Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Þriðjudagur, 29. maí 2007
Áfram ÍBK
Þegar ég var lítill og var að alast upp í sveitinni vestur í Dölum var leikinn fótbolti öllum stundum þegar færi gafst. Börn í sumardvöl og við heimabörnin gátum dundað við þetta í öllum veðrum. Það var náttúrulega ekki hægt að halda með Ungmennafélaginu í fótboltanum því það tók ekki þátt í neinni keppni í fótbolta nema hérðasmóti. Ekki veit ég afhverju ÍBK (Íþróttabandalag Keflavíkur) varð fyrir valinu, en frá því að ég var polli hélt ég með ÍBK. Frændi minn sem var frá Akranesi hann var ÍA og þannig spiluðum við á móti hvorum öðrum; ég var ÍBK og hann var ÍA.
Ég hef haldið með ÍBK síðan, en aldrei farið á leik. Á Siglufirði hélt maður náttúrulega með KS og nú með Umf. Selfoss...eins langt og það nær.
Ég er reyndar ekki viss um að ÍBK sé til lengur..en Keflavík með stóru K-i keppir alltaf í úrvalsdeild.
Áfram Keflavík.
Laugardagur, 26. maí 2007
Til hvers er pallurinn ?
Föstudagur, 25. maí 2007
Hvítasunna
Fimmtudagur, 17. maí 2007
Mikil spenna hjá júdobræðrum
Það var mikil spenna hjá þeim Kela og Stulla í gær en þá héldu þeir af landi brott á alþjóðegt júdomót í Lundi í Svíþjóð. Þeir keppa í dag og verða svo í æfingabúðum fram á sunnudag. Dagskráin er þétt þessa daga og m.a æfa þeir meira eða minna í 6 tíma á dag í þrjá daga.
Mótið heitir Bodu Nord 2007 og er árlegur viðburður í júdóheiminum.
Sunnudagur, 13. maí 2007
Tölvugrafík
Í gærkveldi horfði maður fyrst á Júróvisionkeppninga og fylgdist með stigagjöfinni þar. Grafísk framsetning var með því mótinu að nánast útilokað var að sjá á skjánum stöðuna á stigatöflunni.
Á kosningavöku Stöðvar 2 var eiginlega það sama uppi á teningnum; afar erfitt að sjá prósentutölur, þótt vel sæust súlurnar. Á RÚV var þetta best. Einnig mjög gott á mbl.is.
Fyrir nokkrum dögum sýndi RÚV frá fyrstu kosningavöku sinni. Þar voru tölurnar handskrifaðar á pappaspjöld sem var smellt á stærri töflu, sem myndavélin tók mynd af. Þótt gamaldags væri sýndist mér þó upplýsingarnar skila sér ágætlega. Þetta leiðir hugann að því hvort tilraunir í grafískri framsetningu séu ekki í sumum tilvikum að missa algjörlega marks og betra sé að hafa þetta sem allra allra einfaldast.
Fimmtudagur, 10. maí 2007
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ég fer að halda að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eigi orðið raunhæfa möguleika á því að verða fyrsti kvennforsætisráðherra landsins. Hver reiknaði með því fyrir tveimur mánuðum ?
Ég hef sagt það áður og segi það enn að aðeins Ingbjörg Sólrún og Geir Harde eru forsætisráðherraleg í mínum augum....en hingað til hafði ég veðjað á Geir....nú er þetta fyrst að verða spennandi.
Miðvikudagur, 9. maí 2007
Markaðurinn
Íslendingar virðast vera ansi klárir kaupsýslumenn. Það er varla hægt að opna blað án þess að rekast á fréttir af fjárfestingum, yfirtökutilboðum og hagnaði. Varla ein einasta frétt um tap, gjaldþrot eða misheppnaðar fjárfestingar. Allt virðist meira eða minna ganga fullkomlega upp hjá öllum Íslendingum sem standa í þessu í miklum mæli.
Þá fjölgar stöðugt þeim sviðum sem Íslendingar fara í "útrás" á. Engin starfssemi virðist vera þannig að ekki megi "græða" og "fjárfesta" í henni erlendis. Það er helst að bændur og sjómenn haldi að sér höndum.
Þessi þróun er auðvitað ævintýri líkust og hreint ekki slæmt að lifa hana.
Mánudagur, 7. maí 2007
Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokksins
Kosningabaráttan er alltaf að verða meira og meira spennandi. Nú vantar t.d Sjálfstæðisflokkinn aðeins örfá prósentustig til viðbótar til að ná hreinum meirihluta. Það væru sannarlega mikil tíðindi og myndi allavega ekki kalla á stjórnarkreppu. Flottir á uppleið
Framsóknarflokkurinn er við það að þurkast út á höfuðborgarsvæðinu og verða landsbyggðarflokkur. Talsvert fréttnæmt það og þar á bæ segja flokksmenn að þeir fari alls ekki í stjórn með örfáa þingmenn. Taparar
Frjálslyndiflokkurinn er inni og úti til skiptis í öllum könnunum og kýs að hafa allar auglýsingar með sem mest af texta og helst ekkert af myndum. Afar áhugaverð kosningarherferð á 21. öldinni. Taparar
Íslandshreyfingin er með langflottustu heimasíðuna ....og Ómar. Allavega ekki mikið meir. Taparar
Vistri græn hafa náð miklu meira fylgi til sín hlutfallslega en nokkur annar flokkur. Fullt af fólki sem aldrei bjóst við að fara á þing er farið að velta fyrir sér að segja upp núverandi vinnu. Flottir á uppleið
Blessuð Samfylgingin er á uppleið er tapar samt miklu frá síðustu kosningum. Flokkurinn er samt með eitt besta forsætisráðherraefnið. Taparar
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1. maí 2007
Samfylkingin í hátíðarskapi
Samfylkingin í Suðurkjördæmi býður til fjölskylduskemmtunar á alþjóðlegum baráttudegi launafólks við Inghól - kosningamiðstöð okkar á Selfossi - kl. 15:00 1. maí
- Jógvan
- Birgitta Haukdal
- Ingibjörg Sólrún Gisladóttir
- Magni og Á móti Sól
- Hljómsveitin Undirheimar
Margrét Frímannsdóttir er kynnir skemmtunarinnar.
Hoppukastalar og hringekjur frá kl. 14:00
Andlitsmálum
Frambjóðendur grilla fyrir alla.
Mánudagur, 30. apríl 2007
Bónus
Þegar ég bjó á Siglufirði var næsta Bónusverslun á Akureyri. það tók fulla tvo tíma hvora leið að aka þangað um vetur en fór niður í einn og hálfan tíma að sumri. Því var það nánast því heilög skylda að koma við Bónus ef maður átti leið um Akureyri. Stundum tókum við Gugga sitthvora körfuna og troðfylltum þær. Síðan var pokum komið fyrir út um allan bíl. Við ræddum það gjarnan hversu bagalegt það væri að Siglfirðingar gætu ekki verslað í Bónus dagsdaglega, því ómæld hlunnindi væru fólgin í því.
Þegar við fluttum á Selfoss gátum við tekið gleði okkar á ný því nú var hægt að fara í Bónus daglega eða oftar ef okkur langaði mikið til þess. En eftir að vera búin að versla í Bónus í tæp fimm ár er komin ægileg Bónusþreyta í okkur og nennum við varla að versla þarna lengur. Verslunin er alltaf hálf full og sami innkaupahringurinn orðinn þreytandi. En verðið er svo miklu lægra en í öðrum matvöruverslunum á Selfossi að við höldum þetta enn út.
Nú viljum við Gugga fá nýja Bónusverslun á Selfoss, sem yrði margfallt stærri og skemmtilegri en núverandi verslun. Svona breytast nú viðmiðin.....
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar