Laugardagur, 14. júlí 2007
Gamla góða Frón
Þá er fjölskyldan komin aftur til landsins eftir viðburðarríka og skemmtilega dvöl í Tyrklandi. Vorum ekki komin fyrr en kl. 8.00 í morgun...úff hvað þetta var langt og þreytandi ferðalag.
Aldrei þessu vant þá varð enginn veikur í ferðinni (fyrir utan hefðbundin ofnæmi) og það þrátt fyrir ansi mikinn hita á köflum. Reyndar upplifðum við að það er ekki sjálfgefið að allir komi heilir heim. Pabbinn í einni fjölskyldunni á hótelinu okkar dó úti (hjartaáfall) ytra.
En ferðin var, þrátt fyrir ofangreint, í heild góð og allir ánægðir. Teknar hafa verið mörg hundruð myndir á margar vélar og minniskort. Einnig klukkutímar á dvd. Svo það verður einhver bið á að myndir fari að birtast á netinu. Skelli inn fróðleiksmolum um Tyrkland og Marmaris næstu daga. Fer að vinna í myndunum þegar hann fer að rigna.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 206222
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.