Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Fimmtudagur, 23. nóvember 2006
Að vera skólastjóri
Já ég er skólastjóri. Stundum hitti ég kennara sem langar alveg óskaplega mikið til þessað verða skólastjórar og vinna leynt og ljóst að ná þessu markmiði sínu. En skólastjórar eru frekar fáir, miðað við fjölda kennara svo margir ná aldrei þessu takmarki sínu.
Ég hitti líka fólk þótt fátítt sé, sem skilur ekkert í því að ég vilji vinna þessa vinnu. Nefna öll þessi agamál, starfsmannamál og jafnvel einhver foreldravandamál.
Þegar vel gengur er gaman að vera skólastjóri og þá ekki síst í stórum skóla. En stundum er þetta starf einhvernveginn svo ótrúlega erfitt að maður kemst ekki hjá því að spyrja sig hvort það sé þess virði.
Mánudagur, 20. nóvember 2006
Stulli ber trumbur
Það er skammt stórra högga á milli í bókstaflegri merkingu. Eftir að Rikki hafði sýnt fiðlutakta sína tóku Stulli og Árni góða rispu saman á trommunum. Einbeitingin var mikil og þeir sköpuðu þarna heilmikið af góðum hávaða. Hægt er að hlusta og sjá þá hér á síðunni.
Myndband með þeim Stulla og Árna er hér til hliðar fyrir neðan skoðanakönnunina.
Miðvikudagur, 15. nóvember 2006
Fyrsti tónfundurinn hans Rikka
Rikki byrjaði á læra á fiðlu í september og hefur þvi verið í rúma tvo mánuði að læra á þetta merkilega hljóðfæri. Rikka kveið nú talsvert fyrir þessu, enda hafði hann aldrei spilað fyrir aðra áheyrendur en heimilisfólkið. En þessi frammistaða Rikka var tekin upp og fylgir hér með.
Sjá fyrir neðan skoðanakönnunina hér til hliðar er myndbandið.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. nóvember 2006
Læknirinn sagði...
Ég hef undanfarin dægur fundið fyrir einkennilegum seiðingi í hægra gagnauganu. Líkt og æðarnar væru að slást sundur og saman og fylgdi dofi út á kinn og afturfyrir eyru. Heldur hefur þetta verið að ágerast og í dag fann ég fyrir léttum hausverk og helludoða á mestöllum hægri helmingi höfuðsins.
Það var því ekki seinna vænna en að leita lækis áður en ég fengi heilablóðfall eða því nú verra. Læknirinn skoðaði mig ekki mikið. Mældi blóðþrýstingi, og potaði í mig á nokkrum stöðum í baki, hálsi og höfði. Svo sagði hann að ég væri með álagsverk, trúlega vegna andlegrar áreynslu. Ef ég næði að slaka meira á hyrfi verkurinn.
Hann bauðst einnig til að lækna þetta í einni svipan með nálastungu, sem ég þáði. Eftir að heim kom hef ég leitað logandi ljósi að leiðum til að slaka á. Og þar er ég núna í ferlinu.
Laugardagur, 11. nóvember 2006
Hvert ætti að fara ?
Jæja nú líður óðum að því að fjölskyldan þarf að fara að ákveða sig hvert hún ætlar næsta sumar. Yfirborð ferðasjóðsins hækkar jafnt og þétt og í augsýn að fara með alla fjölskyldumeðlimina eitthvað erlendis.
Síðustu tvö skiptin var farið á Spán, svo nú er kannski kominn tími til að skoða eitthvað annað. Gardavatnið á Ítalíu var nú lengst efst á óskaslistanum en nú er Tyrkland og Krít að koma inn í myndina. Svo má ekki gleyma því að alltaf þegar við höfum ákveðið að fara til einhvers ákveðins lands...höfum við alltaf endað í einhverju öðru landi.
Þannig að það er trúlega ekkert að marka þessi áform og óskir okkar hingað til.
Miðvikudagur, 8. nóvember 2006
Að hræðast Múslima !
Guðjón Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins mun hafa sagt í sjónavarpsviðtali á dögunum að hann óttaðist múslima. Hafa ýmsir bent á að þetta séu hreinir kynþáttafordómar.
Ég held að afar margir Íslendingar séu á varðbergi gagnvart múslimum. Ég er veit fyrir víst um fólk, sem fékk nýja nágranna þar sem fjölskyldufaðirinn var múslimi af arabísku bergi brotinn. Þetta friðelskandi og grandvara fólk varð talsvert óöruggt gagnvart hinu nýju nágrönnum. Þau voru áhyggjufull en áttu mjög erfitt með að útskýra hversvegna. Ég held að þessi ómeðvitaði ótti sé eitthvað sem fólk feli þegar hann kemur upp á yfirborðið. Fólk vill síst af öllu vera orið sekt um kynþáttafordóma.
Þegar Guðjón Kristjánsson segist óttast muslima er hann eflaust að segja það sem margir hugsa en þora ekki að segja. Umræða um múslima og nýbúa getur orðið til að upplýsa fólk og þá dregur úr þeirri hættu að fólk finni til öryggisleysis eða ótta gagnvart ákveðnum hópum nýbúa.
Íslendingur sem ekki kann ensku en þarf að gera sig skiljanlegan á einhvern hátt þegar hann pantar mat á matsölustað.....má hann ekki fyllast öryggisleysi án þess að það séu kynþáttafordómar ?
Mánudagur, 6. nóvember 2006
Umræða ekki fordómar
Þegar þingmaðurinn Magnús hóf umræðu um að við Íslendingar gætum stjórnað betur streymi og viðtöku á útlendu vinnuafli til landsins, stakk hann á stórt kýli. Ég er einn þeirra sem tel að þessi mál verðskuldi meiri umræðu en verið hefur, ekki síst til þess að málefni þessa fólks séu ekki í þeim ólestri sem þau virðast vera. T.d virðist það kosta alltof mikið fyrir fólkið að fara og verða sér úti um íslensku kennslu. Þá virðist það vera alltof algengt að vinnuveitendur ætli að sjá um að fólkið fái kennitölu hjá Hagstofunni, en annaðhvort gleymi því eða dregur það á langinn...með þeim afleiðingum að börn þessa fólks kemst ekki í skóla strax að hausti.
Mér fannst Magnús vera varfærinn í umræðu sinni enda málið vandmeðfarið. Minnsta ónærgætni er strax túlkuð sem fordómar. Frjálslyndi flokkurinn á heiður skilið fyrir að hefja þessa umræðu. Við Íslendingarnir sem viljum þessu fólki vel, verðum að vera skipulagðari í móttöku þess. Annars fer öllum að líða illa yfir þessu og þá er stutt í fordómana.
Ég hef hingað til ekki talið mig vera fordómafullan hvað þetta varðar. Mér hefur samt ekki tekist að venjast því að þurfa að kunna erlend tungumál til að fá afgreiðslu í verslunum.
Þriðjudagur, 31. október 2006
Það eru ennþá ber !
Ekki hefði ég trúað því að Krækiberin væru enn æt. Fór með Kátu upp í Ingólfsfjall í gönguferð nú í dag. Þegar ég var búinn að ganga framhjá nokkrum þéttsetnum krækilyngum af svörtum og gljáandi berjum, gat ég ekki stillt mig lengur og ákvað að smakka á berjunum. Og viti menn stór hluti af þeim berjum, sem enn eru á lyngum, eru ófrosin. Stærri berin eru reyndar frekar vatnskennd, en þau minni eru bara ferlega góð.
Ef ég fer aftur á morgun þá er það í fyrsta skipti á ævinni sem ég fer í berjamó í Nóvember.
Laugardagur, 28. október 2006
Þriggja sjónarhorna sjónvarp
Nú hefur Sharp þróað sjónvarpstæki með nýrri skjágerð, þar sem hægt er að horfa á þrjár sjónvarpsútsendingar í einu. Það er einfaldlega háð því frá hvaða sjónarhorni horft er á skjáinn hvað sérst; hvort maður horfir beint framan á hann eða frá hliðunum. Til dæmis getur sá sem horfir beint á skjáinn horft á aðra sjónvarpsstöð en sá sem situr til hliðar við hann. Þetta er t.d talið hentugt í bifreið, en þar þarf bílstjórinn aðrar upplýsingar af skjánum en farþeginn.
Alveg hreint heillandi fyrirbrigði....en hvernig fer með hljóðið með myndefninu ??
Mánudagur, 23. október 2006
Why is Big Ben so called ?
Although the name "Big Ben" is commonly used to refer to the famous clock at the top of St. Stephen´s Tower of the Houses fo Parliament in London, the nickname is more correctly applied to the bell within the tower. It was named after Sir Benjamin Hall, who was the Chief Commissioner of Works at the time.
The orginal bell, cast in 1856 and weighing some 15 tons, was being tested in Palace Yard when it developed serious cracks and had to be scrapped. The new bell, weighing a mere 13 tons, was installed in 1858. There are also four Quarter bells in the clock tower weighing between 4 tons and 1 ton.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar