Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Miðvikudagur, 16. nóvember 2011
Skírnarmyndirnar komnar inn
Sunnudagur, 13. nóvember 2011
Æ mig auman
Við getum bara agað okkur sjálf." segir hún Hanna Birna. Erum við að skynja afrakstur síðustu áratuga sem agaða efnahagsforystu ? Og hvað með framtíðina... eru "öguð" vinnubrögð það sem manni detur virkilega í hug þegar litið er t.d. á umræður inni á alþingi ?
Varla
Ætli við sitjum þá ekki uppi með afar erfiðan gjaldmiðil og lítt öguð vinnubrögð áfram.
Æ mig auman
Eigum að halda í krónuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 10. nóvember 2011
Birkir Rafn Bjarnason tekinn í kristinna manna tölu
Síðastliðinn sunnudag var afastrákurinn skírður í Kotstrandarkirkju i Ölfusi. Á síðustu stundu forfallaðist síra Helga systir og gat því ekki skírt drenginn. En hún reddaði ágætum forfallapresti í staðinn.
Faðirinn hélt drengnum undir skírninni. Að skírn lokinni buðu þau Birna og Bjarni til veglegrar veislu í Hveragerði.
Því miður hefur mér ekki enn unnist tími til að vinna margar myndir sem ég tók. En það ætti nú að klárast um helgina. Læt fylgja hér eina mynd úr kirkjunni þar sem Bjarni heldur á Birki Rafni við skírnina.
Miðvikudagur, 2. nóvember 2011
Hvað er ég gamall ?
Er hægt að mæla aldur ? Já við gerum það með tímatali okkar - semsagt i árum. En það getur nú varla talist góður mælikvarði t.d. getur árafjöldinn ekki sagt nákvæmlega til hversu stirður ég er, gleyminn, hrukkóttur eða mæðinn.
Því veit ég ekki hvað ég er nákvæmlega gamall t.d. miðað við aðra. Þeir geta verið eldri í árum en yngri í útliti. Eða öfugt.
Spurningin ætti miklu frekar að vera um öldrun en aldur. T.d. gæti ég spurt mig : Hversu mikil er öldrun mín ? eða Hversu hröð er öldrun mín ? Og mér dettur í huga að ég eigi jafnvel eftir einhverja æsku....hversu mikla æsku á ég ennþá ?
Hmm já hver er raunveruleg staða mín eiginlega ?
Fimmtudagur, 27. október 2011
Meira af gamla tímanum
Jæja þá er ég búinn að skanna um það bil tæplega 70 myndir til viðbótar og setja inn á Flickr síðuna mína. Það er linkur hér til hliðar þar sem stendur "Flickr síðan mín". Svo er hægt að smella hér til að fara þangað beint. http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/ Aðallega er að ræða myndir frá 1996 en þá fór fjölskyldan í miklar reisu um Ísland, Danmörk og Noreg. Þá nokkrar myndir frá fjallgöngu í Héðinsfjörð árið 2000 og að lokum myndir frá fyrstu sólarlandaferð fjölskyldunnar 2002.
Myndin sem fylgir er afar skemmtileg. Hún er tekin stutt frá heimili Fríðu og Sigurgeirs í nágrenni Árhúsa 1996. Endurnar eiga athygli allra.
Smellið á myndina til að stækka hana. Tvísmellið til fá hana í fulla stærð.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. október 2011
Af hverju borðum við heitan mat ?
Sunnudagur, 23. október 2011
Sólarströnd
Laugardagur, 22. október 2011
Armbeyjur
Fimmtudagur, 20. október 2011
Hvert leiðir Netið okkur ?
Samfélagssíður eins og Facebook gætu verið að breyta heilanum á okkur. Þetta segir ný rannsókn sem birt var í fræðiritinu Proceedings of the Royal Society B Biological Sciences en litið var á þrívíddar myndir af heilum 125 háskólanema í London.
Rannsóknin sýnir það svart á hvítu að tengsl eru á milli stærðar ákveðna hluta heilans og vinafjöldans á Facebook. Það liggur þó ekki fyrir hvort að Facebook stækki heilann á fólki, eða hvort að fólk sem á auðveldara með að eignast vini og eigi því marga félaga, en heilastöðvarnar tengjast félagslyndi, minni og einhverfu.Taugavefurinn er því stærri hjá þeim sem eiga marga Facebook vini. Það sem er mest spennandi núna er hvort þessir taugavefir breytist og þróist með tímanum.
Þessi uppgötvun mun aðstoða okkur í því að rannsaka það hvort internetið geti breytt heilanum, segir Dr. Ryota Kanai, einn af þeim sem framkvæmdi rannsóknina hjá University College Dublin.
Tekið af vef DV 20.10.11 sem vitnar í frétt BBC
Mánudagur, 17. október 2011
Skrýtið að lesa þetta
Já maður gleymir stundum hversu mikill munur er á uppeldisvenjum milli þjóða, jafnvel vestrænna þjóða.
Í ljósi hefða á Íslandi er hreinlega skrýtið að lesa þetta.
Vilja banna löðrunga í Wales | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar