Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Rauðrunni - rooibos

RooibosFyrir nokkrum vikum (eiginlega mánuðum) keypti ég mér rooiboste eða "rauðrunnate" eins og það heitir á íslensku.  Ég síðan drukkið þetta te reglulega og klárað hvern pakkann á fætur öðrum.  Prufað það í ýmsum bragðbættum útfærslum og líkað vel við þær allar.

Rauðrunninn á uppruna sinn að rekja til Suður-Afríku. Frumbyggjarnir notuðu rauðrunnann til að gera sér ávaxtamikið og sætt te, en seinna tóku Evrópubúar það upp eftir þeim. Greinar runnans voru þurrkaðar og síðan saxaðar í kurl. Teið var fyrst flutt út til fjarlægra landa á 18. öld, og útflutningurinn hefur aukist jafnt og þétt síðan. Þessi útflutningsaukning
varð til þess að menn fóru að rækta runnann skipulega og undir eftirliti. Hágæða rauðrunnate er hægt að þekkja á rúbínrauðum lit þess og hinu mjúka, sæta og ilmríka bragði sem gefur því þetta sérstaka bragð.  Teið er m.a gott við þunglyndi, svefnleysi, þynnku, öldrunareinkennum og magakrampa.

Nú áhrifin láta ekki á sér standa.  Þetta er algjört kraftaverkate, ef te skyldi reyndar kalla.  Nær væri að tala um jurtaseyði.  Fæst í öllum heilsubúðum og stærri kjörbúðum t.d Nóatúni.


Karlar í kotinu

Hin árlega kvennaferð fjölskyldunnar er þessa helgi.  Þá fara allar konur yfir fermingu í ferðalag og skilja karlana eftir í kotinu.  Alltaf í september.  Hreint og beint lögmál.

Við karlarnir fjórir ætlum að dúlla ýmislegt á meðan.   T.d er haustmót JSÍ í júdó og þangað stormum við á sunnudaginn.


Jói lögga á nýjum bíl !

Það er mjög gleðilegt að Jói sé nú loksins laus við gamla bílinn, sem alltaf var bilaður.

Til hamingju Dalamenn !

http://www.dalir.is/Default.asp?sid_id=7353&tId=2&fre_id=61786&meira=1


Þú Kristur

Þú, Kristur, ástvin alls sem lifir. Sb. 51

Þú, Kristur, ástvin alls, sem lifir,
ert enn á meðal vor.
Þú ræður mestum mætti yfir
og máir dauðans spor.
Þú sendir kraft af hæstum hæðum,
svo himinvissan kveikir líf í æðum,
og dregur heilagt fortjald frá.
:,: Oss fegurð himins birtist þá. :,:

Þín elska nær til allra manna,
þótt efinn haldi þeim,
og lætur huldar leiðir kanna
að ljóssins dýrðarheim.
Vér skulum þínir vottar vera
og vitnisburð um stórmerki þín bera,
því þú ert eilíf ást og náð
:,: og öllum sálum hjálparráð. :,:


Valdimar V. Snævarr.
W. A. Mozart



Káta nær árangri

Hún Káta er nú búin að vera í fimm mánaða strangri megrun.  Eftir að hún týndist uppi á Ingólfsfjalli var fjölskyldunni ljóst að holdafar hennar hafði ekki verið að hjálpa henni.  Svo eftir lestur og fréttir af alltof feitum gæludýrum var ekki annað hægt en að setja Kátu í strangt aðhald.

Það verður að segjast að þrátt fyrir að stöðugt væri minni og minni  matarskammtar settir í dallinn hennar  virtist mittismál Kátu ekki breKátaytast neitt.  Reynt að var að auka hreyfingu hennar um leið og bar það helst þann árangur að þol hennar jókst....en ekki breyttist mittismálið.

Í ágúst var farið með Kátu til dýralæknis sem ákvað að farsælast væri að breyta mataræðin hennar og fóðra hana á fitu- og orkusnauðu hundamat.  Eitthvað sem dýralæknirinn seldi náttúrulega sjálfur.  Örvæntingarfull fjölskyldan kinkaði strax kolli yfir þessari hugmynd og nýtt fóður var keypt.

Svo gerðist það um daginn að  vitni varð að því að Káta var að troða sig út af hundafóðri með hausin á kafi í fóðurpokanum.   Runnu nú á menn tvær grímur.  Þetta var auðvitað ástæða þess að Káta léttist ekkert mánuðum saman og vissulega fannst okkur alltaf grunnsamlega oft "búið " úr fóðurpokanum.

Nú er búið að ganga þannig frá fóðurpokum að Káta kemst ekki í þá...og viti menn....Káta hefur náð árangri og er að lettast.


Úff

Nú bíður maður frétta af því hvort þetta sé einhver sem maður þekkir.  Úff

Annars held ég að það hljóti að átt sé við bæinn Klukkufell en ekki Klukkuberg, sem ég veit ekki að sé til á þessum slóðum.


mbl.is Karlmaður mikið slasaður eftir bílslys í Reykhólasveit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálmur 23

Sálmur 23 er afar fallegur og hefur þá sérstöðu að fólk notar hann jafnt þegar það þarf á huggun að halda og þegar það þakkar Guði fyrir allt milli himins og jarðar.

Við sálminn hafa verið samin mismunandi lög og er  hann fluttur á ýmsan hátt við ólík tækifæri.  Læt hér til gaman fylgja fluttning lítillar stúlku á ensku, sem ég rakst nýlega á.  http://www.godtube.com/view_video.php?viewkey=9e7c4b40cf5a13cea6ca

 


Áfram Selfoss

Þar kom að því að þetta fjölmenna sveitarfélag; Árborg næði að koma fótboltaliði sínu upp í 1. deild.  Selfossliðið hefur þurft að lúta í gras undanfarin ár og sjá eftir fótboltafélögum úr mun fámennari bæjarfélögum fara upp í 1. deildina. 

En nú kom að því og ekki er verra fyrir gamlan Siglfirðing að sjá að KS fylgir þeim líka.  ÉG reikna fastlega með því að handboltaliðinu á Selfossi takist í vetur að komast upp í úrvalsdeildina.

Íþróttaakademíunar í Fjölbrautaskóla Suðurlands eru núna orðnar þrjár; körfuboltaakademía, handboltaakademía og fótboltaakademía.  Í þessum þremur akademíum fer fram úrvalsþjálfun.

Til hamingju Selfossbúar ...boltinn er  rétt að byrja að rúlla.


mbl.is Tekið á móti Selfossliðinu á Ölfusárbrú í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bakslag

Þar kom að því að bakslag kæmi í brjósklosið hennar Guggu.  Gugga fór í bakinu í gær og endaði uppá sjúkrahúsi í nótt, enda gat hún þá ekki orðið hreyft sig mikið.  Það eru rétt rúmlega tvö ár síðan hún fékk síðast svona alvarlega í bakið.  Margt bendir þó til að þetta sé ekki jafnalverlegt og síðast.

Áhyggjur

Ég veit að ég á ekki að hafa áhyggjur. Áhyggjur koma í veg fyrir að ég sjái það bjarta og fagra í veröldinni og stytta jafnvel lífið.  Mér tekst ofast að hrista af mér ýmiskonar áhyggjur ef mér finnst þær vera orðnar of yfirþyrmandi.  Meira að segja orðinn nokkuð leikinn í því. En ég verð að viðurkenna að stundum þegar ég er með öllu áhyggjulaus að þá leiðist mér.  Svo stundum þá dunda ég mér við að hafa áhyggjur.

En það nýjasta er að ég hef orðið áhyggjur af nýjum áhyggjum.  Ég er farinn að velta því fyrir mér hvað gerist ef pólarnir bráðna og sjórinn hækkar...hemm hvað stendur Selfoss eiginlega hátt yfir sjó ?   Og hvað gerist í alþjóðlegri fjármálakreppu....ha ...hjálpi mér.

Já það er nefnilega eins gott að ef maður hefur áhyggjur að séu að minnsta kosti skemmtilegar áhyggjur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband