Sunnudagur, 8. janúar 2012
Spjaldtölvur í skóla
Við stöndum við dyrnar af rafvæðingu námsbóka. Að öllu jöfnu má búast við að hin mikla spjaltölvueign og snjallsímaeign fari nú að gera eftirleikinn auðveldari. Hvort það verða háskólar, framhaldsskólar eða grunnskólar sem hefja leikinn, er ekki gott að segja.
Ég bendi svo á ágætt blogg um hugmyndir Vogaskóla um að fara að nota rafbækur. http://maurildi.blogspot.com/2012/01/vogaskoli-og-kyndlarnir.html
Miðvikudagur, 4. janúar 2012
Fjórflokkurinn í rúst
Enn birtir Gallup rangar tölur um fylgi stjórnmálaflokka. Dregur frá þá, sem hyggjast kjósa aðra en fjórflokkinn, sem ætla að skila auðu og sem taka ekki afstöðu. Að teknu tilliti til þessara óánægðu kjósenda er fylgi allra flokka mun minna en Gallup segir. Sjálfstæðisflokkur hefur 22% fylgi, Samfylkingin 12%, Framsókn 8%, Vinstri grænir 8%. Stærsti stjórnmálahópur landsins er 41% hópur hinna óánægðu og hinna ósáttu. Gallup má ekki deila því fylgi niður á fjórflokkinn, en gerir það samt. Fólk mætti gjarna vara sig á sinnulausri framsetningu niðurstaðna skoðanakannana. Þær sýna allan fjórflokkinn í rúst.
Ofangreint er tekið af bloggi Jónasar og er að finna á slóðinni: http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16192
Mánudagur, 2. janúar 2012
Jón sem forseta
Jón íhugar forsetaframboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 28. desember 2011
Vinir jólasveinsins
Laugardagur, 24. desember 2011
Gleðileg jól
Ég óska öllu gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þakka öllum þeim sem hafa litið inn á síðuna og hafa fylgst með mér og mínum á þessum vettvangi í gegnum tíðina.
Ég hef búið mér til eigin heimasíðu með bloggi og hyggst færa mig þangað á nýju ári.
Guðsblessun fylgi ykkur í öllum verkum.
Miðvikudagur, 21. desember 2011
Gamlar myndir renna inn á Flickr
Nú hefur verið bætt inn tugum gamalla mynda á Flickr. http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/
Myndirnar eru að þessu sinni fengnar úr myndaalbúmum frá pabba og mömmu. Eitt albúmið er frá Ömmu Laugu.
Þessi einstaka heimildarmynd sýnir hinsvegar glögglega hversu mikilli hættu systur mínar hafa verið í á sínum tíma. En þá drukku þær af stút og það um hábjartan dag fyrir framan föður sinn. En með guðs hjálp urðu þær ekki Bakkusi að bráð og snerta ekki vín ... nema á kvöldin og nóttunni þegar dimmt er orðið. Og aldrei í augsýn foreldra sinna.
Já það verður margt að gæfu.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18. desember 2011
Virkjun í Dalabyggð
Ákjósanlegt að virkja Kolkistung | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 18. desember 2011
Windows - hljómar það aðlaðandi ?
Maður veltir þvi fyrir sér hvort það sé nokkuð til að auka sölu hjá Nokia að vera með hugbúnað frá Windows. Veldur mér léttum þyngslum vinstra megin í höfðinu að hugsa til þess.
Frelsandi að sjá Google en íþyngjandi að sjá Windows í auglýsingum.
Nýr sími Nokia fær góða dóma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 11. desember 2011
Innanlandsferðalögin
Sá ágæti siður hjá mömmu og pabba að fara með börnin í innanlandsferðalag í lok heyskapar hefur reynst gott veganesti í lífinu. Í albúmi frá mömmu og pabba rakst ég m.a. á þessa mynd frá Atlavík 1982. Því miður er hún nú ekki í góðum fókus, en það er allavega alveg rosalega gaman hjá þeim. Reyndar hélt ég fyrst að á myndinni væru væri mamma og frændi minn Guðjón Dalkvist...
Miðvikudagur, 7. desember 2011
Til hamingju Íris og Þorgrímur
Jólalag þeirra Írisar og Þorgríms Guðbjartsbarna er komið í 10 laga úrslit í jólalagakeppni Rásar 2. Lagið heitir "Afa í skóinn" og hlusta má á það hér. http://vefir.ruv.is/kosning/jolalagakeppni-rasar-2-2011/
Svo er bara að kjósa lagið í leiðinni.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar