Þriðjudagur, 31. mars 2009
Fleiri íbúar
Sunnudagur, 29. mars 2009
Brrrrr
Ég hélt í einfeldni minni að það væri að vora aðeins. Nú er bara frost og skafrenningur með snjókomu á degi hverjum. Reiðhjólin sem bjartsýnir Selfyssingar tóku út fyrir nokkrum dögum eru að snjóa í kaf.
Og bylur fyrir norðan og vestan.
Huggulegast væri að fá sér kaffi að hætti Íra....
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26. mars 2009
Álver
Nú er skoðanakönnun á síðunni minni búinn að vera nógu lengi. Þar var spurt um vilja fólks til að reisa ný álver. Rúmlega hundrað höfðu svarað og kom niðurstaðan nokkuð á óvart.
Það að rúmlega 40 % vilja alls ekki fleiri álver í bili kemur kannski ekki mjög á óvart. Hinsvegar kemur mér á óvart að næst flestir skyldu ekki velja þann kostinn að þeir vildu bara eitt álver til viðbótar, þ.e annað hvort á Bakka eða í Helguvík. Næst flestir eða tæplega 30 % völdu að þeir vildu sjá þrjú ný álver; á Bakka, í Helguvík og í Þorlákshöfn. Þá kemur líka í ljós að mun fleiri vilja bara álver á Bakka heldur en í Helguvík...þótt það síðarnefnda sé komið áleiðis.
Sunnudagur, 22. mars 2009
Kardemommubærinn
Mamma og amma buðu yngstu barnabörnunum sínum þremur ásamt foreldrum á Kardemommubæinn í Þjóðleikhúsinu. Ég hafði aldrei séð sýninguna áður, en hlustað 1000 sinnum á hana í gegnum æsku mína og æsku barna minna. Því kom sumt nokkuð á óvart þegar maður sá þetta svona beint á sviðinu; t.d það að umhverfi bæjarins var greinilega suðrænt, þ.e þarna var mikið sólskin og mikið af pálmatrjám.
Þegar maður horfði yfir salinn sá maður að fullorðna fólkið sat með sælubros á vör af áhuga og ánægju. Yngri kynslóðin var ekki jafn heilluð...þó held ég að allir hafi skemmt sér vel.
Föstudagur, 20. mars 2009
Lifðu heill Hörður Torfason
Kærar þakkir fyrir þitt framlag hingað til. Framganga þín hefur reynst mér ómetanleg.
Lifðu heill Hörður Torfason.
![]() |
Hlé á fundum Radda fólksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 20. mars 2009
Hæpin ummæli
Ég get ekki almennilega áttað mig á því hversvegna Sigmundur lætur svona orð falla um samstarfsflokk framsóknarflokksins. Í fljótu bragði er ekki hægt að sjá neinn pólitískan ávinning með svona framkomu formannsins. Maður greinir einhvern pirring sem fær á sig þessa undalegu mynd.
Ekki ætla ég að efa það að Samfylkingin geti verð erfið í samstarfinu (þótt ég viti ekkert um það), en það er tæplega snjallt að orða hlutina með þessum hætti um leið og formaðurinn talar um að framsóknarflokkurinn vilji í vinstri stjórn eftir kosningar.
![]() |
Undrandi á orðum Sigmundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 16. mars 2009
Íslandsmeistaramótið í Júdo
Íslandsmeistaramótið í júdo fór fram á laugardaginn var. Bræðurnir Keli og Stuli voru báðir skráðir til leiks og höfðu undirbúið sig vel. Á föstudegi fyrir mót varð Stulli hinsvegar veikur og svo drulluslappur á laugardegi að ekki varð úr keppni hjá honum. Keli keppti hinsvegar og stóð sig ágætlega, þótt ekki næði hann á pall í þetta skiptið.
Alls voru rúmlega 200 keppendur á mótinu og er ljóst að júdoiðkenndum fer nú fjölgandi um allt land. Keppendur frá Júdodeild Umf. Selfoss voru 24 og náðu tveir þeirra að hampa Íslandsmeistartitli.
Fimmtudagur, 12. mars 2009
Ekki fréttir - lækkun í kauphöllinni
Fyrst þegar tók að gæta lækkunnar í kauphöllum um heim allan, þá fylgdist maður spenntur með. En þegar fréttir berast dag eftir dag og viku eftir viku og mánuð eftir mánuð um lækkanir...er maður alveg búinn að fá nóg. Steindauðar fréttir og alveg ótrúlegt að þeim sé hent daglega eða jafnvel oft á dag inn á mbl. Fyrir hvaða hópa eru þessar fréttir ? Atvinnulausa viðskiptafræðinga ? Atvinnulausa fjármálasérfræðinga ?
Það eru meiri spenna og meiri tíðindi fólgin í því að hlusta á veðurfréttir kvölds og morgna.
![]() |
Rauðar tölur í kauphöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 10. mars 2009
Júdoannir
Nú erum við í Júdodeildinni að undirbúa aðalfund. Reikningarnir að verða klárir og verð ég að segja að reksturinn hefur bara gengið vel.
Nú um helgina er Íslandsmeistarmótið yngri en 20 ára og sendum við Selfyssingar vaskan hóp; líklega um 30 keppendur.
Þá erum við núna að taka í hús og selja nýjar einkennispeysur...svo það eru talsverðar júdoannir þessa daganna.
Sunnudagur, 8. mars 2009
Hvassviðri
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar