Þriðjudagur, 9. desember 2008
Sannar að það þarf að mótmæla
Þessi ótrúlega atburðarás sannar bara enn einu sinni fyrir mér að fólk hefur drjúga ástæðu til að mæta á Austurvöll og lýsa yfir vantrausti á yfirvöld.
Next og Noa Noa aftur í eigu sömu hjóna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sannar einnig að mótmælunum þarf líka að beina gegn "kaupsýslufólkinu" - Bergum og Baugum og Thorum
Þorsteinn Gíslason (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 20:13
sæll Lói minn ,
mig langar nú bara aðeins að benda á eitt í þessu sambandi,
netútgáfa mbl.is er nú ekki betur úr garði gerð en það, að þeir klipptu út síðasta kaflann í þessari grein, eins og hún er sett upp í morgunblaðinu í dag. Þar kemur fram að Next í Bretlandi, vildi halda áfram samstarfi við þau hjónin. Þar hafa engar skuldir verið afskrifaðar og þær skuldir hefur vafalaust verið samið um endurgreiðslu á.
Ég vann fyrir þetta fólk í mörg ár og finnst ótrúlegt og sorglegt að horfa upp á þau tekin af lífi í bloggheimum í dag af fólki sem gefur sér forsendur en hefur engar staðreyndir.
Ástæðan fyrir því að það kemur að þessu fjárfestingafélag er að koma með aukið fjármagn inn í reksturinn, gera upp skuldir við byrgja og halda rekstrinum gangandi og þar með fjölda fólks í vinnu. Fjárfestingafélög eru nú einu sinni ekki góðgerðarfélög og þau fara ekki með sína skildinga inn í rekstur sem er dauðadæmdur. Ég geri ráð fyrir að Arev sjá sér hag í að koma að þessu, bjarga fyrirtækinu, hjálpa eigendunum á réttan kjöl og sjá hagnað í þessu þegar síðar verður.
Og nota bene, halda fjölda manns, með fjölskyldur á framfæri, í vinnu.
Hvað segirðu annars, Lói, ertu ekki bara hress ?
með bestu kveðju Halla Sigrún Gylfadóttir
Halla Sigrún (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 22:30
Komdu sæll og blessaður bekkjarbróðir úr KHÍ
Varð nú bara að kasta kveðju á þig þegar ég sá nafnið þitt hér á blogginu.
Tek bara heilshugar undir með þér.
Hver veit nema að við sjáumst á Austurvelli á næstunni.
Bestu kveðjur úr Hafnarfirði
Ásta B (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.