Mánudagur, 6. nóvember 2006
Umræða ekki fordómar
Þegar þingmaðurinn Magnús hóf umræðu um að við Íslendingar gætum stjórnað betur streymi og viðtöku á útlendu vinnuafli til landsins, stakk hann á stórt kýli. Ég er einn þeirra sem tel að þessi mál verðskuldi meiri umræðu en verið hefur, ekki síst til þess að málefni þessa fólks séu ekki í þeim ólestri sem þau virðast vera. T.d virðist það kosta alltof mikið fyrir fólkið að fara og verða sér úti um íslensku kennslu. Þá virðist það vera alltof algengt að vinnuveitendur ætli að sjá um að fólkið fái kennitölu hjá Hagstofunni, en annaðhvort gleymi því eða dregur það á langinn...með þeim afleiðingum að börn þessa fólks kemst ekki í skóla strax að hausti.
Mér fannst Magnús vera varfærinn í umræðu sinni enda málið vandmeðfarið. Minnsta ónærgætni er strax túlkuð sem fordómar. Frjálslyndi flokkurinn á heiður skilið fyrir að hefja þessa umræðu. Við Íslendingarnir sem viljum þessu fólki vel, verðum að vera skipulagðari í móttöku þess. Annars fer öllum að líða illa yfir þessu og þá er stutt í fordómana.
Ég hef hingað til ekki talið mig vera fordómafullan hvað þetta varðar. Mér hefur samt ekki tekist að venjast því að þurfa að kunna erlend tungumál til að fá afgreiðslu í verslunum.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Af hverju þarf maður að líkja allt við rasisma? Ég er samála þér Eyjólfur
Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.11.2006 kl. 13:16
Þeir sem kalla "úlfur úlfur, rasismi rasismi" eru í raun miður sín yfir því að hafa ekki þorað að hefja þessa umræðu sjálfir og eru núna skíthræddir við Frjálslynda flokkinn sem þeir hafa hingað til ekki þurft að hafa áhyggjur af. Þetta snýst allt saman um pólitík.
kv. H.R.E.
Helga R. Einarsdóttir, 9.11.2006 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.