Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Föstudagur, 4. júní 2010
Skemmtilegt myndband frá Morrocó
Fimmtudagur, 3. júní 2010
Þetta kemur manni bara í gott skap
Mánudagur, 31. maí 2010
Bláu fjöllin
Fimmtudagur, 27. maí 2010
Hvammsfjörður
Hann er saltur
Hann er grunnur
Hann er kaldur
Hann er stórkostlegur
Mánudagur, 24. maí 2010
Lélegt úthald á hundunum mínum
Fór með hundana mína í þriggja tíma fjallgöngu á Ingólfsfjall í gærmorgun. Bæði Erpur og Káta voru yfirsig spennt. Á uppleið hálf sprungu hundarnir báðir og dröttuðst eftir það rétt á hæla mér upp fjallið og um það þegar upp var komið. Reyndist ég bumbumaðurinn hafa meira úthald en hundarnir þegar til kom. Káta er reyndar vambmikil og þung á sér en Erpur léttur og ungur...svo það kom allavega á óvart hvað hann er í lélegu formi.
Glæsilegt veður hér á Selfossi í síðustu daga og dag. 18 - 19 stiga hiti og nánast logn með blessaðir sólinni.
Laugardagur, 22. maí 2010
Er á sama máli - kjósendur grínast ekki í skoðanakönnunum ...þeir gefa skilaboð
![]() |
Stolt af því að vera í baráttusæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 21. maí 2010
Selfoss yfir Hvítasunnu
Miðvikudagur, 19. maí 2010
Starfi okkar er ærinn
Menntun er ferli þar sem við lærum að verða arkitektar eigin reynslu
og þannig lærum við að skapa okkur sjálf (Elliott Eisner, 2002).
Mánudagur, 17. maí 2010
Kartöflurnar komnar niður
Okkur tókst að setja niður kartöflur í gær þrátt fyrir talsverðan kulda. Byrjuðum á því að setja niður í garðholu á Brunná og svo í aðra aðeins stærri garð hér í Stekkjarhvamminum í Búðardal. Það eru nú orðin líklega þrjú eða fjögur ár síðan ég setti síðast niður kartöflur, en þetta hefur næstum því verið fastur liður hjá mér frá unglingsárum; að rækta kartöflur.
Kartöflur eru annars alltaf sífellt minna og minna borðaðar á mínum heimili. Dökkt pasta og hrísgrjón hafa tekið mikið við sem meðlæti með mat.
Fimmtudagur, 13. maí 2010
Silfur á Norðurlandamótinu í Júdó
Sturlaugur Eyjólfsson hinn yngri stóð sig afar vel á Norðurlandamótinu í Júdó sem fram fór síðastliðinn sunnudag. Stulli krækti þar í annað sætið eftir harða baráttu. Allir á verðlaunapallinum voru með jafnmarga vinninga þannig að stig og innbyrðisviðureignir giltu. Þeir sem lentu í 1. og 3. sæti eru báðir tveimur árum eldri. Þetta er fyrst alþjóðlega mótið sem Stulli tekur þátt í.
Hér á myndinni má sjá Stulla með silfrið sitt. Það var Hans Rúnar Snorrason sem tók myndna, því ég hafði aldrei þessu vant ekki myndavél með mér.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 206440
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar