Þriðjudagur, 31. júlí 2007
Loksins ...Marmaris myndir komnar inn
Jæja þá rigndi nægilega mikið til þess að ég kláraði að eiga við myndirnar frá Marmaris. Ég hef ákveðið að setja um 120 myndir af ferðinni inn á vefinn í þessu kasti. Miklu fleiri myndir voru teknar en sumar eru ekki vefhæfar ;).
Slóðin á myndirnar er hér: http://loi.blog.is/album/Marmaris2007/
Mæli með Marmaris við alla þá sem langar í skemmtilega sólarlandaferð !
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Ferðaþjónusta í Tyrklandi
Í Tyrklandi má finna allar tegundir ferðaþjónustu. Gæðin eru eins; þau eru afar fjölbreytt. Við fórum eina stóra ferð saman, sem tók um 12 tíma. Ferðin var ágæt í heild sinni en nokkuð frá því sem sölumaðurinn sagði ,sem seldi ferðina. Ég ætla ekki að eyða miklum tíma í að segja hvað fór úrskeiðis, en við náðum hinsvegar afar góðri mynd af þeim manni sem fór hvað mest í taugarnar á okkur í ferðinni.
Það skal tekið fram að í Tyrklandi er það mikill ósiður að taka myndir af ókunnugu fólki og þá sérstalega konum (tala nú ekki um ef það eru nú eiginkonur einhvers í grendinni). Svo Gugga var mjög hugrök þegar hún mundaði myndavélina og smelti af þessari mynd.
Þessi maður var skipstjóri um borði í skipi (sem reyndist lítill bátur) og sigldi með okkur mestallan daginn. Hann sagðist vera hálfur Rússi og hálfur Tyrki og talaði flest tungumál (fannst honum). Þegar hann var ekki að selja okkur eitthvað eða spila músík og klappa með, eða reykja...þá dottaði hann stundum þarna uppi á kælikistunni. Og þar hafði hann reyndar skrifað verðin á drykkjunum sínum mjög skýrt og fallega. En við keyptum reyndar næstum ekkert af kallinum...og því lagði hann okkur í einelti í ferðinni...svona kurteisilegt einelti.
En Gugga náði fram hefndum.
Föstudagur, 27. júlí 2007
Æi ég veit ekki...
Ég þekki Teigskóg. Og víst er hlíðin falleg með skóginum og ósnortin að sjá. Hitt er svo annað mál hversu mikill skógur þetta er...hvað er skógur og hvað er kjarr ? Flest trén eru nú ekki há.
Sannarlega væri "töff" að gera bara göng undir hálsinn en er ekki ekki einhver takmörk fyrir hvað á að leggja mikið fé í vegi eins og þennan, sem staðsettur er nánast í eyðibyggð.
Æi ég veit ekki....Teigsskógur eða göng .... kannski er bara tvöföldun Suðurlandsvegar það sem mig langar mest til að sjá.
![]() |
Höfða mál gegn umhverfisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 23. júlí 2007
Dalirnir
Sunnudagur, 22. júlí 2007
Ekki verið að kjósa um Islam
Það er ekki allskostar rétt að barátta í núverandi kosningum standi á milli þess veraldlega og Islam. Sá flokkur sem nú fer með völd er hægrisinnaður og aðhyllist hófsama Islamska stefnu. Ástæða þess að hann er svona vinsæll er fyrst og fremst því að þakka að gamli valdaflokkurinn var orðinn (og er hugsanlega) mjög spilltur.
Núverandi hófasami Islamflokkurinn hefur leitt gríðarlegar þjóðfélagslegar umbætur í Tyrklandi síðustu ár. Hagvöxtur hefur ekki farið undir 7 % í hans valdatíð og verðbólga hefur minnkað verulega. Erlend fjárfesting hefur stóraukist og almenn lífskjör batnað. Árið 2005 voru samþykkt lög um réttindi kvenna þar sem þau voru stóraukin og viðurkennd samkvæmt tyrkneskum lögum. Ofangreint sýnir að þessi flokkur er ekki að leiða þjóðina inn í trúarlegt samfélag.
Um 50 % Tyrkja eru ekkert eða lítið trúaðir samt kjósa þeir þennan flokk og þennan ágæta forsætisráðherra.
![]() |
Talning atkvæða hafin í Tyrklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 21. júlí 2007
Tyrknesk kattaþing
Eitt af því sem hvergi var hægt að lesa sér til á síðum ferðaskrifstofa né á Netinu var mikill fjöldi katta í lausagöngu. Við vorum vöruð við þessu í rútunni af flugvellinum á leið okkar til Marmaris. Talsvert er einnig af hundum á lausagangi, en þó mun minna.
Ekki bjuggumst við við slíkum fjölda katta, sem voru útum allar götur og inni á veitingatöðum, sérstaklega á kvöldin. Þó ekki á hótelinu okkar. Kettir þessir voru afar mismunandi á sig komnir; sumir grindhoraðir og nær hárlausir en aðrir fallegir og sællegir. Flestir voru þeir gæfir en við vorum alvarlega aðvöruð að vera nokkuð að eiga við þá. Dýrabit ættum við strax að tilkynna fararstjóra.
Opinbera skýringin á þessu kattafári er að tyrknesk heimili séu lítil og það hafi aldrei tíðkast að halda gæludýr inni; hvorki hunda né ketti. Kettirnir hafi því alltaf verið úti og fólk hjálpast til við að gefa þeim og hlúa að þeim. Við urðum líka mörgum sinnum vör við að Tyrkirnir væru að gefa köttunum. Það mynti einna helst á okkur Íslendingana að gefa blessuðum fuglunum.
Önnur skýring á fjöld þessara katta er hugsanlegur frágangur á sorpi , en honum var greinilega sumstaðar ábótavant. Kettir voru í sorphrúgum um allan bæ og höfðu örugglega mikið að borða því ferðamenn leyfa talsverðu.
Almennt virtist vestrænum ferðamönnum frekar standa stuggur af þessum köttum en hitt, þó sá maður börn gefa köttum snakk og annað góðgæti. Gæti best trúað að snakk væri aðalfæða sumra kattanna.
Föstudagur, 20. júlí 2007
Skemmtilegar salernisferðir
Eitt af því sem maður upplifir nýtt og spennandi í Tyrklandi eru klósettferðir. Tyrkir hegða sér nefnilega nokkuð öðruvísi en við þegar kemur að notkun salerna.
Í fyrsta lagi er harðbannað að setja klósettpappír í klósettið. Klósettpappírinn setur maður í körfu við hliðina á klósettinu. Það þýðir að maður þarf að horfast reglulega í augi við saurugan úrgang sinn þegar maður kemur honum fyrir í körfunni. Ástæða þessa háttar er lélegt skolpkerfij í bæjum og borgum, sem aldrei myndi bera klósettpappírinn frá öllum hótelunum.
Í öðru lagi er sérstakt skolkerfi á klósettum. Þegar maður er búinn að gera stórt þá skrúfar maður frá krana við hliðina á klósettinu og þá sprautast vatn á óhreina staðinn og skolar burtu óhreynindum. Ekki er gott að skrúfa mikið frá í einu því þá vill vatnið sprautast á ýmsa staði utan sem innan klósettskálarinnar.
Íslendingar vilja nú telja sig frekar hreinláta að eðlisfari, en samt var enginn í hópnum sem mælti með sprautuhreinsuninni.
Fimmtudagur, 19. júlí 2007
Með DOLMUSH í Tyrklandi
Strætisvagnakerfið í Marmaris var skemmtilegt. Strætisvagnarnir(DOLMUSH-arnir) eru litlir; ekki meira en 20 manns í sæti. Hinsvegar var oft stappað í þá fólki og ég veit eiginlega ekki hversu margir gátu troðið sér inn í einn vagn. Nafnið Dolmush þýðir líka " troðið eða stappað". Ökumennirnir eiga vagnana sjálfir og sjá um rekstur þeirra. Strangt eftirlit er með vögnunum og þurfa þeir að uppfylla nokkuð strangar kröfur um ásigkomulag og öryggi.
Vagnarnir eru ekki á tímaáætlun en Þeir aka hinsvegar fyrirfram ákveðna leið. Bíðskýli eru um allt þar sem hægt er að bíða í skugga eftir vagninum en einnig er hægt að veifa þeim hvar sem er á leið þeirra til þess að fá far. Þá stoppa þeir ef þeir eru ekki fullir. Sami háttur er viðhafður inni í vagninum, maður segir bara stopp og þá stoppar vagninn og manni er hleypt út. Flestir vagnarnir voru aðeins opnir að aftan og ef var troðið í þá komst maður ekki með fargjaldið til vagnstjórans. Þá rétti maður einfaldlega peninginn næsta manni sem kom þeim áleiðis til vagnstjórans. Stundum fékk maður meira segja til baka meða sama hætti.
Þetta er furðu þægileg ódýr og afslöppuð þjónusta og aldrei þurftum við að bíða lengi eftir vagni, enda fjöldi þeirra talsverður. Tyrkirnir stóðu alltaf upp fyrir eldra fólki og konum. Hinsvegar er ég ekki viss um að þeir hafi vitað hvað biðröð er.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 18. júlí 2007
Hótel Forum
Hótelið sem við vorum á var afar gott íbúðarhótel. Íbúðirnar voru mjög stórar; okkar var þriggja herbergja með tveimur baðherbergjum og þrennum svölum. Ég hugsa að íbúðin hafi verið um 80-90 fm. í allt. Svo nóg var plássið. Íslensku ferðaskrifstofurnar höfðu leigt allt hótelið svo það voru einungis Íslendingar á því, sem þýddi að maður heyrði bara íslensku á laugarbakkanum. Tyrknesku þjónarnir skyldu líka smá íslensku og höfðu gaman af því að spreyta sig á henni.
Sundlaugargarðurinn var stór með tveimur laugum; Stórri djúpri laug og barnalaug. Dýpt laugarinnar gerði það að verkum að hún var þægilega svöl langt fram eftir degi í hitanum. Og af því að það voru bara Íslendingar á hótelinu þá viðgekkst sá siður að rífa sig upp snemma á morgnana og fara út með handklæði til að tryggja sér bekki. Fáránlegt. Ég hugsa að það hafi aldei verið legið á nema helming bekkjana í einu, svo í raun var engin þörf á að taka frá bekki.
Hótelið er vel staðsett við aðalgötu bæjarins, með stóra matvöruverslun við hliðina og stutt á ströndina. Við þurftum mikið af vatni og öðrum drykkjum svo eins gott að hafa búðina við hliðina á hótelinu.
Maturinn á hótilinu var mjög góður en í dýrari kantinum og með mjög hægri þjónustu. Maður beið ekki minna en einn og hálfan tíma eftir matnum góða. Svo við borðuðum aðeins tvisvar á hótelinu.
Mánudagur, 16. júlí 2007
Svona er það þarna
Í Tyrklandi er bannað að byggja hús á ferðamannastöðum frá maí nóv. Þetta er gert svo byggingaframkvæmdir trufli ekki ró gesta Tyrklands. Því má víða sjá hálfkláruð hús og hótel í Marmaris.
Árið 2005 var ráðist að fullri hörku gegn verðbólgu í Tyrklandi og m.a var gerð myntbreyting. Nýja tyrkneska lýran er um 48 íslenskar krónur. Við myntbreytinguna var hvorki meira né minna en 6 núllum slátrað, þ.e 1 ný líra er jafnmikið og 1.000.000 gamlar.
Fram til ársins 1995 þurftu Tyrkir ekki að taka bílpróf. Þeir þurftu aðeins um 18 ára aldur að sýna fram á að þeir væru heilbrigðir. Þá máttu þeir keyra bíl. Það eru því aðeins rúmlega 10 ár síðan að Tyrkir fóru að læra umferðareglur og ýmis öryggisatriði. Þetta má glögglega sjá í umferðinni í Tyrklandi; hún er kaos.
Tyrkneskir karlmenn mega giftast konum sem eru kristnar eða gyðingar. Þeir mega hinsvegar ekki giftast konu sem er búddatrúar. Tyrkneskar konur mega hinsvegar ekki giftast nema múslimum. Margir tyrkneskir karlmenn sem vinna við ferðaþjónustu reyna að kynnast vestrænum konum og komast með þeim úr landi. Þetta er draumur og takmark sem aðeins þeir hólpnu ná. Við urðum áþreifanlega vör við þetta í ferðinni.
Vinnudagur venjulegs þjóns á hóteli eða skemmtistað eru um 16 tímar á dag. Engir frídagar og stundum ekkert kaup nema þjórfé. Engu að síður eru þetta eftirsóknarverð störf. Best er að vera þjónn á fínu hóteli, sem jafnvel starfar allt árið.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar