Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Mánudagur, 16. mars 2009
Íslandsmeistaramótið í Júdo
Íslandsmeistaramótið í júdo fór fram á laugardaginn var. Bræðurnir Keli og Stuli voru báðir skráðir til leiks og höfðu undirbúið sig vel. Á föstudegi fyrir mót varð Stulli hinsvegar veikur og svo drulluslappur á laugardegi að ekki varð úr keppni hjá honum. Keli keppti hinsvegar og stóð sig ágætlega, þótt ekki næði hann á pall í þetta skiptið.
Alls voru rúmlega 200 keppendur á mótinu og er ljóst að júdoiðkenndum fer nú fjölgandi um allt land. Keppendur frá Júdodeild Umf. Selfoss voru 24 og náðu tveir þeirra að hampa Íslandsmeistartitli.
Þriðjudagur, 10. mars 2009
Júdoannir
Nú erum við í Júdodeildinni að undirbúa aðalfund. Reikningarnir að verða klárir og verð ég að segja að reksturinn hefur bara gengið vel.
Nú um helgina er Íslandsmeistarmótið yngri en 20 ára og sendum við Selfyssingar vaskan hóp; líklega um 30 keppendur.
Þá erum við núna að taka í hús og selja nýjar einkennispeysur...svo það eru talsverðar júdoannir þessa daganna.
Sunnudagur, 8. mars 2009
Hvassviðri
Fimmtudagur, 5. mars 2009
Fleiri vinir
Þetta eru skemmtilegar fréttir. Skyndilega eru komnir fram fleiri vinir í raun en Norðmenn og Færeyingar. Eiginlega kemur þetta manni á óvart hvað Manitoba gengur langt, því í Kanada hefur hingað til verið ströng löggjöf og ósveigjanleg varðandi ativnnuleyfi.
En þetta eru góðar fréttir og síður en svo of mikið af góðum vinaþjóðum um þessar mundir.
![]() |
Tímabundin atvinnuleyfi í Manitoba |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 4. mars 2009
Haframjölið hefur hrunið
Eftir hrunið í byrjun október kláraðist mest allt haframjöl úr búðarhillum og var svo í hálfan mánuð. Síðan hefur verið til nóg haframjöl. Hinsvegar finnst mér það skrýtið að aðeins fást litlar pakkningar, nær ómögulegt er að fá stærri pakka. Ég hélt að þetta væri í upphafi einhverskonar kreppu/gjaldeyrisvandamál hjá Bónus/Högum...en þetta virðist vera viðvarandi. Enn fást bara litlir pakkar.
Stórar haframjölspakkningar hrundu greinilega líka í hruninu.
Sunnudagur, 1. mars 2009
HSK
Var á HSK þingi í gær á Hvolsvelli. Langt síðan ég hef setið héraðsþing. Líklega ekki síðan ég var vestur í Dölum 1993. Þingið stóð yfir frá kl. 10.00 - 18.00.
Héraðssambandið Skarphéðinn er stórt og öflugt samband. Það vakti athygli mína hversu margir iðkendur eru í golfi og hestaíþróttum. Þeir eru t.d fleiri en þeir sem iðka fótbolta á svæðinu.
Júdo er nú iðkað á tveimur stöðum; á Selfossi og á Laugarvatni. Júdoæfingar hjá UMF Laugdæla er nýung og hófst síðastliðið haust.
Þetta var ágætur dagur.
Fimmtudagur, 26. febrúar 2009
Sigurður K. vill sömu leikreglur áfram
Sigurður Kári vill greinilega að áfram verði unnið á fjármálamörkuðum eftir þeim gömlu leikreglum sem er að setja heiminn meira eða minna á annan endann. Ekki nýjar takmarkandi reglur. Ekki veita upplýsingar til almennings. Ekki má undir neinum kringumstæðum neitt verða til þess að spákaupmenn tapi peningum.
VÁ...og ætlar hann að vera áfram í pólitík ?
![]() |
Gæti kollvarpað fjármálalífinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 26. febrúar 2009
1. mars - bjart framundan
Þegar 1. mars rennur upp er orðið bjart kl.8.00 á morgnanna þegar maður fer til vinnu. Semsagt frá þessum degi er bjart allan daginn og fram á kvöld. Febrúar er sá mánuður sem leiðir mann úr myrkrinu yfir í ljósið. Mars er alfallegasti vetrarmánuðurinn; þá getur allt verið á kafi í snjó á meðan hiti og birta hellist yfir mann.
Mér hefur einhvernveginn þótt sem skammdegið sé alltaf styttra og styttra eftir því sem ég eldist.
Þriðjudagur, 24. febrúar 2009
Einu húsi færra
Nú eru komnar stórvirkar vinnuvélar í götuna til að fjarlægja annað húsið við hliðina á okkar. Það hefur ekki verið búið í húsinu síðan 28. maí síðastliðinn; eftir jarðskjálftann. Húsið fór það illa að íbúarnir þurftu að hverfa á braut. Þeir hafa keypt sér nýtt og nú fellur þetta tæplega 50 ára gamla hús í vikunni.
En þótt það sé eftirsjá í húsinu og tómleg óbyggð lóð verði við hliðina á okkar, þá er nú meiri eftirsjá í þessum góðu nágrönnum.
Mánudagur, 23. febrúar 2009
Góð helgi
Við fórum þrjú vestur í Dali um helgina; ég Gugga og tíkin Káta. Við áttum góða og notalega helgi í litla bláa húsinu á Brunná. Káta var þó ekki hin kátasta með dvölina...held að henni hafi þótt hálf asnalegt að hanga þarna. Hún var óróleg og síkvartandi yfir ástandinu.
Við reyndum að heimsækja nokkra; bæði í Dölum og Reykhólasveitinni, en það vildi ekki betur til en að það var hvergi neinn heima. Á leiðinni heim komum við hjá Kidda og Ranní í Borgarnesi. Kiddi var ekki heima en Ranní tók á móti okkur með glænýjum rjómabollum og kaffi.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar