnarflokkanna um ráðherrafjöld er annar álitshnekkir og kraftleysi í ákomu stjórnlagaþings annar.  Að ekki sé talað um auðlindamálin.  Hafi þessir flokkar meirihluta, hví ekki að klára málin þó það kosti málþóf?   Nýta sér lýðræðið loksins þegar sveifin er rétthallandi?   Kannski sú kenning sé rétt að sami botn ríki undir þessu öllu saman og raunverulegur vilji til breytinga ekki til staðar.   Þá er ekkert annað í stöðunni en að keyra grínið úr ráðhúsinu inn á þing."

Tek undir þessi orð Lýðs Árnasonar á  www.lydurarnason.blog.is


Í kaffi með tölvunni

Það er svolítið sláandi að lesa fréttir um það að fólk kjósi að taka kaffitímann sinn frekar með tölvunni sinni heldur með öðrum starfsfélögum, þetta virðast athuganir sýna að sé þróunin.  Ástæðan fyrir þessu hlýtur að vera ein og ákveðin...það er skemmtilegra að vera með tölvunni heldur en starfsfélögum.

Auðvitað má segja að hægt sé að vera á MSN eða Facebook og þannig í sambandi við margt fólk, en samt slær það mig að persónulega nálægðin skuli ekki hafa meira aðráttarafl.  Þetta er í raun svolítið merkilegt.

Svo er það auðvitað mögulegt að starfsfólkið sé allt við tölvur í kaffinu sínu á spjalli þar við hvert annað, sem væri auðvitað afar sérstakt ... en hvað getur svo sem ekki gerst ?


mbl.is Kaffihléið mikilvægt í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegt myndband frá Morrocó

Rakst á þetta myndband sem gerir grín af því hvernig konur eru fótum troðnar, nánast í bókstaflegri merkingu, í hjónaböndum sínum.   Þetta er eiginlega bæði gr ín og alvara.  Tónlistin er þjóðleg. http://www.youtube.com/watch?v=oEjdepWUHiw 

Þetta kemur manni bara í gott skap

Nýja myndbandið, sem íslenskir ferðaþjónustuaðilar hafa gefið út og á að heilla útlendingana til Íslands, er hressilegt.  Það er einhverskonar gleðiþráður í því öllu.  Svo er það bara líka mjög fallegt enda landið og landinn aðal efniviðurinn.  Myndbandið má sjá á slóðinni: http://vimeo.com/12236680

Bláu fjöllin

Fjöllin sem umlykja Hvammsfjörðinn eru blá í kvöld.  Misblá og standa eins og í röðum út með firðinum.  Það samt frekar köld ásýnd og betra að vera inni og draga ermarnar niður í miðja lófa.  Og til þessu eru líka húsin að horfa út úr þeim á fallega firði og fjöll.

Hvammsfjörður

Hann er blár

Hann er saltur

Hann er grunnur

Hann er kaldur

Hann er stórkostlegur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband