Miðvikudagur, 29. október 2008
Tú alfagra land mítt
- Tú alfagra land mítt
Tú alfagra land mítt, - mín dýrasta ogn!
- á vetri so randhvítt,
- á sumri við logn,
- tú tekur meg at tær
- so tætt í tín favn.
- Tit oyggjar so mætar,
- Gud signi tað navn,
- sum menn tykkum góvu,
- tá teir tykkum sóu.
- Ja, Gud signi Føroyar, mítt land!
Þannig hljóðar fyrsta erindi þjóðsöngs Færeyinga. Færeyingar ákváðu af frændsemi og stórhug að lána Íslendingum peninga; mjög mikla peninga reiknað á höfðatölu. Það er ekki í fyrsta skipti sem þeir koma til hjálpar. Eftir snjóflóðið í Súðavík, í miðri eigin kreppu, söfnuðu þeir miklum peningum. Mér hefur í þessum hugleiðingum gengið illa að finna viðhlýtandi dæmi þar sem Íslenska þjóðin hefur komið þeim til aðstoðar. Rámar þó í það að að þeim hafi verið leyft að veiða innan íslensku lögsögunar eitthvað magn af fiski þegar kreppan var sem verst hjá þeim.
Vonandi gleymir ekkert íslenskt mannsbarn þessari aðstoð og minnist Færeyinga ætið vel. Gaman væri að fleiri færu svo að fordæmi Háskólans á Bifröst og biðu Færeyingum að njóta vel hér á Fróni. Sjá fréttina hér. http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/29/bydur_faereyingum_okeypis_nam/
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:30 | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.