Leita í fréttum mbl.is

Karlar í kotinu

Hin árlega kvennaferð fjölskyldunnar er þessa helgi.  Þá fara allar konur yfir fermingu í ferðalag og skilja karlana eftir í kotinu.  Alltaf í september.  Hreint og beint lögmál.

Við karlarnir fjórir ætlum að dúlla ýmislegt á meðan.   T.d er haustmót JSÍ í júdó og þangað stormum við á sunnudaginn.


Jói lögga á nýjum bíl !

Það er mjög gleðilegt að Jói sé nú loksins laus við gamla bílinn, sem alltaf var bilaður.

Til hamingju Dalamenn !

http://www.dalir.is/Default.asp?sid_id=7353&tId=2&fre_id=61786&meira=1


Evran og Davíð

Ég hef reynt að fylgjast með umræðunni um að taka upp evru í stað íslensku krónunnar.  Nú verð ég að viðurkenna að ég er orðinn nokkuð ruglaður hvað þetta varðar og erfitt að henda reiður á hvað sé nú rétt og hvað ekki.  Heyrði t.d um daginn það álit sérfræðings að Íslendingar væru orðnir svo skuldugir að ekki væri hægt að taka upp evruna.  Er það rétt eða rangt ?

Hitt virðast allir skyndilega nú vera sammála um að hávaxtastefna Seðlabankans sé ekki að virka.  Keppast nú allir að gagnrýna bankann eða öllu heldur Davíð Oddsson.   Enginn gagnrýnir hinsvegar lengur þenslustefnu ríkisvaldsins undanfarin ár.  Svo það er endanlega Davíð sem liggur í því hvoru megin sem hann starfar....og á þá Davíð bæði að hafa skapað aukna verðbólgu og háa vexti.


Þú Kristur

Þú, Kristur, ástvin alls sem lifir. Sb. 51

Þú, Kristur, ástvin alls, sem lifir,
ert enn á meðal vor.
Þú ræður mestum mætti yfir
og máir dauðans spor.
Þú sendir kraft af hæstum hæðum,
svo himinvissan kveikir líf í æðum,
og dregur heilagt fortjald frá.
:,: Oss fegurð himins birtist þá. :,:

Þín elska nær til allra manna,
þótt efinn haldi þeim,
og lætur huldar leiðir kanna
að ljóssins dýrðarheim.
Vér skulum þínir vottar vera
og vitnisburð um stórmerki þín bera,
því þú ert eilíf ást og náð
:,: og öllum sálum hjálparráð. :,:


Valdimar V. Snævarr.
W. A. Mozart



Káta nær árangri

Hún Káta er nú búin að vera í fimm mánaða strangri megrun.  Eftir að hún týndist uppi á Ingólfsfjalli var fjölskyldunni ljóst að holdafar hennar hafði ekki verið að hjálpa henni.  Svo eftir lestur og fréttir af alltof feitum gæludýrum var ekki annað hægt en að setja Kátu í strangt aðhald.

Það verður að segjast að þrátt fyrir að stöðugt væri minni og minni  matarskammtar settir í dallinn hennar  virtist mittismál Kátu ekki breKátaytast neitt.  Reynt að var að auka hreyfingu hennar um leið og bar það helst þann árangur að þol hennar jókst....en ekki breyttist mittismálið.

Í ágúst var farið með Kátu til dýralæknis sem ákvað að farsælast væri að breyta mataræðin hennar og fóðra hana á fitu- og orkusnauðu hundamat.  Eitthvað sem dýralæknirinn seldi náttúrulega sjálfur.  Örvæntingarfull fjölskyldan kinkaði strax kolli yfir þessari hugmynd og nýtt fóður var keypt.

Svo gerðist það um daginn að  vitni varð að því að Káta var að troða sig út af hundafóðri með hausin á kafi í fóðurpokanum.   Runnu nú á menn tvær grímur.  Þetta var auðvitað ástæða þess að Káta léttist ekkert mánuðum saman og vissulega fannst okkur alltaf grunnsamlega oft "búið " úr fóðurpokanum.

Nú er búið að ganga þannig frá fóðurpokum að Káta kemst ekki í þá...og viti menn....Káta hefur náð árangri og er að lettast.


Moska í miðbæ Reykjavíkur

Félag Muslima á Íslandi hefur beðið lengi eftir þvi að fá svör við því frá Reykjavíkurborg hvar þeir megi reisa moskuna sína.  Þetta kom m.a fram í fréttum nýlega.   Ekki veit ég hvað tefur skipulagsyfirvöld en í landi trúfrelsis ættu öll viðurkennd trúfélög að geta komið sér upp húsnæði.moska 

Moskan er hinn heilagi samkomustaður múslima og bænahús þeirra. Í moskunni skal ríkja friður og kyrrð og þar eru því hvorki myndir né tónlist. Í moskunni á að einbeita sér að því að finna nálægð Allah.  Allar moskur hafa turna (mismarga eftir stærð) sem kallaðir eru mínarettur (minaret). Úr turnunum er kallað til bænagjörðar fimm sinnum á sólarhring.

Allra skemmtilegast væri ef hin nýja moska gæti verið nálægt miðbænum þannig að gangandi vegfarendur heyrðu bænakallið frá turnunum.  Þannig myndi moskan lífga upp á umhverfi og mannlíf í borginni.


Úff

Nú bíður maður frétta af því hvort þetta sé einhver sem maður þekkir.  Úff

Annars held ég að það hljóti að átt sé við bæinn Klukkufell en ekki Klukkuberg, sem ég veit ekki að sé til á þessum slóðum.


mbl.is Karlmaður mikið slasaður eftir bílslys í Reykhólasveit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálmur 23

Sálmur 23 er afar fallegur og hefur þá sérstöðu að fólk notar hann jafnt þegar það þarf á huggun að halda og þegar það þakkar Guði fyrir allt milli himins og jarðar.

Við sálminn hafa verið samin mismunandi lög og er  hann fluttur á ýmsan hátt við ólík tækifæri.  Læt hér til gaman fylgja fluttning lítillar stúlku á ensku, sem ég rakst nýlega á.  http://www.godtube.com/view_video.php?viewkey=9e7c4b40cf5a13cea6ca

 


Áfram Selfoss

Þar kom að því að þetta fjölmenna sveitarfélag; Árborg næði að koma fótboltaliði sínu upp í 1. deild.  Selfossliðið hefur þurft að lúta í gras undanfarin ár og sjá eftir fótboltafélögum úr mun fámennari bæjarfélögum fara upp í 1. deildina. 

En nú kom að því og ekki er verra fyrir gamlan Siglfirðing að sjá að KS fylgir þeim líka.  ÉG reikna fastlega með því að handboltaliðinu á Selfossi takist í vetur að komast upp í úrvalsdeildina.

Íþróttaakademíunar í Fjölbrautaskóla Suðurlands eru núna orðnar þrjár; körfuboltaakademía, handboltaakademía og fótboltaakademía.  Í þessum þremur akademíum fer fram úrvalsþjálfun.

Til hamingju Selfossbúar ...boltinn er  rétt að byrja að rúlla.


mbl.is Tekið á móti Selfossliðinu á Ölfusárbrú í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bakslag

Þar kom að því að bakslag kæmi í brjósklosið hennar Guggu.  Gugga fór í bakinu í gær og endaði uppá sjúkrahúsi í nótt, enda gat hún þá ekki orðið hreyft sig mikið.  Það eru rétt rúmlega tvö ár síðan hún fékk síðast svona alvarlega í bakið.  Margt bendir þó til að þetta sé ekki jafnalverlegt og síðast.

Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Sept. 2007
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband