Fimmtudagur, 9. apríl 2009
Geir H. Haarde ...ekki pappírsins virði ?
Í ræðu sem Geir H. Haarde flutti þann áttunda desember 2006 á Alþingi sagði hann:
Við höfum ekki séð nein merki þess í dag að reynt sé með óeðlilegum hætti að hafa áhrif á stjórnmálastarfsemina í landinu af hálfu fjársterkra fyrirtækja eða fjársterkra einstaklinga en við viljum reisa skorður við þeim möguleika áður en slíkt gerði hugsanlega vart við sig og við viljum jafnframt gera flokkunum mögulegt að starfa með öflugum hætti með því að veita þeim eðlilegan stuðning af opinberu fé. Við teljum það nauðsynlegt til þess að flokkarnir geti sinnt því grundvallarlýðræðishlutverki sínu og því sem þeim er ætlað í stjórnskipan landsins. Við teljum nauðsynlegt að verja stjórnmálalífið fyrir þeirri hættu að gerðar verði tilraunir til þess að hafa áhrif á úrslit einstakra mála með óeðlilegum hætti."
Aðeins þremur vikum síðar tók sami maður við 30 milljón króna styrk frá FL Group fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.