Miðvikudagur, 24. október 2007
Frí framundan
Þá er komið að vetrarfríi hjá mér. Verð í fríi næstu sex daga. Gugga á inni smá sumarfrí og tekur sér líka langa helgi. Við fljúgum svo á Akureyri á föstudag og verðum þar í hjónaorlofi fram á mánudag. Reynum að heimsækja vini og kunningja í leiðinni. Það er orðið langt síðan við vorum síðast á Akureyri, en meðan við bjuggum á Siglufirði þá fórum við reglulega þangað. Svo þetta verður örugglega gaman.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góðan dag. Ég samfagna ykkur nágrannar góðir. Ætlaði sjálfur á Ak. þar sem bústaðir í Kjarnaskógi hefur gjarnan orðið umgjörð góðra daga í skólafríum, en tímaþröng verður sennilega til þess að aðrir kostir verða teknir. Kannski býð ég Magnúsi, gomlum skólabróður og nýkomnum frá Skotlandi í Bláa lónið, þangað hef ég ekki komið í mörg ár og svo á fjölskyldan miða í sinfóníuna í kvöld. Góða ferð og góðar stundir. Heiðmar
Ingi Heiðmar Jónsson (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 06:10
Ég er mjög ánægð með að börnin (og kennararnir) fái vetrarfrí. Sjálf tók ég mér alltaf frí meðan dætur mínar voru yngri. Hvenær bjóstu á Siglufirði?
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 31.10.2007 kl. 17:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.