Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Laugardagur, 14. ágúst 2010
Ylliber
Hér í Búðardal eru tveir Ylliberjarunnar á lóðinni við húsið sem ég leigi. Báðir blómstruðu þeir fallega í vor og nú bera þeir helling af berjum. Berin eru lítil, eldrauð og sitja í fallegum píramídalaga brúskum fremst á hverri grein. Mjög fallegt.
Ylliber eru nothæf í sultur þótt eitruð séu (eins og reyndar plantan öll). Eftir suðu er þau skaðlaus. Ég ákvað því að gera tilraun að sulta þessi ber, enda hef ég aldrei hvorki séð né notað þau. Það er ekki um auðugan garð að gresja varðandi leiðbeiningar enda berin greinilega lítið notuð. Þó fundust leiðbeiningar og uppskriftir.
Bragðið af hlaupinu er sérstakt og í rammara lagi, ef berin eru notiðu ein sér. Ákvað að setja aðeins af rifsberjum út í og við það varð úr alveg fyrirtaks hlaup.
Svo vona ég bara að upplýsingar um afeitrunina við suðu séu réttar.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010
Og trén vaxa bara og vaxa út um allt
Það er orðið þannig að þegar maður ekur um Vestur-, Norður- eða Suðurland þá rekur maður augun sífellt í fleiri og fleiri svæði þar sem tré eru að skjóta upp kollinum. T.d eru stór svæði í Norðurádalnum, vestanmegin við Öxarfjarðarheiðina og norðan megin við Bröttubrekku þakin trjám sem virðast bara geta vaxið allstaðar. Tíðarfarið undanfarin ár hefur líka verið þannig að svo virðist sem ársvöxtur slái nýtt met á hverju ári.
Mér finnst þetta afar ánægjuleg þróun og hlakka til á næstu árum að aka langar leiðir umluktur skógi.
Mánudagur, 9. ágúst 2010
Flott hjá Jóni Gnarr
![]() |
Flugeldasýningin bruðl? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 5. ágúst 2010
Í kapphlaupi við birkifetan
Birkifeti - Rheumaptera hastata
Birkiskógar og bláberjalyngsmóar eru kjörlendi birkifeta. Hann lifir fyrst og fremst á birki (Betula pubescens) og bláberjalyngi (Vaccinium). Flugtími birkifeta er fyrri hluta sumars, einkum í júní og fram í júlí, en fiðrildi hafa fundist á tímabilinu frá miðjum maí og allt til fyrstu daga í ágúst. Það heyrir þó til undantekninga að þau sjáist svo seint. Lirfurnar vaxa upp í samanspunnum laufblöðum frá seinni hluta júní og ná fullum vexti er líður á ágúst. Þær púpa sig á jörðinni, gjarnan innan um fallin laufblöð. Birkifeti brúar veturinn á púpustigi.
Mörgum finnst birkifeti með fallegri fiðrildum hér á landi og með stærri fetum. Vængirnir eru dökkir, svarbrúnir með flóknu mynstri af ljósum saumum. Bolurinn er líka mjög dökkur. Mynstrið er breytilegt og saumarnir misljósir, stundum nær hvítir en stundum mun dekkri og lítt áberandi á dökkum vængjunum. Lirfurnar eru nær svartar, nokkuð gljáandi, með ljósari blettum á hliðunum.
Birkifeti er nokkuð fast bundinn kjörlendi sínu og sést sjaldnast á flögri fjarri því. Honum reiðir misvel af eftir árum og þegar vel árar verður fjöldinn gríðarlega mikill. Grunur leikur á að birkifeta fari fjölgandi með hlýnandi loftlagi. Lirfurnar verða mikil átvögl þegar þær taka að ná fullum vexti um og upp úr miðjum ágúst ef vel árar. Þar sem mikið er af þeim sést greinilega merki á gróðri. Árið 2008 byrjuðu að berast fréttir að bláberjalyngsbrekkur í Dölum, á Snæfellnesi og sumstaðar á Vestfjörðum væru orðnar brúna yfirlitum. Græni vefur laufblaðanna var gjörsamlega uppétinn og einungis visinn og orpinn æðavefurinn stóð eftir á lyngsprotunum. Þetta endurtók sig á sömu slóðum árið eftir, þ.e. 2009 og stefnir nú 2010 í fjórða árið í röð þar sem Birkifetin klárar bláberjalautir í Dölum. Öll þessi sumur eiga það sameiginlegt að hafa verið hlý og þurrviðrasöm.
Nú er ég í kapphlaupi við birkifetan. Lifrunar eru í óðaönn að borða lyng og hafa þegar lagt undir sig feykistór svæði í Dölum. Ég hinsvegar þykist snjall með því að vera ofar í hlíðunum og þar ásamt einstaka öðrum svæðum er ennþá hægt að finna þessi líka fínu og yndislegu aðalbláber. Ég verð að viðurkenna að ég berjavinurinn er ekki hrifinn af þessu fiðrildi og tel mig hér vera að finna afar hvimleiðan galla á hlýjum og sólríkum sumrum.
Mánudagur, 2. ágúst 2010
Enn og aftur kominn heim
Þetta er að verða meira ferðasumarið. Ég var að koma aftur í Búðardal í dag eftir veru fjölskyldunnar á Landsmóti Ungmennafélaganna í Borgarnesi. Rikki keppti þar í fótbolta með liði UDN. Ekki náði liðið nú að leika til verðlauna en stóð sig með prýði.
Þarna var margt um manninn og rakst ég á nokkra sem langt er síðan ég hef hitt. En veðrið, félagsskapurinn og dagskráin í Borgarnesi gerði það að verkum að helgin var hin skemmtilegasta.
Fimmtudagur, 29. júlí 2010
Stóryrt blogg
Rakst á þetta stóryrta blogg um fólk sem tók vitlaus lán.
http://www.badabing.is/2010/07/megi_myntkorfufolki_brenna_i_h.html
Miðvikudagur, 28. júlí 2010
Pósturinn á dyramottunni
Pósturinn er með auglýsingaherferð þessa dagana þar sem reynt er að sannfæra fólk um að best sé að fá að geyma póstinn á pósthúsi þá daga sem maður er í burtu í ferðalagi. Ekki sé gott að geyma hann á dyramottunni. Öryggisins vegna.
Hvernig sem ég hugsa þetta skil ég ekki hverju ég er bættari með að geyma póstinn á pósthúsinu.
Afhverju má hann ekki liggja á dyramottunni í læstu húsi ? Ekki skemmist hann eða fer neitt. Og það þarf ansi mikinn póst til að hann hlaðist upp fyrir lúguna. Nú ef það kviknar í, eða það er brotist inn eða vatn flæðir um allt....ætli ég hafi ekki meiri áhyggjur af öðrum hlutum en póstinum mínum.
Sunnudagur, 25. júlí 2010
Á Selfossi
Höfum verið á Selfossi undafarna daga og verðum eitthvað áfram. Rikki er hinsvegar á ferðalagi á Vestfjörðum með vinum sínu; var svo heppinn að vera boðinn með.
Við erum eitthvað að reyna svona að laga til í garðinum, smíða viðbót við pallinn og laga til í geymslum.
Erpur er hér líka að ná sér eftir aðgerðina sem var gerð á honum eftir bílslsysið, sem hann lenti í þegar við vorum úti á Tenerife.
Miðvikudagur, 21. júlí 2010
Berjamó - berjamó
Þá fer að hylla undir að berin séu að verða æt. Alveg hægt að vera í smakkinu á krækiberjunum nú þegar og það lítur út fyrir fullt fullt af berjum þetta árið. Garðaberin verða snemma í ár, líkt og í fyrra ef marka má stöðuna í garðinum mínum á Selfossi.
Ég rakst í morgun á heimasíðu sem algjörlega er ætluð berjafíklum eins og mér og mömmu. www.berjavinir.com Á þessari síðu gætir ýmsra grasa (berja) og skulu þeir sem hana gerðu hafa miklar þakkir fyrir.
Út um mó, inn í skóg,
upp í hlíð í grænni tó.
Þar sem litlu berin lyngi vaxa á,
tína, tína, tína má.
Tína þá berjablá,
börn í lautu til og frá.
Þar sem litlu berin lyngi vaxa á,
tína, tína, tína má.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. júlí 2010
Skák
Ég hóf í vor taflmennsku á nýjan leik eftir um 14 ára hlé. Ég tefli núna á Netinu á skemmtilegu vefsvæði www.gameknot.com Það kostar ekkert ef maður er sáttur við að hafa nokkuð takmörkuð réttindi. Ég hef allavega allt til alls þarna og mér líkar svæðið vel. Mæli hiklaust með því.
Ég tefli bréfskákir, þannig að ég leik bara einn leik í einu og sendi hann. Bréfskákaformið hentar mér mun betur heldur að tefla í "beinni" á netinu á tíma.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar