Leita í fréttum mbl.is

Skaðleg staða

Til þess að geta kælt hús í heitu landi þarf orku. Því meiri hiti því meiri orkunotkun. Orkan kostar. Það leiðir til þess að aðeins þeir efnameiri hafa tök á því að búa í loftkældum vistaverum.

Nú kemur í ljós að loftkæling hefur líka þær afleiðingar að þeir efnameiri auka hitan á þeim efnaminni með því að nota loftkælinguna sína. Því er það ekki bara að þeir efnaminni geti ekki keypt orku og notið loftkælingar, heldur skaðar það þá hreinlega að þeir efnameiri skuli nota loftkælinguna sína. Og þeir efnameiri verða stöðugt að kaupa meiri og meiri orku til kæla húsin sín...því loftkælingarnar auka lofthitann í borgum. Virkar á mig sem spírall sem skúfast upp í stórkostlegan skaða.

Í raun virðist loftkæling í borgum varla leysa nokkurn vanda heldur aðeins búa til sífellt skaðlegra umhverfi fyrir manneskjur.


mbl.is Loftkæling hitar borgir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erpur

DSCN2623Erpur hefur nú sofnað svefninum langa.  Þetta gerðist um helgina eftir að hann hafði öðru sinni á fáeinum mánuðum orðið á  fyrir bifreið.   Erpur var vel gefinn, blíður og alltaf í góðu skapi.   Hans verður sárt saknað.

GSM símar og Netið eru beitt vopn

Það má svo glöggt sjá að Netið (eitt af undrum veraldar) er að hafa mikil áhirf á valdajafnvægi í heiminum. Oftast virðist Netið styðja lýðræðið og hinn almenna borgara í baráttu sinni við ólýðræðisleg stjórnvöld og spillingu.

Það er ekki síst Netinu að þakka eða kenna að Wikileaks hefur náð að velgja ríkjandi valdhöfum undir uggum. Á þeirri síðu lekur reglulega vitneskja sem varðar almannahagsmuni.

Netið og þá ekki síst samskiptasíður eins og Facebook og Twitter virðast skipta gríðarlegu máli í uppreisnum almennings gegn ríkjandi einræðisherrum í Túnis og Egyptalandi. Trúlega hefði ekki orðið af þessum byltingum án Netsins.

Stjórnvöld í Kína eyða gríðarlegum fjármunum í að halda úti Netlöggum, til að verja einræðið og kæfa lýðræðistilburði.

Það kaldhæðnasta í þessu er samt það að þvi betur settar efnahagslega sem einræðisríki verða, því háðari verða þær nútímaviðskiptum, sem fara að stærstum hluta í gegnum Netið. Að banna netið gengur því ekki. Og þvi betri efnahagur því meira internet fyrir allan almenning. Að lokum fer fólkið út á götur að mótmæla vopnað GSM símum sínum(sem eru líka nettengdir).


Samvinnufélög

Það hvarflar að manni að ekki hefði verið slæmt að hafa fleiri samvinnufélög starfandi í landinu og færri hlutafélög í aðdraganda hrunsins.   Ofurtrú á hlutafélög og ekki síst einahlutafélög af minnstu tegund virðist hafa gert æði marga trúaða á gróða.

Samvinnufélögin eru rekin á félaglegum og viðskiptalegum grunni.  Í lögum um samvinnufélög frá 1991 kemur fram að  félögin eru stofnuð  á samvinnugrundvelli með því markmiði að efla hag félagsmanna eftir viðskiptalegri þátttöku þeirra í félagsstarfinu.  

Það má sjá fyrir sér að kaupfélög á höfuðborgarsvæðinu gæti átt hljómgrunn í kjölfar fákeppni og spillingamála eigenda síðustu ár.  Á landsbyggðinni mætti hugsa sér að stofna sammvinnufélgög um akuryrkju svo dæmi séu tekin.

Víða í Evrópu eru samvinnufélög stór þátttakandi í atvinnulífi þjóða og ekki er langt síðan að í Evrópu voru samin ný lög fyrir slíka starfssemi til að styrkja og tryggja enn frekar tilvist þeirra. 


Samhentu hjónin á Stóra Vatnshorni

Fyrir þá sem ekki vita þá voru hjónin bæði handlama samtímis á síðasta ári. það hamlaði þeim ekki í búverkum eins og heimildamyndbandið sýnir.

Þorrablót er fyrir alla

Rakst á þetta myndband á youtube. Raunlýsing á hommamenningu á Seyðisfirði á þorranum. Ekki sem verst :) 

Nokkuð þreyttir

Í gær var ég að skoða myndasafnið hjá pabba.  Þar fann ég þessa líka merkilegIMG_1292u mynd.  Hún er af okkur feðgum þegar við erum búinir að labba í rúma 18 tíma og leggja að velli 18 fjöll.  Hér erum við á hæðsta fjallinu; Kerlingu (1538 m) kl. hálf þrjú að nóttu í slyddu.  Eins og sjá má á myndinni erum við nokkuð slæptir og þreyttir að sjá, en sonurinn þó mun uppgefnari. Smellið á myndina til að stækka hana.

Google

Þetta hljómar vel. Nú er Google komið með skrifstofu á Íslandi og íslenska kennitölu þannig að brátt fara að aukast umsvif þessa ágæta fyrirtækist hér á landi spái ég.

Þar fyrir utan þá elska ég bara Google.


mbl.is Google hyggst ráða 6.200 starfsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löng glíma

Er nú kominn í vikufrí og sit við skriftir í húsinu mínu á Selfossi. Orðin löng og þreytandi fæðing á MPA ritgerðinni minni. Það verður hátíð þegar þessu líkur.

Klósettpappír á kílóverði

ÉG hef gert lauslega rannsókn á klósettrúllum og komist að því að illómögulegt er að gera verðsamanburð á þeim. Ódýrustu klósettrúllurnar; sérpakkaðar og sérmerktar í Bónus og Krónunni; eru með færri blöð og með styttri hólk (því er hvert blað líka minna). Þær eru hinsvegar ódýrari per stk. en klósettrúllur sem virðast gæðameiri. Trúlega er besta leiðin til þess að bera saman verð á klósettpappír að vikta hann en til þess þarf nokkuð sértæka vikt.

Því er spurning hvort ekki ætti að gefa upp kílóverð á klósettpappír líkt og á ávöxtum og grænmeti.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband