Leita í fréttum mbl.is

Rikki á afmæli í dag

DSC03410Í dag (22.07.) á Rikki afmæli.  Orðinn 9 ára gamall.  Birna var að koma frá Tenerife í dag svo Gugga sló í nokkrar tertur í tilefni afmælisins og heimkomu Birnu.  Tengdó, frændfólk og langamma litu inn í kaffi seinnipartinn.

Annars var afmælisveislan hans á fimmtudaginn var meðan enn var 20 stiga hiti og sól á Selfossi.  Í afmælisveisluna mættu 13 gestir og höfðu með sér sundföt því hápunktur veislunnar var vatnsslagur í garðinum.  Notaðar voru vatnsblöðrur og garðúðarar.  Tiltækið heppnaðist vel og afmælið tókst með ágætum.

DSC00347Á efri myndinni er Rikki í dýragarðinum í Árhúsum, en þar var hann fyrr í sumar.  Hin myndin er af afmælisgestunum í blíðunni rétt áður en vatnsslagurinn mikli hófst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Til hamingju með Rikka og Birna komin heim.

Kveðja Guðrún Ing

Aprílrós, 23.7.2008 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 205970

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband