Leita í fréttum mbl.is

Ef, jamm og humm !

Ekkert landslið fer í keppni án þess að gera ráð fyrir því að vinna og komast á stórmót.   Allar alvöru handboltaþjóðir eru stöðugt að keppa að slíku markmiði.  Það væri aldeilis ótrúlegt metnaðarleysi að hafna lausu sæti á HM.  Hvaða skilaboð væru það til allra þeirra stúlkna 20 ára og yngri, sem keppa að því að vera með handboltalandsliðinu og gera sitt allra besta í nafni þjóðarinnar ?

Þetta er ekkert "ef", "jamm" og "humm".   HSÍ á að auðvitað að senda okkar frábæru ungu handboltakonur á HM.


mbl.is Fer Ísland á HM?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gat nú verið

Ég sem hélt að þessu væri að ljúka og fór því snemma morguns í göngu upp á Ingólfsfjall laugardaginn var.  Það voru ótrúlega mikil ummerki eftir sjálftan í vor.  Ekki voru það bara stórir og smáir steinar sem höfðu fallið úr fjallinu og virkuðu ógnvekjandi svona beint á gönguleiðinni, heldur voru margir steinar sem maður steig á hreinlega lausir.  Þá voru fjölmargir steinar og klettar sem ekki  höfðu hreyfst úr stað en sprungið og klofnað í staðinn.
mbl.is Eftirskjálfti við Ingólfsfjall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru olíufélögin að rugla okkur ?

Fyrir 4 árum var bensínlíterinn minnstakosti um 50% ódýrari en hann er nú.  Þá hófust krónuafslættir á hvern lítra hjá sumum félögum, oftst 2 - 3 krónur.  Nú þegar hver neytandi fær um helmingi færri lítra á tankinn sinn fyrir t.d 4000 krónurnar sínar er ljóst að afsláttur olíufélaganna (sem þeir auglýsa grimmt í fjölmiðlum) er helmingi minni.

Með öðrum orðum; afsláttur olíufélaganna hefur minnkað um helming !  Lítum á dæmi:

Ég ek díselbíl.  Ég er með afsláttarkort hjá Orkunni upp á 3 kr líterinn.   Nú fæ ég rétt um 21 líter fyrir 4000 krónurnar mínar.  Fyrir 5 árum fékk ég um 40 lítara.  Þá lítur þetta svona út:
Fyrir 5 árum 40 x 3 = 120 kr. í afslátt
Núna   21 x 3 = 66 kr í afslátt.
Sparnaðurinn er orðinn svo lítill að það er leitun að einhverju sem kostar 66 kr.  Tyggjópakki kostar t.d 90 -110 kr.

Olíufélögin ættu að auka afslátt sinn úr 3 krónur á líterinn upp í 6 krónur á líterinn.  Úr því að þau gátu það fyrir 5 árum...hversvegna geta þau það ekki núna ?

Með rosalegum auglýsingaáróðri um 3 kr áfslátt og 5 krónaafslátt á afmælisdegi manns er verið að kolrugla almenning.  Afslátturinn er stöðugt að minnka og olíufélögin að hirða mismuninn. 


Veðrið í júní

Við búum svo vel á Selfossi að hafa sjálfvirka veðurathugunarstöð, sem varpar stöðugt upplýsingum á veraldarvefinn.  Sjá hér.  Það er  Verkfræðistofa Suðurlands sem heldur úti þessum athugunum og kann ég þeim bestu þakkir fyrir.  Veðurstöðin er á Reynivöllunum, eða rétt um 400 metra frá mínu heimili.

Verkfræðistofan hefur safnað saman upplýsingum milli ára, sem afar gaman er að glugga í.  Sjá hér. Ef skoðaðar eru hitatölur frá júní sést að mánuðurinn var með hlýrra móti með meðalhita upp á 11,5 gráður.


Sniðganga N1 ?

Ættum við að sniðganga N1 ?    Kannski bara.  Allavege er N1 er eina olíufélagið sem ekki hefur verð á olíu sinni á heimsíðu sinni.  Verð þeirra er ekki hægt að bera saman á www.gsmbensin.is , þar sem verðsamanburður á olíu og bensíni er neytendum hvar skýrastur.  Þetta finnst mér slæm neytendapólitík hjá fyrirtækinu.  Svona gylliboð koma engum ljóma á reksturinn í mínum augum.

Í mínum huga er valið skýrt.  Ég bý stutt frá N1 þjónustumiðstöð en versla þar aldrei.   Ég versla við fyrirtækin sem sýna sig í að vera með lægsta verðið dag eftir dag og viku eftir viku...og það eru Orkan og ÓB. 


mbl.is 10 króna afsláttur af bensíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki kreppa

Nú nýverið las ég viðtal við Helga Seljan í einu dagblaðanna um helgina.  Hann segir blákalt að ekki sé um neina kreppu að ræða í því efnahagsástandi sem nú er.  "Á meðan allir hafa vinnu er ekki hægt að tala um kreppu" , segir hann.   Þótt fólk neyðist til að kaupa sér minna  af munaðarvarningi en áður er ekki verið að tala um almennan skort.  Skorti fólk hinsvegar lífsnauðsynjar - þá er komin upp kreppa.

Kannski er þetta alveg rétt.   Atvinnuleysi mælist nánast ekkert eða um 1% og vöruskiptajöfnuður er að lagast frá því sem verið hefur.   Mikil verðbólga, háir vextir og offramboð á fasteignamarkaði er hugsanlega eitt og kreppa annað.


« Fyrri síða

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Júlí 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband