Sunnudagur, 15. apríl 2007
Ég er þá eins og flestir...
Ég verð að segja að mér stórlétti þegar ég sat og horfið á sjónvarpfréttir á Rúv nú í kvöld. Þar var birt niðurstaða úr könnun þar sem afstaða fólks til þess að takmarka aðflutt vinnuafl til landsins hafði verið skoðuð. Samkvæmt fréttinni telja um 60% Íslendinga rétt að takmarka eitthvað streymi innflytjenda. Úff mikið var ég feginn að sjá þessar niðurstöður !
Ástæðan er sú að ég hef verið að fylgjast með pólitískum umræðum í sjónvarpi og blöðum og þar hafa allir frambjóðendur í Sjáfstæðisflokki, Framskóknarflokki, Samfylkingu og Vinstri grænum verið 100 % sammála um að vera á móti afstöðu Frjálslyndaflokksins í þessum málum. Þar sem mér hefur fundist innflytendaumræða Frjálslyndaflokksins mikilvæg og góð hefur mér liðið eins og dæmdum rasista undir viðbrögðum hinna flokkanna. Vart þorað að minnast á við mína nánustu að mér finnist ekki skyndilegur fjöldi innflytenda vandamálalaus. Heldur þvert á móti þá hafi ég bara talsverðar áhyggjur af þessari skyndilegri og stjórnlausu þróun.
En nú er semsagt bara komið í ljós að 60 % Íslendinga eru bara á svipaðri skoðun og ekki bara það heldur er meirihluti fólks í öllum flokkum nema Samfylkingu á þessari skoðun. Um 70 % framsóknarmanna eru á þessari skoðun, svo dæmi sé nefnt.
Ég er þá eins og flestir aðir Íslendingar hvað þetta varðar þegar allt kemur til alls.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það eru fleiri fegnir en þú. Kannski við getum farið að ræða málið? kv.
Helga R. Einarsdóttir, 15.4.2007 kl. 21:12
Finnst þér það ekki skrítið að þú skulir vera eins og meirihlutinn?
Það er athyglivert að fólkið í landinu vill aðgerðir í þessum málum en þeir sem stjórna landinu vilja ekkert aðhafast. Hvað er að? Hvernig getur það verið að fólk kjósi flokka sem að vinna á móti þeirra hugsun?
Hvað er að Íslendingum? ég velti því nú fyrir mér. Stór hluti aldraðra og öryrkja lifa við hungurmörk, en þetta sama fólk kýs þetta yfir sig.
Er þetta Íslenska þjóðin í dag?
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 15.4.2007 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.