Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Mánudagur, 26. janúar 2009
Afmælismót JSÍ
Í gær fórum við Gugga og Rikki með Stulla á afmælismót Júdosambands Íslands. Þetta er næststærsta júdómót ársins og voru keppendur 110 talsins. Stulli keppti bæði í sínum aldursflokki og svo aldursflokknum 15 - 19 ára.
Það er skemmst frá því að segja að Stulla gekk mjög vel og vann flokkinn sinn og lenti í mikilli keppni um 1. - 3. sætið í eldri flokknum. Eftir aukakeppni þriggja efstu manna lenti Stulli þar í öðru sæti. Hann glímdi alls 7 glimur og tapaði tveimur, báðum í eldri flokknum.
Hér til hliðar er mynd af Gullhafanum.
Laugardagur, 24. janúar 2009
Áfram Hörður Torfason !
Eftirfarandi blog birtist hjá þekktum og mikið lesnum bloggara og er ég því í flestu mjög sammála.
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/781973/
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. janúar 2009
Gott að ekki tókst að einkavæða RÚV
Nú þessa dagana virðist RÚV bera höfuð og herðar yfir fréttafluttning fjölmiðla af málum líðandi stundar. Hugsið ykkur ef það sama gerðist þar og hefur nú gerst á Stöð 2; ....Kastljósinu breytt í glansþátt.
Það er mjög fróðlegt að fylgjast með fréttafluttningi af mótmælum, t.d fjölda mótmælenda. Iðulega eru þeir fæstir hjá mbl.is og flestir hjá dv.is. Vísir.is og Rúv hafa verið þarna á milli.
Vonandi getur einhver fréttastof séð hag sinn í því að ráða þessi ágætu hjón til sín.
![]() |
Frjáls undan oki auðjöfra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Pulsur
Getur verið að pulsur séu hreint ekkert góðar í maga ? Mér hefur yfirleitt þótt pulsur góðar en hef minnkað neyslu þeirra mjög vegna þess að ég hef það á tilfinningunni að þær séu meinóhollar. Maður ropar einhverju pulsulofti lengi á eftir þannig að maður angar eins og pulsuvagn.
Hvernig er hægt að hafa þetta sem þjóðarétt ?
Sunnudagur, 18. janúar 2009
Friðsæll sunnudagur og heitt kaffi.
Í dag hefur verið bjart og rólegt veður með snjóföl yfir öllu. Við Gugga erum búin að viðra hundinn í dag og njóta áhrifanna.
En það er sumstaðar hálka og ég held að ég verði að punga út fyrir minnsa kosti tveimur nýjum vetradekkjum - þessi eru að verða ágætlega nýtt held ég.
Miðvikudagur, 14. janúar 2009
Kristján Möller svíkur landsbyggðina
Kristján Möller samgönguráðherra hefur nú leyft lokun á pósthúsinu í Króksfjarðarnesi. Óskapleg er þetta slappur ráðherra. Því verður lokað um næstu mánaðarmót. Þá verða 74 kílómetrar fyrir íbúa á Reykhólum á næsta pósthús.
Hér er slóð á fréttina eins og hún birtist á vef Reykhóla http://www.reykholar.is/frettir/
Barátta heimamanna virðist ekki ætla að breyta miklu...þeir eiga bara eftir lögsókn. Eg vona svo að það beri árangur.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 13. janúar 2009
Látin móðir fæðir barn
Laugardagur, 10. janúar 2009
Bara búinn að taka niður skrautið
Þetta var snörp viðureign og erfið. Sex kassar. Fjölgar alltaf kössunum þótt húsið sé alltaf jafnstórt.
Miðvikudagur, 7. janúar 2009
Vaknaði eins og venjulega
Þá er maður farinn að sofa og vakna eins og venjulegur maður aftur eftir gott jólafrí. Framundan er seinni námsönnin í Háskólanum. Er aðeins byrjaður að lesa.
Það er aldrei gaman að pakka jólaskrauti niður í kassana aftur en það er jú eitt af því sem þarf að gerast næstu daga. Held að þetta séu fyrstu jólin sem ég sé ekki fram á það að þurfa að bæta við kassa með jólaskrauti í geymsluna.
Ég er nokkuð ánægður með það að þetta eru önnur jólin í röð þar sem engin breyting verður þyngd minni yfir hátíðirnar.
Fimmtudagur, 1. janúar 2009
Gleðilegt nýtt ár
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar