Miðvikudagur, 10. ágúst 2011
Hafragil
Í meira en 40 ár hef ég ekið framhjá Hafragili á Svínadal. Undanfarin 20 ár hef ég haft áform um að skoða gilið, enda sögufrægt og fallegt að sjá. Það var svo á laugardaginn var sem ég lét verða af þessu.
Við Káta skoðuðum gilið og gengum inn í það neðanvert. Þetta er afar fallegt gil og leynir mjög á sér miðað við hvað maður sér frá veginum hinum megin ár.
Síðan gengum við með brúninni sunnanveðri nokkurn spöl en sáum fljótt að gilið snarbeygir til norðurs. Bæði var gilið óendanlegt að sjá og Káta farin að smala allstórt grösugt svæði að við ákváðum að fara ekki lengra. Við fórum því yfir gilið og lentum í góðu fjallagrasalandi norðanmegin.
Ég var auðvitað með grasapoka á mér.
Laugardagur, 6. ágúst 2011
Freyja komin út
Þá er nýja búnaðarblaðið hans nafna míns frá Ásgarði og fleiri komið út. Mér líst bara vel á þetta framtak hjá þeim. Í fyrsta blaðinu kennir margra grasa en greinin um geymslu á kartöflum höfðaði þó mest til mín.
Lítið endilega á blaðið : www.sjarminn.is/freyja/Freyja012011.pdf
Fimmtudagur, 4. ágúst 2011
Öfgarnar finnast allstaðar er það ekki ?
Ég hugsa að Norðmönnum hafi ekki dottið í hug að mikil hætta fælist í öfgafullum hægrisinnuðum skoðunum. Eftir hryðuverkin sjá Norðmenn nú hlutina í öðru ljósi og kappkosta að mæta öfgaskoðunum með auknu lýðræði og opnu víðsýnu hugarfari. Það er því ekki órökrétt að fylgi við aukna alþjóðlega samvinnu aukist.
Hér á moggablogginu er nokkuð algengt, af þeim sem eru á móti ESB, að nota neikvæð og jafnvel særandi orð um það sem útlent er. Dregin er upp sú mynd að það sé ógn af erlendum áhrifum. Þeir sem aðhyllast ESB eru úthrópaðir og settir í flokk föðurlandssvikara. Það sem er íslenskt er álitið best.
Þannig umræða angar ekki af umburðarlyndi gagnvart fólki né víðsýnu hugarfari. Hún er einkennist af þjóðernisrembingi og niðrandi hugarfari. Ég hygg að slíkt hugarfar og orðræða njóti ekki vinsælda til lengdar í menntuðum lýðræðisþjóðfélögum og en síður eftir hægrisinnuð hryðuverk.
Breivik hefur áhrif á skoðanir á ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 2. ágúst 2011
Það elska allir Google
Google+ vex á ógnarhraða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 30. júlí 2011
Sólberin á góðu róli
Miðvikudagur, 27. júlí 2011
Berjavertíðin að hefjast
Í Vopnafirði rákumst við á ansi ætileg og glæsileg krækiber. Fundum þau einnig stór og svört í Borgarfirði eystri. Svo þar hófs berjaátið þetta árið. Á vefsíðunni Berjavinir.com er ekkert lífsmark lengur að sjá. Því miður. En þar er að finna all merkilega samantekt á innfluttningi á bláberjum, sem ég læt fylgja hér með í upphafi berjavertíðar.
Athyglisvert er að skoða hversu mikið af bláberjum er flutt inn til Íslands. Árið 2009 var flutt inn til landsins, 86407 kíló (86 tonn) af bláberjum. Það vekur einnig athygli okkar að yfir 60 tonn af þessu magni streymir til landsins á aðal berjatímanum þ.e. frá júní fram í september. Þar af um 38 tonn í júlí og ágúst. Fyrir þetta magn greiða innflytjendur yfir 122 miljónir (CIF). Reikna má með að neytendur greiði allt að fjórfalda þessa upphæð. Á sama tíma fara okkar eigin ber til spillis en talið er að eingöngu 3% af villtum berjum í íslenskri náttúru séu tínd. Er ekki kominn tími til að taka höndum saman, nýta berin okkar og spara þannig stórar upphæðir?
Þriðjudagur, 26. júlí 2011
Hringnum lokað
Mánudagur, 18. júlí 2011
Inghóll
Gamli Inghóll var skemmtistaður níunda áratugarins á Selfossi. Þessi ágæta mynd er tekin þar á tvítugsafmælinu mínu. Miðað við hvað erfitt var á þessum tíma að fá afrit af myndum er ég drullufegin að eiga eintak af þessari - því myndin er alveg yndisleg.
Ég man alls ekki hver tók myndavélina með ... En með á þessu djammi var Fríða systir Guggu með Þórhildi tengdamömmu sinni og Gulla tengdamamma mín fylgdi dóttur sinni.
Já já þá fóru sko tengdamömmurnar með á djammið !
Fimmtudagur, 14. júlí 2011
Vinkonur
Þessar tvær stúdínur er flottar saman. Myndin er tekin á Hrísateignum á útskriftardeginum þeirra. Gæti ekki passað að það sé árið 1986 ?
Fatnaðurinn er nánast eins; glansandi blússa með kragan útyfir jakkann og ermarnar brettar upp á jakkann, þó í mismunandi litum. Hrágreiðslan er einnig mjög lík; blásið og skipt fyrir miðju og svo húfunar eins.
Gæti hvarflað að einhverjum að þetta væru óaðskiljanlegar vinkonur eða systur jafnvel.
Þriðjudagur, 12. júlí 2011
Dalamenn gjalda fyrir niðurskurð Ögmundar
Við Dalamenn verðum að búa við að hafa lögreglustöð án lögreglu. Um síðustu áramót var staða lögreglumannsins hér lögð niður þrátt fyrir kröftug mótmæli heimamanna.
Það leið því ósköp langur tími þangað til lögregla kom á staðinn eftir þessa heiftalegu árás og hóf leit að árásarmanninum. Hann hafði allan heimsins tíma til að koma sér undan og láta sig hverfa.
Öryggistilfinningin er sannarlega ekki eins og hún var hér í Dölum.
Dalamenn gjalda fyrir með ömurlegum atburðum.
Árásarmaðurinn í Samkaupum ófundinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar