Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Fimmtudagur, 25. mars 2010
Blindir hægri menn
Breska dagblaðið Telegraph greinir frá skoðannakönnun sem gerð var í Bandaríkjunum á dögunum og hafa niðurstöður hennar vakið mikla athygli. 24 prósent þeirra sem kjósa repúblikanaflokkinn eru á því að Obama sé andkristur og 38 prósent flokksmanna telja að forsetinn sé að gera svipaða hluti og Hitler" gerði á sínum tíma í Þriðja ríkinu.
Þá halda 67 prósent aðspurðra að Obama sé sósíalisti, 57 prósent að hann sé í raun og veru Múslimi á laun og 42 prósent segja að forsetinn sé hneigist til kynþáttahyggju. Þá eru 61 prósent aðspurðra vissir um að Obama vilji banna byssur alfarið.
Þá sögðust 22 prósent aðspurðra repúblikana vera vissir um að Obama vilji í raun að hryðjuverkamennirnir fari með sigur af hólmi", eins og það er orðað.
Tekið af fréttavefnum www.visir.is þann 25.02.2010.
Þriðjudagur, 23. mars 2010
Skötuselslögin í þjóðaratkvæðagreiðslu !
Nú er upplagt að sýna hvað í okkur Íslendingum býr. Fylgjum eftir mikilvægum skilaboðum sem við sendum umheiminum með síðustu þjóðaratkvæðisgreiðslu.
Skorum á forseta vorn að hafna skötuselslögum. Hér er nauðsyn að þjóðin fái síðasta orðið.
![]() |
Vilja að skötuselslög verði afnumin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 22. mars 2010
Áfram eldgos
Ég varð heldur betur kátur þegar ég uppgvötvaði á aðfaranótt sunnudags að hafið væri eldgos í Eyjafjallajökli. Ég var harðákveðinn í því að fara á sunnudeginum og sjá það með berum augum. En því miður var gosið ekki í jöklinum sjálfum heldur lengst inn á fjöllum og á sunnudeginum sást ekki neitt vegna veðurskilyrða.
Ég hef eiginlega beðið í mörg ár eftir því að fá að sjá eldgos. Ég bíð því spenntur eftir því hvort vel virði næstu helgi og vona að gosið verði þá enn á fullu og skyggni gott.
Áfram eldgos ..gjós gjós gjós.
Fimmtudagur, 18. mars 2010
Þá skal haldið suður
Núna um helgina verður haldið suður á Selfoss. Langt síðan við vorum þar síðast. Það hefur enn fækkað á Víðivöllunum; nú er Keli farinn norður að vinna í Héðinsfjarðargöngunum og verður þar sennilega út Maí. Birna og Stulli halda nú saman heimili.
Á sunnudag er svo stórfjölskyldan að hittast hjá mömmu. Sólveig systir að koma frá Danmörku svo við verðum þarna öll systkinin.
Mánudagur, 15. mars 2010
Sennilega alveg rétt
Í vinnu minni í skólum tek ég eftir þessari sömu þróun. Mjög margir fullorðnir handskrifa heldur aldrei nokkurn hlut nema nafnið sitt, utan á umslög og í jólakort - jafnvel árum saman. Í skólum eru tölvur sífellt meira notaðar við glósur og svo framvegis. Í dag er því næstum því óþarfi að kunna að skrifa...hvað þá vel.
Það að kunna að skrifa með penna og blýanti mun hverfa hægt og hljótt sem almenn kunnátta einfaldlega vegna þess að það verður óþarft.
![]() |
Rithöndin á undanhaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 11. mars 2010
Rikki bloggar
Mánudagur, 8. mars 2010
MPA síðan mín
Jæja loksins búinn að koma upp hjálparsíðu vegna rannsóknaverkefnis míns í MPA ritgerðinni minni. Slóðin hér.
Síðunni er ætlað að veita þeim aðilum, sem lenda í tölvupóstviðtölum, helstu upplýsingar um viðfangsefnið. Síðan má auðvitað bæta við niðurstöðum eftir því sem verkinu miðar fram.
Það er reyndar svolítið skrýtið hvað þarna inná officelive.com er að finna öflugt vefsíðuumhverfi sem kostar ekki neitt. Slóðin er reyndar hræðileg...en þetta dugar í mörgum tilfellum bara vel.
Föstudagur, 5. mars 2010
Samreknir skólar
Það hefur færst í vöxt að minnstu sveitarfélögin skoði kosti þess að reka tónlistar-, leik- og grunnskóla saman undir einni stjórn. Slíkt gefur mikla möguleika á samlögun milli skólastiga og verður í raun auðveldara en þegar skólastofnanir eru í samstarfi.
Mér segir sá hugur um að samreknum skólum muni fjölga á næstu árum.
![]() |
5 ára börnum hleypt í grunnskólann? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 1. mars 2010
Þetta þurfa allir að lesa
Af hverju skiptum við okkur ekki bara öll að þessu og útrýmum svona ókurteisi ?
Skyldulesning: http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/1023407/
Vinir og fjölskylda | Breytt 27.2.2010 kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. febrúar 2010
Og svo kom vetur
Eftir einmuna blíðu með logni og lítilli úrkomu kom í Dalina Vetur konungur. Byrjaði þegar hann sneri sér í norðanátt um síðustu helgi. Snjóaði þá af og til nokkuð en sérstaklega í Saurbæ og á Skarðströnd og er þar nú kominn mikill snjór. Skólaútibúið í Tjarnarlundi var því aðeins opin á mánudag og hálfan miðvikudag.
Svínadalur hefur verið opinn eða haldið opnum alla þessa daga og þykir það nokkrum tíðindum sæta að hann sé opin en strandir lokaðar. Vegurinn yfir Þröskulda virðist alveg glataður; teppast fljótt og veður eru þar og válynd í norðanáttinni.
Búðardalur er mun veðursælli í þessari átt en égátti von á. Hér var heiðríkja og sól þá daga sem bylur buldi á húsum Saurbæinga. Þó brá af þessu bæði á fimmtudag og föstudag er kom nokkur snjókoma og skafrenningur. Snjóðai t.d. grimmt í nótt.
Bara gott að fá smá vetur, sem mynnir mann á í hvaða náttúru og í hvaða landi maður býr.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar