Leita í fréttum mbl.is

Að pakka faglega í ferðatöskuna

Nú þegar utanlandsferð stendur fyrir dyrum hjá stórfjölskyldunni er ekki slæmt að rekast á leiðbeiningar um hvernig gott er að pakka í tösku.  Ég skoðaði þetta myndband og varð steinhissa.  Maður kann greinilega ekkert að pakka ofan í töskur.

Lítið endilega á þetta: http://www.youtube.com/watch?v=ms991s18Mco

Vefurinn sem þessi ágæta kona heldur úti er reyndar stútfullur af allskyns ráðum og tékklistum. Sjá www.packitup.com 


Síðbúnar vetrarmyndir

Hef sett nokkrar síðbúnar vetramyndir inn á Flickr síðuna mína.  Gegnum um daginn niður með Ljá og svo í framhaldinu í fjörunni.  Aldrei þessu vant var ég með myndavélina en því miður þá varð hún rafmagnslaus þegar leið á gönguferðina.

Annars er hver dagurinn fallegri hér núna við Hvammsfjörðinn.   Kvöldbirtan er alveg mögnuð hér við fjörðinn.

Myndir á Flickr: http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/


Páskabingó

DSCN1495Rikki og vinir hans; systkinin Matti og Sunna, ákváðu fyrir nokkrum vikum að stofna til Páskabingós fyrir fjölskyldur sínar.  Bingóið skyldi haldið miðvikudaginn 31. mars. Í tvo daga stóð undirbúningurinn yfir.  Krakkarnir byrjuðu á því að kaupa verðlaun; þ.e. páskaegg,   nokkur stykki og ekki af smærri endanum).  Til þess þurfti allnokkurt fé, sem  þau höfðu safnað sér með margvíslegum hætti.  Því næst var hafist handa við að skreyta stofuna heima hjá Rikka, þar sem bingóið skyldi haldið. Það tók margar margar klukkstundir, því þessu fylgdi heilmikið föndur og sköpunargleði.  Það voru m.a. blásnir upp hanskar sem notaðir voru sem hænuhausar, perlað páskasraut og fl. og fl.

Þegar dagurinn rann upp var hafist handa við veitingarnar, en börnin bökuðu pitsur.  Foreldrarnir (Gugga, Lói, Steina og Kalli) þurftu ekkert að gera annað en að setjast í sóffann og njóta kvöldsins.  Eftir góðan málsverð hófst bingóið og var notast við "alvöru" bingóvél, sem krakkarnir höfðu útvegað sér.  Spilaðar voru fjórar umferðir.

Áformin sem krakkarnir voru í upphafi með voru stór. Þau lögðu mikið á sig í langan tíma; söfnuðu fé, skreyttu fyrir kvöldið, elduðu mat og héldu bingó.  Afraksturinn var yndislegt kvöld sem fjölskyldurnar tvær áttu saman.  Þökk sé þeim Matta, Rikka og Sunnu.


Predikarinn

Predikarinn í Biblíunni geymir góða speki.  Meðal annars þessa:

Betri er hnefafylli af ró en báðar hendur af striti og eftirsókn eftir vindi.

Gefðu ekki heldur gaum öllum þeim orðum sem töluð eru, til þess að þú heyrir ekki þræl þinn bölva þér.

Og ég lofaði gleðina því ekkert betra er fyrir manninn undir sólinni en að eta drekka og vera glaður.


Nýkominn úr ófrjósemisaðgerð

DSCN1484Erpur þurfti vegna aðstæðna sinna og hegðunar að gangast undir ófrjósemisaðgerð í gær.   Aðgerðin var framkvæmd í næsta húsi af nágrönnum okkar, sem eru þaulvanir dýralæknar.  Eftir aðgerðina þarf Erpur að bera skerm á höfðinu svo hann betrumbæti ekki saumaskap læknana.  Þetta höfuðfat þarf hann að bera í 10 daga.

Erpur rekur þennan hvíta skerm stöðugt í allt sem á vegi hans verður og tekst næstum á loft í rokinu í Búðardal þegar hann snýr á móti vindinum.  Hann er bæði ósáttur og ringlaður yfir meðferðinni.

Líðan hans er annars bara eftir aðstæðum.  Hann er allavega hressari í dag en í gær.


Góð tíðindi

Það má hrósa fréttaveitunni www.tidindi.is  fyrir sinn fréttafluttning.  Þessi vefur varð til í kjölfar hrunsins og hefur aðeins eitt markmið...að flytja góðar og jákvæðar fréttir.  Það ættu allir að gera þessa síðu að upphafssíðu á sínum vafrara.

Það bætir geðheilsuna.


Blindir hægri menn

Breska dagblaðið Telegraph greinir frá skoðannakönnun sem gerð var í Bandaríkjunum á dögunum og hafa niðurstöður hennar vakið mikla athygli. 24 prósent þeirra sem kjósa repúblikanaflokkinn eru á því að Obama sé andkristur og 38 prósent flokksmanna telja að forsetinn sé að gera „svipaða hluti og Hitler" gerði á sínum tíma í Þriðja ríkinu.

Þá halda 67 prósent aðspurðra að Obama sé sósíalisti, 57 prósent að hann sé í raun og veru Múslimi á laun og 42 prósent segja að forsetinn sé hneigist til kynþáttahyggju. Þá eru 61 prósent aðspurðra vissir um að Obama vilji banna byssur alfarið.

Þá sögðust 22 prósent aðspurðra repúblikana vera vissir um að Obama vilji í raun að „hryðjuverkamennirnir fari með sigur af hólmi", eins og það er orðað.

Tekið af fréttavefnum www.visir.is þann 25.02.2010.


Skötuselslögin í þjóðaratkvæðagreiðslu !

Nú er upplagt að sýna hvað í okkur Íslendingum býr.  Fylgjum eftir mikilvægum skilaboðum sem við sendum umheiminum með síðustu þjóðaratkvæðisgreiðslu. 

Skorum á forseta vorn að hafna skötuselslögum.  Hér er nauðsyn að þjóðin fái síðasta orðið.


mbl.is Vilja að skötuselslög verði afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram eldgos

Ég varð heldur betur kátur þegar ég uppgvötvaði á aðfaranótt sunnudags að hafið væri eldgos í Eyjafjallajökli.  Ég var harðákveðinn í því að fara á sunnudeginum og sjá það með berum augum.  En því miður var gosið ekki í jöklinum sjálfum heldur lengst inn á fjöllum og á sunnudeginum sást ekki neitt vegna veðurskilyrða.

Ég hef eiginlega beðið í mörg ár eftir því að fá að sjá eldgos.  Ég bíð því spenntur eftir því hvort vel virði næstu helgi og vona að gosið verði þá enn á fullu og skyggni gott.

Áfram eldgos ..gjós gjós gjós.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 206438

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband