Leita í fréttum mbl.is

Ekki bara börn ...ekki bara tölvuleikir

Tölvuleikir eru yndislegt fyrirbæri.   Margir þeirra eru mjög uppbyggjandi og fræðandi og hafa jákvæð  og góð áhrifá þá sem spila þá.   En þar sem þeir eru svona áhrifamiklir og skemmtilegir vilja gjarnan margir vera lengi í þeim...og því miður missa alltof margir stjórn á spilum tölvuleikja.

Ég vek athygli á að ekki er eingöngu um að ræða misnotkun á spilum tölvuleikja að ræða heldur líka misnotkun á "að vera í tölvu" ; t.d að vera lon og don á MSN, sem er líka algengt vandamál.  Ég veit dæmi þess að unglingur hafi verið allt upp undir 40 tíma á MSN á viku með skóla.

Þá bendi ég á að þetta vandamál einskorðast síður en svo við börn.  Fullorðnir einstaklingar hafa í auknum mæli misst algjörlega tök á tilverunni vegna tölvufíknar.  Og gleymum því ekki að í mörgum tilvikum, meðan börnin leika sér í tölvunni, eru foreldrar þeirra líka í tölvu í öðru herbergi.  Kannski að vafra um á Internetinu, vinna, sýsla með myndir eða skoða tölvupóstinn sinn.  Þannig að fyrirmynd barnanna er meirra og meira í þá áttina að dvelja með tækjum fremur en fólki.


mbl.is Skrópa vegna tölvuleikja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður punktur, þetta eru nefnilega ekki bara tölvuleikir og heimskulegt að kenna þeim um þetta altsaman, þó þeir eigi vissulega hlut í þessu. En ef það er samt einhver leikur sem virðist vera að valda verstu fíkninni þá er það sýndarveruleikahermirinn World of Warcraft, það eru allir að spila þennan leik og spila hann mikið. 

Er ekki hægt að benda á þróunina í samfélaginu þar sem báðir foreldrar vinna alla daga vikunar 12 tíma á dag og geta ekki verið hjá börnunum og láta því þau þurfa að njóta gæslu sjónvarps eða tölvuspila eigi stóran part í þessu?

Úlfar (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 11:31

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Þetta er mikið rétt hjá þér Eyjólfur, fullorðinir eru í auknum mæli meira og meira í tölvum.  Það læra börnin sem fyrir þeim er haft segir á góðum stað.  En þetta er vaxandi vandamál með tölvufíkn og eflaust eiga meðferðastofnanir eftir að finna meira fyrir þessu á næstu misserum.

Sædís Ósk Harðardóttir, 22.11.2007 kl. 12:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 205957

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband