Leita í fréttum mbl.is

Hvernig maður er Geir ?

Þúsundir Íslendinga kalla laugardag eftir laugardag á afsagnir.  Forsætisráðherrann segist ekki sjá neitt sem "kallar" á afsagnir.  Geir er greinilega ekki maður sem hlustar á fólkið í landinu.

Hvernig maður er Geir ?


mbl.is Ekkert kallar á afsagnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hann  virðist ekki eiga til vott af minnstu auðmýkt og gerir í því að ögra þjóðinni. Skyldi hann mæta augliti til auglitis við mörg þúsund mamnns  á fyrirhugann borgarfund í Háskólabíó og svara fyrir sig eða ætlar hann að halda áfram að tala niður til þjóðarinnar í skjóli valdsins?

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.11.2008 kl. 14:50

2 identicon

Bíddu nú við.. það mættu 2% af þjóðinni síðasta laugardag??

Ef við skoðum fjöldann sem mætir á Gay-pride og menningarnótt og 17.júní þá erum við að tala um alvöru tölur en 2% segir ekki rassgat!!!

Skúli (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 15:19

3 Smámynd: Haukur Baukur

Það voru ekki margir á fyrsta Gay-pride, og ekki heldur fyrstu menningarnóttinni.  En um leið og feimni sleppir mætir þjóðin öll!!

Haukur Baukur, 18.11.2008 kl. 15:25

4 identicon

Hversu mörg prósent þurfa að mæta til að tölurnar segi rassgat Skúli?

Karma (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 15:28

5 identicon

Var þetta ekki þriðji eða fjórði laugardagurinn?

Ég er ekki að segja að það séu engin tilefni til afsagnar, ég læt það liggja milli hluta en að segja að þessi laugardagsmótmæli rökstyðji það finnst mér bara brandari.

Skúli (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 15:30

6 identicon

Ertu að meina þetta Karma? Finnst þér skrítið að ég fallist ekki á það að þegar 2% þjóðarinnar mæti á mótmæli sem hefur verið talað um alla vikunna að allir ættu að mæta á sé ekki réttlæting á að ríkisstjórnin íhugi afsögn?

Það er nú bara alveg ótrúlegt og sýnir frekar styrk stjórnarinnar að þegar mestu erfiðleikar sögu lýðveldisins blasa við og augljóst að þar hafa mannleg mistök ráðið miklu að ekki mæti fleiri en þetta að mótmæla.

En ég endurtek, ég er á því að margir ættu að drullast til að taka pokann sinn en ekki á grundvelli "fjöldamótmæla"!!

Skúli (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 15:35

7 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Ég get ekki tekið undir með þér Skúli.   Fólk leggur ekki í vana sinn að mæta á laugardögum í þúsundatali til að mótmæla forsætisráðherra sínum og ríkistjórn.

Geir er greinilega ekki maður til að taka slíkri áskorun.  Þannig maður er Geir allavega.  Það er ljóst.

kv.

Eyjólfur Sturlaugsson, 18.11.2008 kl. 15:57

8 identicon

Þúgerir lítið úr mótmælum þar sem "bara" 8000 manns mótmæltu (sem er reyndar nær 3%). Það eru 5% íbúa höfuðborgarsvæðisins. Auk þess var mótmælt annars staðar en á Austurvelli.

Ég var að velta því fyrir mér hversu margir þurfa að mótmæla til þess að þú takir mark á þeim.

Ráðamenn eiga ekki að segja af sér á grundvelli fjöldamótmæla. Mótmælendur endurspegla einfaldlega þá skoðun þjóðarinnar að breytinga sé þörf.

Karma (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 205883

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband