Mánudagur, 1. desember 2008
Geir framleiðir vinstri- og öfgahópa
Á meðan Geir situr sem fastast og á meðan Davíð situr sem fastast þá styrkjast vinstri öflin í þjóðfélaginu stöðugt. Það væri svo sem í lagi undir venjulegum kringumstæðum þvi hófleg vinstri umræða er góð og nauðsynlegt mótvægi við hægriumræðuna.
Hitt er verra að normið fyrir "vinstri" og "róttækt" hefur breyst. Nú finna stöðugt fleiri sér skjól undir nýjum merkjum, í nýjum hópum og hreyfingum, sem spretta dag hvern fram á sjónarsviðið á Netinu. Hver heimasíðan á fætur annarri, nýir fjölmiðlar á netinu og nýjar bloggsíður. Og heimsóknir á þessar síður eru þúsundir í viku hverri. Já þúsundir finna samsömum með lestri byltingaáróðurs á meðan hægri menn hröklast hvarvetna út í horn. Svona þróun býður hættunni heim.
Það ótrúlegasta við þetta allt saman er þó það að ef Geir og Ingibjörg hefðu farið strax frá völdum og látið kjósa hefðu flokkarnir að öllum líkindum haldið þingmeirihluta sínum. Sjálfstæðisflokkur misst 8 menn og samfylking fengið 4 menn. Mesta viðspyrna mótmælenda væri þá hrunin. Helsta fóður öfgahópa búið. Ríkiststjórnin með fótfestu á ný, með endurnýjuðu umboði.
En þess í stað situr Geir sem fastast og heldur þétt utan um Davíð. ... og framleiðir á degi hverjum vinstri- og öfgahópa.
VG stærsti flokkurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er kórrétt. Flokkshollustan er ekki lengur holl heldur fótakefli.
Haraldur Hansson, 1.12.2008 kl. 20:55
Hárrétt hjá þér - því miður!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 2.12.2008 kl. 07:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.