Fimmtudagur, 4. júní 2009
Dugar þetta ?
Er þetta ekki grunnsamlega lítill munur ? Þurfum við ekki miklu meiri jákvæðan vöruskiptajöfnuð ef við ætlum að greiða upp erlendar skuldir ? Hefði haldið að þessi tala ætti að vera svona þrisvar sinnum hærri.
Hversu mikill ætli lekinn á gjaldeyrishöftunum sé í rauninni ? Varla er gott að stjórna landinu ef enginn veit hvert útfluttningsverðmætið er í rauninni.
![]() |
Afgangur af vöruskiptum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 1. júní 2009
Nokkrar vormyndir komnar inn
Laugardagur, 30. maí 2009
Nordia 2009
Við Rikki skruppum á Nordia 2009 frímerkjasýninguna (www.nordia2009.is )í Hafnarfirði. Það er reyndar orðið nokkuð langt síðan ég fór á slíka sýningu. En þetta var gaman. Var þó fyrir vonbrigðum með hvað fáir voru með þematendar uppsetningar eða aðeins sjö stykki.
Rikki var eina barnið á staðnum og aðeins örfáar konur voru á staðnum. Af þessu má draga þá ályktun að frímerkjasöfnun sé fyrst og fremst iðkuð af eldri karlmönnum.
Föstudagur, 29. maí 2009
Þarf ekki fjárfesta til
Ég er líka á þessari skoðun. Finn það algjörlega á mér að samdráttarskeiðið sé á enda. Það endar á Íslandi kl. 12.46 18. júní og hagvöxtur hefst 14. april 2010.
Það þarf ekki fjárfesta til að spá þessu.
![]() |
Hlutabréf hækka á Wall Street |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. maí 2009
Skólaslit í Tjarnarlundi
Skólaslit voru í Grunnskólanum Tjarnarlaundi í gær. Þetta voru síðustu skólaslit skólans því hann sameinast öðrum skólum í sumar í nýja skólastofnun. Skólinn var stofnaður fyrir níu árum þegar skólahald á Laugum í Sælingsdal var lagt niður. Nemendur hafa verið í kringum 20 í 1. - 10. bekk.
Athöfnin í gær var einkar falleg og hlýleg. Hún var og vel sótt miðað við stærð skólans.
Laugardagur, 23. maí 2009
Amma
Amma Silla lenti í því í gær að hurð skall á hana í gegnumtrekki. Afleiðingarnar urðu upphandleggsbrot. Eftir að hafa verð flutt á sjúkrahúsið hér á Selfossi var hún flutt á slysadeildina í Fossvoginum. Þar átti að gera aðgerð á handleggnum um kvöldið. Svo fór þó ekki.
Amma komst ekki að á skurðstofu fyrr en rúmum sólarhring eftir að hún brotnaði. Lá bara á verkjalyfjum á meðan og beið og beið og beið.
Föstudagur, 22. maí 2009
Frjálshyggjufélagið - trúarhópur ?
Það er mjög fróðlegt að vafra um heimsíðu Frjálshyggjufélagsins http://www.frjalshyggja.is/ og þeirra slóðir. Svo virðist af því sem kemur frá félaginu um þessar mundir að fólk virðist gjörsamlega blint á hvernig frjálshyggjan hefur misboðið heimsbyggðinni undanfarin ár. Öllu snúið upp í að Ríkinu sé um að kenna hvernig málin standa.
Þetta minnir á öfgasinnaðan sértrúarflokk. Hvernig verður fólk svona ??
Þriðjudagur, 19. maí 2009
Sektir
Ég er búinn að vera á ferðinni á milli Búðardals og Selfoss síðustu daga. Á einhvern óskiljanlegan hátt hefur mér tekist að safna upp hraðasektum á þessum dögum. Kominn með þrjár. Eftirlitsmyndavélar hafa greint ökutæki mitt á 96 km hraða tvisvar sinnum og einu sinni á 99 km hraða. Kominn yfir 20.000 kr samtals.
Myndavélarnar hafa sín áhrif. Ég er orðinn logandi hræddur við þessi tæki og silast nú um á 81 km hraða(til að vera öruggur) og skima áhyggufullur í allar áttir eftir þeim.
Miðvikudagur, 13. maí 2009
Kominn vestur
Jæja þá er ég byrjaður að undirbúa skólahald í Dölum fyrir skólaárið 2009 - 2010. Er kominn með vinnuaðstöðu í stjórnsýsluhúsinu og gisti á Brunná. Skila síðasta verkefninu á mánudag í Háskólanum.
Gott veður í Dölum þessa stundina.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 10. maí 2009
Arnarhreiðrið
Reykhólamenn hafa nú komið vefmyndavél fyrir við eitt af fáum arnarhreiðrum landsins og senda þaðan út dag og nótt. Þar er hægt að fylgjast með össunni liggja á eggjum sínum.
Til að komast á slóðina er best að fara inn á www.reykholar.is og þar til hliðar vinstra megin er borði sem stendur á "Arnarsetrið". Ef smellt er á hann kemur upp rammi með áletrunni "no image", hún hverfur og hreiðrið birtist.
Frábært framtak hjá Reykhólamönnum !
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar