Þriðjudagur, 16. október 2007
Bónus dottinn af stalli sínum
Nú lýsa Bónusmenn verðkönnunum stríð á hendur. Þær sýna nefnilega ekki lengur Bónus með lægsta matvöruverðið. Bónusmenn reyna gera verðkannanir ASÍ tortryggilegar og til að bíta höfuðið af skömminni á ekki að taka þátt í fleiri verðkönnunum.
Eina leiðin til þess að átta sig á því að Bónus sé með lægsta matvöruverðið er því að trúa algjörlega auglýsingum þeirra í framtíðinni.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er nokkuð síðan ég hætti að nenna að versla í Bónus. Ég er svo sérvitur að ýmsar vörur sem ég vil fást ekki þar, auk þess sem verslanir Bónuss eru sumar hverjar svo þröngar að það er ekki nokkur leið að snúa við ef maður gengur óvart framhjá því sem maður ætlaði að kaupa. Bónus hefur stundum verið orðaður við heldur ókristilega viðskiptahætti, m.a. gagnvart kartöflubændum, og ég er nú svo skrýtinn að ég er alveg til í að borga aðeins meira fyrir kartöflurnar ef ég er nokkuð viss um að bændurnir fái a.m.k. fyrir kostnaði.
Helgi Már Barðason, 16.10.2007 kl. 21:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.