Leita í fréttum mbl.is

Margt að gerast í Dölum

Þessi helgi er viðburðarrík í Dölum.  Í dag kom forsetinn í heimsókn í Auðarskóla og heilsaði upp á starfsfólk og nemendur.  Þá voru einnig hljómleikar í skólanum í dag, en FM Belfast tróð upp í hálftíma.  Svo merkilegt sem það kann nú að vera þá voru nemendur jafnspenntir fyrir því að fá forsetann í heimsókn og að fá fræga hljómsveit.  Bæði forsetinn og hljómsveitin stóðu vel undir væntingum.

Nú um helgina er Vetrarfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dölum.  Þetta er mikil og metnaðarfull dagsrká og m.a eru rokktónleikar.  Sjá dagskrá hér: http://dalir.is/stjornsysla/frettir/nr/93198/


Erfið staða hjá biskupi

Mér finnst biskup hafa leyst vel úr erfiðri stöðu hjá Selfosssöfnuðinum.  Hann er klofinn í afstöðu sinni.  Mörgum þykir vænt um séra Gunnar og hafa bara gott eitt af honum að segja meðan enn aðrir hafa misst traust sitt á honum.

Ég er voðalega hræddur um að ef séra Gunnar hefði snúið aftur eins og hann vildi gjarnan, hefðu viðtökurnar verið mjög blandnar og um síðir aukið mjög á deilur í söfnuðinum.  Einnig tel ég fullvíst að fjölmiðlar myndu standa stöðugt á hliðarlínunni, fylgjast grant með og jafnvel veiða ýmislegt og birta.

Ég held að biskup hafi afstýrt stórslysi og hugsanlega ekki síst fyrir síra Gunnar.


mbl.is Kirkjan sé örugg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svínaflensa eða ekki Svínaflensa ?

Nú er Svínaflensan farin á mikin skrið.  Ekki er hægt lengur að anna sýnatöku og af þeim sýnum sem tekin eru af fólki eru 90 % jákvæð.  Því þurfa læknar að reyna að meta út frá lýsingum og athugunum hverjir eru með Svínaflensu og hverjir eru með eitthvað annað.  Sökum þessa er trúlega  fjöldi fólks meðhöndlaður eins og um Svínaflensu væri að ræða þótt þeir séu það alls ekki.  Það hefur ýmislegt í för með sér:

a) Óþægileg skilyrði til að takmarka smit. T.d að þeim er ráðlagt m.a að vera í 7 daga heima þótt þeir séu bara orðnir góðir eftir þrjá til fjóra daga og eru þar með lengur frá vinnu en nauðsynlegt er.

b) Þeir sem eru greindir með Svínflensu fá extra áhyggjur og aðstandendur þeirra líka og margir þeirra umgangast þann sjúka í meiri fjarlægð.

c) Ef einhver var eftir allt ekki með Svínflensu...getur sá hinn sami  fengið hana síðar og þarf að endurtaka allt ferlið.

Bagalegt og svolítið skrýtið að ekki skyldi vera  lögð meiri áhersla á að auka getu heilbrigðisþjónustunnar til að greina Svínaflensu.


Ný fréttaveita

Fréttaveitur á Netinu hafa verið að skjóta upp kollinum og veita hefðbundnum fréttastofum sífellt meiri samkeppni um lesendur.  Það er þó nokkuð skondið að flestir þeirra notast að stórum hluta við fréttir frá stóru fréttastofunum þremur...en samt ...þarna eru sjálfstæðir pistlahöfundar, fréttamenn að störfum, blogg og fl.

Stærstu netmiðlarnir eru Eyjan, AMX, Pressan og Smugan.  Sennilega er þetta vinsældarröðin líka.  Mér virðist sem Eyjan sé samfylkingarleg og Pressan framsóknarleg en þessir vefmiðlar segjast reyndar vera óháðir.  AMX er greinilega hægri sinnuð fréttaveita og Smugan er tengd vinstri grænum. 

Nú er komin fram enn ein fréttaveitan á Netinu; Svipan, sem er runnin undan ryfjum Hreyfingarinnar.  Um að gera að fylgjast með henni líka...eða hvað er hægt að fylgjast með mörgum slíkum ?


Nú förum við mamma

Frábær tíðindi.  Nú förum við mamma til Grænlands...og kannski einhverjir fleiri með okkur.
mbl.is Flug allt árið til Narsarsuaq
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlustum á þennan mann

Einhvernveginn þá leggur maður við hlustir þegar Gylfi Magnússon talar.  Hann er sérlega skýr og áheyrilegur og ég held að það sé langt síðan við höfum haft svona góðan viðskiptaráðherra.  Ég vona að honum verði ekki hent út úr ríkisstjórninni um áramótin.

 


mbl.is Hrunið í eðli sínu tjón á pappír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar varst þú 6.október 2008 ?

Það er komið ár frá því að ískenska bankakerfið hrundi...hrunið er semsagt ársgamalt í dag.   Ég man mjög vel eftir þessum degi...var á leið frá Selfossi  í Háskólann í tíma. Fréttirnar voru fullar af dramatískum upplýsingum.

Fyrsti tíminn var Hagfræðitími og Kristen Flygering hafði eitt og annað um málið að segja ásamt fjölda nemenda.  Mig minnir líka að í kennslustundum þann daginn hafi verið óvenju mikil forföll.

Það sem mér var minnistæðast var upplifunin; manni leið eins og peði.   Algjöru peði í tafli annarra.


Haraldur Bragason

Í dag fór fram útför Haraldar Bragasonar (Halla), en hann var tónlistarkennari hér við Auðarskóla í Dölum.   Varð bráðkvaddur 22.sept.  Hans er sárt saknað um allt héraðið.

Jæja það er tómlegt framundan í tónlistarkennslunni...allavega í bili.


Áfram Össur

Ég er ánægður með Össur.  Hann heldur sínu striki og virðist hafa mikið að gera.  Hef trú á að hann komi okkur alla leið í Evrópusambandið.  Áfram Össur.


mbl.is Össur ávarpaði allsherjarþing SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bráðum komið ár - og litlu nær

Nú er næstum því komið ár síðan bankakerfið íslenska hrundi.  Hafi maður kviðið þessu komandi ári eftir hrunið í fyrra...já þá er það skyndilega bara að verða liðið.   Og sannarlega hefur það verið erfitt fyrir fjölda fólks.

Allt þetta ár hefur hinsvegar verið afar erfitt að átta sig á hvað er rétt og hvað er rangt í mati fólks á stöðunni og spár fram í tímann hafa verið misvísandi.  Þetta birtist manni þrátt fyrir að gríðarleg vinna hafi farið fram á því að greina stöðu banka, meta horfur og efnahagsvanda.  Svo fór allt sumarið í að ræða og greina Icesave stöðuna.

Það er í raun skrýtið að eftir ár...er maður litlu nær eftir alla þessa vinnu og umræðu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 206440

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband