Sunnudagur, 21. október 2007
Senn kemur vetur
Vetrarmisseri hefst nú 21. til 27. október, en 10. til 16. október i gamla stíl fyrir 1700. Eitthvert hátíðahald virðist hafa tíðkast um veturnætur í heiðnum sið norrænum, og á miðöldum voru veislur almennar í vetrarbyrjun. Einkum er algengt að þá sé efnt til brúðkaups, enda var þá mest til af nýju kjöti. Tilhald í vetrarbyrjun kann með eflingu kristni að hafa verið fært til allraheilagramessu skömmu síðar. Slíkur hátíðaflutningur kann að vera orsök óvissu um tímasetningu "sviðamessunnar" þegar svið voru etin nýsviðin. Á síðari öldum hefur við vetrarbyrjun þótt gott að marka vetrarveður af hegðun músa, fugla og fleiri dýra, og snjóþyngsli meðal annars af berjasprettu sumarið áður. Sumir spáðu í stjörnur vetrarbrautarinnar, og algengt var að kanna veturhorfur með því að skera í milta af kind eða stórgrip.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson, 1996
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.3.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 206334
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.