Mánudagur, 3. maí 2010
Vorið kemur með hundasúrunum
Það eru komnar hundasúrur, hundasúrur, hundasúrur. Það eru komnar hundasúrur í garðinum bak við hús. Þær eru grænar, þær eru súrar. Þær eru grænar, þær eru súrar. Þær eru grænar, þær eru súrar í garðinum bak við hús. Ólína Gunnlaugsdóttir |
Föstudagur, 30. apríl 2010
Þulur sjónvarpsins eru þagnaðar
Frá árinu 1966 hafa þulur sjónavarpsins verið auðfúsugestir á heimilum landsmanna. Þulurnar hafa með tímanum orðið eitt af séreinkennum RÚV. Aðrar sjónvarpstöðvar á heimsvísu sá ekki ástæðu til þess að vera með slíkar "aukamanneskjur" í vinnu.
Það er synd að þessi sérstaða skyldi vera eytt, synd að hún fengi ekki að lifa áfram með þjóðinni. Í kvöld þögnuðu þulurnar.
Ég sakan þeirra.
Miðvikudagur, 28. apríl 2010
Býflugum fækkar enn
Ég hef undanfarin ár fylgst með fréttafluttningi af því hvernig býflugur virðast vera að deyja út á ákveðnum landsvæðum...án skýringa. Landsvæðum þar sem landbúnaður og mikil tækniþekking fara saman. Það sem er svo fréttnæmt í þessu er að þessi skordýr vinna bráðnauðsynlega vinnu. Allt að 30 % af öllu sem við borðum er háð því að þessar vinnukonur standi sína plikt.
Í ofanálag er fjöldinn allur af blómum og plöntum háður býflugum og útbreiðsla þeirra er einnig í höndum býflugunnar.
Já hin sívinnandi býfluga er vingjarnleg og nauðsynleg. Hvað höfum við eiginlega gert henni ?
![]() |
Hafa áhyggjur af fækkun býflugna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 26. apríl 2010
Skólastjóraheimsókn
Á föstudaginn var kom hópur skólastjóra í heimsókn í Auðarskóla. Þetta voru skólastjórar sem margir hverjir höfðu lokið starfsferli en einnig var í hópnum einhverjir sem enn voru að. Þessi hópur er um margt merkilegur; hann er að stofni til frá 1966 þegar skólastjórar á Vesturlandi fóru að hittast. Það eru því orðin nokkur árin sem hópurinn hefur haldið félagsskap sínum. Eitt af því sem hópurinn gerir er að fara í kynnisferð í skóla að vori á Vesturlandi ...og nú var röðin komin að Dölum.
Þetta var afar ánægjuleg heimsókn og mér finnst gottað sjá að fólkið hefur elst vel með starfi sínu því það fer ekki hjá því að þetta er krefjandi starf.
Að skilnaði gaf hópurinn mér stutta samantekt af fyrstu árum Laugaskóla með þá ósk í brjósti að saga skólastarfs yrði skráð í Dölum.
Og það var sannarlega þörf ábending.
Laugardagur, 24. apríl 2010
Af námskeiði einu góðu
Mér gafst kostur á því að taka þátt í námskeiði í ljósmyndun hér í Búðardal. Námskeiðið var haldið í heima hjá Steinu Matt áhugaljósmyndara og kennara. Um kennsluna sá Toni; fær áhugamaður og heimamaður. Þetta var nú með allra notalegasta námskeiðum sem ég hef farið á. Við vorum bara átta þannig að Toni gat leiðbeint hverjum og einum heilmikið. Bílskúrinn þeirra Steinu og Kalla breyttist um í stúdío með fullt af myndavélum, þrífótum, ljósum og fleira.
Ég er afar sáttur við myndavélina mína. Hún hentar mér mjög vel...passlega sjálvirk og passlega mikið hægt að stilla....og ég alveg laus við linsuburðinn.
Miðvikudagur, 21. apríl 2010
Frjálshyggjan er dauð - Endurreisn með ESB-umsókn
Íslendingar þurfa nú að móta stefnu til langs tíma. Gamla hagkerfið með sitt einhæfa atvinnulíf, helmingaskipti og raðgengisfellingar er ekki eftirsóknarverður valkostur. Frjálshyggjutilraunin sem hrundi með bankakerfinu á ekki afturkvæmt. Hún átti aldrei erindi við okkur. Við þurfum endurreisn en ekki afturhvarf.
Við þurfum framsýni og víðsýni sem byggð er á skynsemi. Við þurfum að sýna þeim sem við þjónum virðingu og stíga hvert skref af skynsemi með langtímahagsmuni þjóðarinnar í huga. Við þurfum að sýna þjóðinni hvert við stefnum, sagði hún og taldi ekki vafa hvert ætti að stefna; endurreisnin væri fólgin í því að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Ég tel að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu sé óaðskiljanlegur hluti af endurreisninni. Í henni felast skýr skilaboð til umheimsins og hún er veigamikill þáttur í stefnumótun okkar til lengri framtíðar. Það er mikill misskilningur að of miklum fjármunum og tíma sé varið í undirbúning að samningaferlinu.
Staða okkar mun eflast þegar Ísland verður viðureknnt umsóknarríki og í ferlinu sjálfu munu skapast margskonar möguleikar og tækifæri til aðlögunar og uppbyggingar. (...)
Ég er sannfærð um að Íslendingar munu fylgjast vel með umsóknarferlinu og munu geta metið það með yfirveguðum hætti hvort tekst að ná fram samningum sem samræmast markmiðum okkar og hagsmunum. Takist okkur að ná fram þeim efnahagsmarkmiðum sem ferlið gerir ráð fyrir þá verðum við fyrst í stakk búin til þess að taka ákvörðun hvort við tökum skrefið til fulls inn í Evrópusambandið eða höldum okkar eigin leið. Reynsla annarra þjóða sýna að smáríki innan ESB telja sig hafa styrkst við aðild að sambandinu og hafa sterka rödd innan þess. Á það hljótum við að hlusta.
Aðild að Evrópusambandinu er ekki eina leiðin en ég tel að hún sé skynsamleg nema að svo fari að ekki náist fram hagstæðir samningar. Einangrun er ekki kostur og við þurfum á nánu samstarfi við Evrópuþjóðir að halda sem getur styrkt okkar bakland í efnahagslegu- og stjórnmálalegu tilliti,
Úr afar góðri ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins.
Mánudagur, 19. apríl 2010
Rafmengun
Sunnudagur, 18. apríl 2010
Í góðu lofti
Það er nú ekki hægt annað en hugsa til íbúanna undir Eyjafjöllum og nágrenni, sem búa við svartnætti dag og nótt og mikið öskufall. Maður sér hreinlega ekki fyrir sér hvernig hægt er að búa á jörðunum vikum saman við þessar aðstæður. Alltaf í ryki og rökkri.
Hér í Dölum er drullukallt reyndar en maður er bara ferlega feginn að þetta er hreint loft, að maður getur opnað glugga og fylgst með sólinni á himinum. Það er greinilega ekki svo sjálfsögð forréttindi.
Miðvikudagur, 14. apríl 2010
Ha ...núna
Er þetta ekki pínulítið hættulegt...hljómar þannig. Klukkutími í flóð og eftir að koma tækjum á staðinn, rjúfa og koma sér í burtu.
![]() |
Ætla að rjúfa veginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 11. apríl 2010
Gengur nýfrjálshyggjan aftur ?
Nýfrjálshyggjan er vonandi í dauðateygjum og gefur upp andan fljótlega. VG er ekki í uppgjöri heldur jarðaför.
...en það verður lengi von á afturgöngum.
![]() |
VG í uppgjöri við frjálshyggju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar