Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Laugardagur, 21. nóvember 2009
Besti flokkurinn
Fimmtudagur, 19. nóvember 2009
Asus fartölvur bestar
Þetta vissi ég. Ég hef lengi haft það á tilfinningunni að Asus fartölvurnar væru með lægri bilanatíðni en flestar aðrar. Enda hef ég keypt 4 slíkar. Sjá hér góða umfjöllun um bestu og verstu fartölvurnar...og merkilegt nokk...það eru til verri tölvur en Acer.
Mánudagur, 16. nóvember 2009
Ritskoðun Morgunblaðsins
Enn reynir Mogginn með Davíð Oddsson í fararbroddi að fela gagnrýni. Nýlega var birt í DV bréf frá einum áskrifanda Moggans, sem var að segja blaði sínu upp. Vitaskuld vildi Mogginn ekki birta bréfið enda ekki farið fögrum orðum um ritstjórann.
Hér má lesa bréfið: http://www.dv.is/frettir/2009/11/16/brefid-sem-mogginn-birtir-ekki/
Sunnudagur, 15. nóvember 2009
Biskupinn stendur sig vel
Ég held að biskup hafi vaxið í Gunnarsmálinu vegna þess að hann leysti það mál og leysti það með hægð og af rósemd. Hann leysti það ekki með fjölmiðlastríði. Hann var sem klettur. Honum var ekki haggað. Hann kvað upp úrskurð og málið er dautt. Karl biskup er þannig að hann verður seint umdeildur. Það fer í taugarnar á frjálslyndustu guðfræðingunum hvað hann er íhaldssamur og það fer í taugarnar á íhaldssömustu guðfræðingunum hvað hann er frjálslyndur.
Tilvitnun í Davíð Þór Jónsson á slóðinni: http://www.dv.is/frettir/2009/11/15/david-thor-biskup-sterkari-eftir-mal-gunnnars/
Nokkuð til í þessu :)
Föstudagur, 13. nóvember 2009
Dauði heimilislífsins
![]() |
Ungbarn dó meðan læknirinn var í tölvuleik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009
Fyrir löngu
Íslendingar framleiðir rafmagn í massavís á mjög umhverfisvænan hátt og flytja svo inn olíu á bílana sína. Meira en það ... síðustu árin höfum við flutt inn stóra eyðslumikla jeppa og pallbíla í meiri mæli en almennt þekkist. Búið að leggja helmingnum af þeim á bílasölur núna.
Við eigum að vera fyrir löngu búin að taka rafbíla og rafstrætisvagna í notkun.
![]() |
Selja rafbíla hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009
Athyglisverð frétt
Rakst á þessa athyglisverðu frétt. Hættulegra dýr en það sýnist :)
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/11/12/skogarmitill_landlaegur_her_a_landi/
Föstudagur, 6. nóvember 2009
Þúsundir forðast Davíð Oddsson - Mogginn tapar.
Þriðjudagur, 3. nóvember 2009
Farsælir Dalamenn
Lesið endilega þessa skemmtilegu frétt. Virkilega gaman að lesa um eitthvað sem vel gengur, í stað þess að hlusta og lesa eingöngu "hrunfréttir".
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item310092/
Áfram Dalamenn !
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. nóvember 2009
Smá frí
Nú er ég kominn suður og í smá frí. Ákvað að nota hluta vetrarfrísins í að vinna aðeins í ritgerðinni. Það var kominn tími til. Lítur úr fyrir að þetta verði einskonar eilífðarverkefni.
Í gær var annars á mjög skemmtilegu skólamálaþingi Sambands ísl. Sveitarfélaga. Það er sjaldgæft að maður hlusti spertur allan daginn á slíkum samkomum.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar