Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Sunnudagur, 18. apríl 2010
Í góðu lofti
Það er nú ekki hægt annað en hugsa til íbúanna undir Eyjafjöllum og nágrenni, sem búa við svartnætti dag og nótt og mikið öskufall. Maður sér hreinlega ekki fyrir sér hvernig hægt er að búa á jörðunum vikum saman við þessar aðstæður. Alltaf í ryki og rökkri.
Hér í Dölum er drullukallt reyndar en maður er bara ferlega feginn að þetta er hreint loft, að maður getur opnað glugga og fylgst með sólinni á himinum. Það er greinilega ekki svo sjálfsögð forréttindi.
Miðvikudagur, 14. apríl 2010
Ha ...núna
Er þetta ekki pínulítið hættulegt...hljómar þannig. Klukkutími í flóð og eftir að koma tækjum á staðinn, rjúfa og koma sér í burtu.
![]() |
Ætla að rjúfa veginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 11. apríl 2010
Gengur nýfrjálshyggjan aftur ?
Nýfrjálshyggjan er vonandi í dauðateygjum og gefur upp andan fljótlega. VG er ekki í uppgjöri heldur jarðaför.
...en það verður lengi von á afturgöngum.
![]() |
VG í uppgjöri við frjálshyggju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. apríl 2010
Dalamaðurinn tekur á því
![]() |
Eignir auðmanna frystar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 8. apríl 2010
Að pakka faglega í ferðatöskuna
Nú þegar utanlandsferð stendur fyrir dyrum hjá stórfjölskyldunni er ekki slæmt að rekast á leiðbeiningar um hvernig gott er að pakka í tösku. Ég skoðaði þetta myndband og varð steinhissa. Maður kann greinilega ekkert að pakka ofan í töskur.
Lítið endilega á þetta: http://www.youtube.com/watch?v=ms991s18Mco
Vefurinn sem þessi ágæta kona heldur úti er reyndar stútfullur af allskyns ráðum og tékklistum. Sjá www.packitup.com
Miðvikudagur, 7. apríl 2010
Síðbúnar vetrarmyndir
Hef sett nokkrar síðbúnar vetramyndir inn á Flickr síðuna mína. Gegnum um daginn niður með Ljá og svo í framhaldinu í fjörunni. Aldrei þessu vant var ég með myndavélina en því miður þá varð hún rafmagnslaus þegar leið á gönguferðina.
Annars er hver dagurinn fallegri hér núna við Hvammsfjörðinn. Kvöldbirtan er alveg mögnuð hér við fjörðinn.
Myndir á Flickr: http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/
Vinir og fjölskylda | Breytt 8.4.2010 kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 3. apríl 2010
Páskabingó
Rikki og vinir hans; systkinin Matti og Sunna, ákváðu fyrir nokkrum vikum að stofna til Páskabingós fyrir fjölskyldur sínar. Bingóið skyldi haldið miðvikudaginn 31. mars. Í tvo daga stóð undirbúningurinn yfir. Krakkarnir byrjuðu á því að kaupa verðlaun; þ.e. páskaegg, nokkur stykki og ekki af smærri endanum). Til þess þurfti allnokkurt fé, sem þau höfðu safnað sér með margvíslegum hætti. Því næst var hafist handa við að skreyta stofuna heima hjá Rikka, þar sem bingóið skyldi haldið. Það tók margar margar klukkstundir, því þessu fylgdi heilmikið föndur og sköpunargleði. Það voru m.a. blásnir upp hanskar sem notaðir voru sem hænuhausar, perlað páskasraut og fl. og fl.
Þegar dagurinn rann upp var hafist handa við veitingarnar, en börnin bökuðu pitsur. Foreldrarnir (Gugga, Lói, Steina og Kalli) þurftu ekkert að gera annað en að setjast í sóffann og njóta kvöldsins. Eftir góðan málsverð hófst bingóið og var notast við "alvöru" bingóvél, sem krakkarnir höfðu útvegað sér. Spilaðar voru fjórar umferðir.
Áformin sem krakkarnir voru í upphafi með voru stór. Þau lögðu mikið á sig í langan tíma; söfnuðu fé, skreyttu fyrir kvöldið, elduðu mat og héldu bingó. Afraksturinn var yndislegt kvöld sem fjölskyldurnar tvær áttu saman. Þökk sé þeim Matta, Rikka og Sunnu.
Þriðjudagur, 30. mars 2010
Predikarinn
Predikarinn í Biblíunni geymir góða speki. Meðal annars þessa:
Betri er hnefafylli af ró en báðar hendur af striti og eftirsókn eftir vindi.
Gefðu ekki heldur gaum öllum þeim orðum sem töluð eru, til þess að þú heyrir ekki þræl þinn bölva þér.
Og ég lofaði gleðina því ekkert betra er fyrir manninn undir sólinni en að eta drekka og vera glaður.
Laugardagur, 27. mars 2010
Nýkominn úr ófrjósemisaðgerð
Erpur þurfti vegna aðstæðna sinna og hegðunar að gangast undir ófrjósemisaðgerð í gær. Aðgerðin var framkvæmd í næsta húsi af nágrönnum okkar, sem eru þaulvanir dýralæknar. Eftir aðgerðina þarf Erpur að bera skerm á höfðinu svo hann betrumbæti ekki saumaskap læknana. Þetta höfuðfat þarf hann að bera í 10 daga.
Erpur rekur þennan hvíta skerm stöðugt í allt sem á vegi hans verður og tekst næstum á loft í rokinu í Búðardal þegar hann snýr á móti vindinum. Hann er bæði ósáttur og ringlaður yfir meðferðinni.
Líðan hans er annars bara eftir aðstæðum. Hann er allavega hressari í dag en í gær.
Föstudagur, 26. mars 2010
Góð tíðindi
Það má hrósa fréttaveitunni www.tidindi.is fyrir sinn fréttafluttning. Þessi vefur varð til í kjölfar hrunsins og hefur aðeins eitt markmið...að flytja góðar og jákvæðar fréttir. Það ættu allir að gera þessa síðu að upphafssíðu á sínum vafrara.
Það bætir geðheilsuna.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar