Leita í fréttum mbl.is

Hann er enn meðal vor

c_gogn_myndirnar_minar_mislegt_sigurbjorn_einarsson.jpg

Nú um jólin var þáttur helgaður Síra Sigurbirni Einarssyni fyrrverandi biskupi.  Það var afar gott og athyglisvert að hlusta á viðtalið við hann.  Eins og fyrri daginn snertir það sem hann segir mann einhvernveginn þegar hlustað er á hann.   Þessi maður hefur til að bera ótrúlegt þel sem skín af honum.

Í Sigurbirni fer einhvernveginn saman guðfræðimaður og trúarreynslumaður.  Hann virtist eiga meira upp á pallborðið hjá fólki í prédikunum sínum en aðrir prestar samtímans.  Allavega man ég vel eftir mér eldra fólki sem lagði niður störf sín til að hlusta á hann ef hann var með prédikun í útvarpinu.  Og oftast nær var viðfangsefni prédikana hans "Guð og maður".

Eftir síra Sigurbjörn liggja fjölmargar bækur, pistlar, sálmar og þýðingar og ef marka má sjónvarpsþáttinn virtist hann enn vera að kominn á tíræðisaldurinn.  Ef maður les þá stuttu pistla sem finna má á vefnum er ljóst að maðurinn hefur haft mikil áhirf á kirkju og samfélag þjóðarinnar.

Á eftirfarandi slóðum má finna meiri fróðleik um "gamla biskupinn":  Sigurður Árni Þórðarsson skrifar um  "Kennimanninn Sigurbjörn Einarsson" og Pétur Pétursson skrifar um "Guðfræðinginn og guðsmanninn Sigurbjörn Einarsson".

Morgunsálmur
Roðinn af morgni rís í austurvegi
rýmir í hljóði nóttin fyrir degi.
Risnir af beði, Guð með þökk og gleði
göfgum og biðjum.

Bænin skal vekja vora sál og hjarta
vermir og lýsir orðið Drottins bjarta.
Yfir oss niður ljós og líf og friður
líður af hæðum.

Dýrð sé þér, faðir, Drottinn geims og stjarna,
dýrð þér, Guðs sonur, lausn vor sekra barna,
dýrð þér, sem talar, helgar, huga svalar,
heilagi andi.
(Sigurbjörn Einarsson)


Flóðið í Ölfusá

c_gogn_myndirnar_minar_mislegt_olfusa_020504.jpg

Flóðin í Ölfusá eru af tvenns konar uppruna; vetrarflóð og haustflóð.  Algengari eru vetrarflóðin svokölluðu.  Þá hrannast upp ís til móts við Brúnastaði þar sem Hvítáin rennur í þrengingum fyrir suðurenda Hestfjalls. Þessi flóð verða oftast í nokkurri leysingu að vetri til, en ísstíflan skiptir miklu um eðli og stærð flóðsins.

Hin tegundin, og þau eru fátíðari, eru haustflóðin. Flóðið nú fyrir skömmu var af þeirri gerðinni. Sigurjón Rist segir almennt um haustflóð að þau verði þegar frostakafla geri snemma hausts, sem gerir jörð algerlega vatnshelda. Þá leggist nokkurt snjóalag yfir allt vatnasvið árinnar og að síðustu komi vatnsþrungin lægð upp að landinu sem veldur snöggri hitabreytingu og ofsaregni með sterkum vindi.  Allir þessir þættir fóru saman nú. Þó er ljóst að engar beinar upplýsingar var að hafa af snjóalögum á hinu geysivíðfeðma vatnasviði Hvítár á afrétttum þeirra Tungnamanna og Hrunamanna.  Við vitum vatnsmagnið í heild sinni, en hvað af því var úrkoma sem féll á einum sólarhring og hvað kom frá auðleystum snjónum sem fyrir var vitum við ekki.

Upplýsingar fengnar m.a af www.esv.blog.is 


Þreytumst ekki að gjöra gott

Fólk er oft sjálfselskt, óskiljanlegt og ótryggt
- fyrirgefðu því samt.
Ef þú ert örlátur muntu ef til vill verða ásakaður
um sjálfselsku
- vertu samt örlátur.

Ef þér vegnar vel muntu eignast falska vini
og sanna óvini
- leitastu samt við að vegna vel.
Ef þú ert heiðarlegur og hreinskiptinn þá mun
fólk ef til vill notfæra sér þig
- vertu samt heiðarlegur og hreinskiptinn.

Það sem þú hefur eytt árum í að byggja upp
mun einhver ef til vill eyðileggja á einni nóttu
- byggðu samt.
Ef þú finnur frið og hamingju verður einhver ef
til vill öfundsjúkur
- vertu samt hamingjusamur.

Það góða sem þú gerir í dag verður ef til vill
gleymt á morgun.
- Gerðu samt góðverk í dag.
Gefðu heiminum það besta sem þú getur, og
það ær áreiðanlega skammt.
- Gefðu samt það besta sem þú getur.

Því þegar allt kemur til alls þá er þetta allt milli
þín og Guðs.
- það var aldrei milli þín og hinna.
(Móðir Teresa)


Hann á afmæli hann Jesús...

Kæru vinir, vandamenn og aðir lesendur:

Miklar hugsanir og hreint hjarta - um það skyldum vér biðja Guð
Goethe

Gleðileg jól !

 


Birna tekur til sinna ráða

c_gogn_myndirnar_minar_mislegt_birna_a_mala.jpg

Birna Björt ákvað skömmu fyrir jól að mála herbergið sitt.  Hún reif allt út úr herberginu og hófst þegar handa.  Keli bróðir kom til hjálpar og saman slettu þú slatta af málningu á veggi og víðar.  Þegar þetta er skrifað er ekki en séð fyrir endan á þessu málningarupphlaupi Birnu.


Bara smákökur

Fyrsti desember markar upphaf smákökutímabilsins, sem stendur nánast óslitið fram yfir áramótin eða í 30 - 40 daga.   Þetta munu vera um 10 % af árinu.  Sem sagt 10 % af árinu borðar maður næstum smákökur uppá hvern dag.  Það virðast vera endalaus tilefni til þess.  Smakka aðeins þegar er bakað, bjóða öðrum að smakka þegar þeir koma í heimsókn, fara í önnur hús og smakka aðeins á smákökum þar, gleypa piparkökur á biðstofum, smakka nýjar tegundir á kynningum í verslunum og framvegis.  Svo má ekki gleyma öllum "slúttunum" ; það eru litlu jólin á leikskólanum í grunnskólanum og í vinnunni.  Svo hjá kórum og félögum stórum sem smáum.

Já í hvert sinn sem maður stingur upp í sig smáköku segir maður við sjálfan sig; "bara núna"  en á einhvern óskiljanlegan hátt verður þetta nánast upp hvern dag í rúman mánuð.  Og það undalegasta af öllu í þessu sambandi er að maður verður hreint ekkert saddur af smákökum og hreint ekkert leiður á þeim.  Maður maular á þeim í tugavís, helst að tóm föt og diskar fái mann til að hætta án þess að vera dónalegur.

Jæja...sem sagt núna er smákökutímabilið á árinu.


Jólaundirbúningur

Skrýtið hvað það er margt sem ekki má með neinu móti sleppa fyrir jólin.  Það má ekki sleppa að skrifa jólakortin, ekki sleppa því að skreyta með seríum, ekki gleyma að baka, ekki gleyma að þrífa, ekki gleymna að kaupa græanar baunir, ekki gleyma malti og appelsíni og ekki gleyma að kaupa gjafir.

Engin jól ef eitthvað gleymist.  Þannig verður þetta eins og lífróður þar sem markið er að komast yfir allt það sem ómissandi fyrir jólin.  Eins gott að að maður er í góðu formi.  Þolir álag og vökur.  Og eins gott að manni er gefð jafnaðargeð.

Jæja...best að hætta að blogga...það má nefnilega sleppa því...og halda áfram að skrifa á jólakortin.


Hotel Baron

Ágætt einfalt hótel. Við Gugga ákváðum að taka sólarhringshlé frá amstri hversdagsins í desember og skella okkur eina nótt á hótel.  Og hér erum við í alvarlegri hvíld.  Ætlum að fara út að borða saman á eftir Caruso (hérumbil rétt stafsett hugsa ég).

Annars er að skella á einhver snjóstormur, sýndist okkur þegar við löbbuðum Laugarveginn rétt áðan.  Þá er nú notarlegt að hreiðra um sig á hótelherbergi með portvín og góða bók.


Marmaris var það !

Marmaris
Þá er fjölskyldan búin að ákveða hvert hún fer næsta sumar.   Hvorki meira né minna en til Asíu; nánar tiltekið til Marmaris í Tyrklandi.  Hljómar mjög spennandi.   Hef heyrt í nokkrum sem þangað hafa farið og þeir eru á einu máli um að þarna sé bæði gott og skemmtilegt að vera.  Svo nú er búið að bóka 14 daga ferð fyrir sex frá og með 29.júní. 

Þrír bæjarstjórar á launum í Árborg

Þá höfum við fengið nýjan vinstrisinnaðan meirihluta í Árborg.   Ragnheiður Hergeirsdóttir verður bæjarstjóri og eflaust góður sem slíkur.  Missum hana reyndar því miður í staðin af lista Samfylkingarinnar hér í Suðurkjördæmi.  Ef samstarfið í fyrverandi meirihluta var stirt þá var um að gera að hætta þessu og prufa að mynda nýjan meirihluta.  Mikilvægt að það séu starfhæfir flokkar sem vinna saman.

Hinsvegar ef þessi meirihluti lendir í vandræðum og enn og aftur kemur nýr bæjarstjóri verður það fjórði bæjarstjórinn sem fer á laun, en innan bráðs verða þeir þrír á launum í Árborg;  Einar Njálsson, Stefanía Karlsdóttir og Ragnheiður Hergeirsdóttir.

En ég óska nýjum bæjarstjóra og nýjum meirihluta til hamingju með meirihlutasamstarfið.


Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Des. 2006
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 206651

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband