Föstudagur, 28. nóvember 2008
Stutt í annan endann
Þá er fyrri önnin í Háskólanum að ljúka hjá mér. Öll kennsla búinn og nú er bara próf og ritgerðir til 13.des. Mér fannst sept. og okt. nokkuð langir en nóv. hefur verið afar stuttur. Vinnan hefur eiginlega verið mun meiri en ég bjóst við, eða ég er bara ekki lengur sæmilegur námsmaður. Hef þurft að eyða hellings tíma í lestur á enskri tungu. Partur af því er reyndar að ég er að glíma við nýtt fræðasvið.
Námið hefur verið skemmtilegt. Alltaf skemmtilegra og skemmtilegra eftir því sem á það hefur liðið.
Hagfræði er sérlega áhugaverð námsgrein; full af pælingum um hegðun manneskjunnar og fl. Stjórnsýslufræðin eru litrík og lifandi í umfjöllun Gunnars Helga prófessors.
Sunnudagur, 23. nóvember 2008
Borgarafundir á netinu
Einn hópur sem hefur haft sig frammi er sá er skipuleggur borgarafundi. Þeir hafa verið í Iðnó og á Nasa og nú stendur til að fylla Háskólabíó mánudagskvöldið 24. nóv. Heimasíða þessa hóps er sérlega góð og öflug. T.d er hægt að sjá upptökur af öllum þeim borgarafundum sem hópurinn hefur staðið fyrir, með tengingum yfir á You tube. Í gangi er hugmyndabanki, gestabók, greinaskrif og haldið er utan um allan fréttafluttning í landinu af þessum fundum.
Meginmarkmið fundanna er að koma á beinu sambandi milli hins almenna borgara og ráðamanna. Fólk á að geta spurt þá milliliðalaust á fundum. Vandinn hefur hinsvegar verið að þeir eru lítt fúsir að mæta á fundina.
Annars byggjast fundirnir upp á erindum (ekki löngum) og svo umræðum á eftir. Og maður þarf ekki fylgjast lengi með þeim til að upplifa reiði og ólgu.
Þeir sem ekki komast á svona fund en langar að vera þátttakandi geta vel stuðsti við þennan vef.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 22. nóvember 2008
Lesefni fyrir mótmælendur og okkur öll !
Ég notaði morguninn í að skoða aðeins mótmælahópa og jaðarfjölmiðlun á Netinu. Þetta var afar áhugaverður leiðangur og kaffibollarnir urðu fleiri en ég hugði fyrir framan tölvuna. Mig langar í framhaldinu til að fjalla um í nokkrum áföngum um þessi vefsvæði.
Dagblaðið Nei
Mér dvaldist við lestur á þessu vefsvæði. Það er vel uppsett, með mikið af efni og fjölbreytileikinn er mikill. Heimsóknir á vefsvæðið skipta þúsundum eða um 28.000 á viku hverri. Umfjöllunin er að sjálfsögðu pólitísk og í anda atburða síðustu viku. Nokkrir þekktir einstaklingar koma að útgáfunni, sem ber með sér reynslu af blaðamennslu.
Fyrir utan skemmtilegan og títt uppfærðan fréttafluttning má finna athyglisvert efni. Meðal þess sem finna má er baráttusöngur. Fasta dálka eins og "Rasistavaktin" "Krepputjútt" og "Ábyrgðir". Fréttirnar eru í uppljóstrunar og baráttu stíl en allir geta skrifað við þær eigin athugasemdir, sem er skemmtilegt að sjá og lesa. Ekki er hægt að sjá neinstaðar riststjórnarstefnu aðra en þá miðillinn lofar engum íþróttafréttum.
Mér fannst lesningin öll hin hressilegasta og hafði hún meiri örvandi áhrif en morgunkaffið. Ég ráðlegg öllum að líta við á Dagblaðinu Nei og setja það í favorites möppuna sína.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 20. nóvember 2008
Og Færeyingar
Ég var í Hagkaupum í Kringlunni á laugardaginn var. Þar var talsvert af Færeyingum. Þetta fannst mér athyglisvert því þegar ég fór að ryfja það upp með sjálfum mér man ég ekki eftir neinu einasta tilviki allt mitt líf, þar sem ég hef rekist á Færeyskan ferðalang á Íslandi. Hvað þá í hópum.
![]() |
Erlendum ferðamönnum fjölgar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 18. nóvember 2008
Hvernig maður er Geir ?
Þúsundir Íslendinga kalla laugardag eftir laugardag á afsagnir. Forsætisráðherrann segist ekki sjá neitt sem "kallar" á afsagnir. Geir er greinilega ekki maður sem hlustar á fólkið í landinu.
Hvernig maður er Geir ?
![]() |
Ekkert kallar á afsagnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 14. nóvember 2008
Jökull og Móri
Þar kom að því að ég komst yfir eina flösku af nýja bjórnum frá Stykkishólmi. Bjórinn heitir Jökull og er bruggmeistarinn DALAMAÐUR, sem er frábært. Elsa Svans á heiðurinn af bragðinu af þessum bjór.
Þessi bjór er í mildari kanntinum. Ekkert afgerandi eða sérstakur en jafnvægið í honum er mjög fínt. Gæti alveg slegið í gegn. Flott hjá Elsu.
En....!!!! miðinn utan á flöskunni er sá ljótasti bjórmiði sem ég hef EVER séð. Barasta veit ekki hverjum datt svona lagað í hug.
Ég komst einnig yfir flösku af MÓRA nýrri framleiðslu frá Sunnlenska brugghúsinu í Ölvisholti. Þetta er Öl...dökkur yfirborðsgerjaður, sætur, rammur og svolítið hrár. Alveg ágætur. Og flottur bjórmiði.
En af öllum íslenskum bjórum sem ég hef smakkað (á eftir El Grillo og Gullfoss) þá er Egils Premium ennþá sá besti (Líka af Vesturlandinu). Kaldi vinnur hinsvegar mikið á.
Fimmtudagur, 13. nóvember 2008
Er gamall íslenskur heimilismatur hollur ?
Ég hef margoft heyrt fólk tala um það að illa sé komið fyrir fullt af fjölskyldum þar sem stöðugt sé lögð meiri áhersla á unnar matvörur, pasta og brauðvörur. Þessari gagnrýni fylgir gjarnan tal um óheilla þróun frá þeirri matarhefð sem var hér fyrir um 50 árum eða svo. Viðkomandi einstaklingar trúa því einnig blint að gamall íslenskur heimilismatur sé mein hollur.
Sumt að því sem við höfum vanið okkur á að borða er örugglega óhollt. En alhæfingin sem fellst í þessari gagnrýni er mikil. Sumt af gamla heimilismatnum, eru unnar vörur, sem teljast mishollar. Má þar nefna feit og reykt bjúgu, hamsatólg, kleinur og fl. Þá verður að teljast að þjóðfélagið sé mikið breytt og meginþorri fólks er ekki í þörf fyrir jafn fitumikla matvöru og áður.
Einnig má hafa í huga að margt af því sem hefur tekið við af gamla matnum er hollara. Dæmi um slíkt er t.d vítamínbætt morgunkorn í stað hafragrauts. Neysla grænmetis og ávaxta hefur minnkað neyslu á fitu.
Því segi ég nei við afturhvarfi til gamla heimilismatarins. Hinsvegar þarf að varðveita hefðina því hún er menningararfur.
Miðvikudagur, 12. nóvember 2008
Sprengjuleiðin...er hún fær ?
Eitt sinn heyrði ég að sprengjuaðferðin gæti verið leið til þess að ná fram einherjum að markmiðum sínum. Hún fellst í því að henda inn sprengju og láta hana springa, þannig að allt yrði logandi að átökum allstaðar. Út úr því kæmi oft margt gott að lokum.
Ég vona að forseti vor kasti sprengjum í þessum eina tilangi.
![]() |
Mikið fjallað um ummæli forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Ný stjórnskipan ?
Svaf ég á verðinum ? Sami forsetinn í áratug, sömu flokkarnir við stjórn um áratug. Davíð við stjórnvöldin í einn og hálfan áratug. Nei það skipti víst engu máli þótt ég hafi aldrei kosið þann mann né hans flokk. Ég fékk engu ráðið.
Nú vona allir að nýjar kosningar breyti einhverju. Og það er reyndar alveg nauðsynlegt að hafa von. En skyldi nýir ráðamenn breyta stjórnsýslunni ? Skyldi niðurstaða rannsóknar á klúðrinu leiða í sér miklar breytingar ? Alþjóðlegur dómur um kvótakerfið hefur engu breytt. Ráðleggingar hagfræðinga árum saman hafa engu breytt. Fákeppni í matvöru, flugi, lyfjasölu, byggingarvöru, olíusölu, tryggingasölu...án mikillar samkeppni er látin líðast án átölu.
Skyldi þá ný stjórnskipan taka á þessu öllu og gera þetta eins og hjá siðuðum þjóðum ....trúlegt ??....nei. Held barasta ekki.
Laugardagur, 8. nóvember 2008
Meiri arður er sjálfslagt best
Ég man ekki hvenær ég heyrði fyrst framkvæmdastjóra segja það í fjölmiðlum að hans hlutverk væri fyrst og fremst að tryggja hluthöfum fyrirtækisins arð. Það er ekki svo langt síðan, trúlega um 10 ár.
Hitt man ég vel hvað mér var brugðið við að heyra þetta. Var maðurinn snarruglaður að tala um arð og aukinn pening til þeirra sem ríkastir voru ? Að nefna hvorki starfsmenn né viðskiptamenn...bara peningagræðgina. Hann hlyti fyrr eða síðar að fá það óþvegið.
Ég ég hafði rangt fyrir mér. Fleiri og fleiri töluðu ekki um annað í fjölmiðlum. Síðar uðru til heilu fjölmiðlarnir bara til um viðskipti. Það átti að græða, ekkert að því að því þótt þeir ríkari yrðu ríkari.
Og mér fór að verða slétt sama líka. Já já bara hið besta mál. Þetta væri gangur lífsins.
Sennilega væri mér enn alveg hjartanlega sama ef þessir blessaðir menn og stjórnmálamenn sem dáðu þá...hefðu ekki brugðist.
Nú treysti ég engum nema Jóhönnu Sigurðardóttur og Ellert B. Skram.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar