Leita í fréttum mbl.is

OECD segir íslenskan landbúnað bagga á þjóðinni

"Landbúnaður nýtur tvöfalt meiri verndar á Íslandi en gengur og gerist innan Evrópusambandsins og er verndinmeiri en í flestum löndum OECD. Nauðsynlegt er að aflétta henni sem fyrst að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar.

Skýrsla OECD um Ísland var kynnt í dag en skýrsluhöfundar skoða þar auk annars landbúnaðinn í landinu og komast að þeirri niðurstöðu að miklir styrkir og vernd til handa bændum sé þungur baggi á neytendum og beinlínis haldi niður framleiðni í landinu.

Er mælst til þess að stjórnvöld minnki stuðning við landbúnaðinn verulega með því að afnema alla kvóta og draga úr öðrum beinum styrkjum til landbúnaðarins. Aðeins þannig færist auður frá landbúnaðinum og til annarra atvinnugreina þar sem sóknarfærin eru fleiri og betri. Þá er fullyrt að við slíkt lækki matarverð neytendum til hagsbóta."

Tekið af vef eyjunnar 21.06.2011.

OECD er traust stofnun...en erlend.  Og Íslendingar eru sko ekki fyrir erlenda ráðgjöf eða gagnrýni. Þeir eru sko snjallari en svo.  Íslendingar reka sitt eigið frábæra landbúnaðarkerfi hvað sem einhverjir útlendingar raula og tauta.  Svona málfluttningur verður sko þaggaður í hel af sönnum íslenskum hagsmunahópum.  

Sannið til.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

OECD er stofnun sem er gegn Íslenskum hagsmunum.  Íslenskir hagsmunir hljóta að vera að sjá til að Ísland og Íslendingar hafi atvinnu, og efni.  Ef landbúnaðurinn hverfur, hverfur fólkið inn í fjölbýlishverfin.  Og hvað fylgir í kjölfarið?  Jú, það sem fylgir í kjölfarið er að íslendingar kaupa æ meir af erlendum vörum ... fleiri býli fara í eyði, og erlendir aðila kaupa landið af Íslendingum eins og gerst hefur í Svíþjóð.

Verið ekki svona miklir aular ... það er dýrt að halda uppi landinu, en dýrt á hvaða mælikvarða? Er það ódýrara að börnin og barnabörnin verði atvinnulausir þurfalingar í erlendu auðmanna samfélagi, þar sem Íslendingar eru almennt séð ekki hagstæður efnahagur? 

Að dæma Ísland á þennan hátt, er það sama og að segja að Íslendingar almennt séu ... þurfalingar.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 21.6.2011 kl. 22:13

2 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Alveg eins og ég spáði. OECD eru óvinveittir. Útlendingar eru hættulegir. Íslendingar vita alltaf betur.

Eyjólfur Sturlaugsson, 21.6.2011 kl. 22:35

3 identicon

,,Verið ekki svona miklir aular ... það er dýrt að halda uppi landinu, en dýrt á hvaða mælikvarða? Er það ódýrara að börnin og barnabörnin verði atvinnulausir þurfalingar í erlendu auðmanna samfélagi, þar sem Íslendingar eru almennt séð ekki hagstæður efnahagur?"

Thetta er alveg priceless.

Enginn landbunadur = atvinnulausir thurfalingar?

Morg rikustu riki heims hafa engann landbunad, thau vita betur og sja ad thau eru ekki samkeppnishaef svo thau nyta mannaflann i onnur storf og flytja mat inn, ekkert ad thvi.

Keli (IP-tala skráð) 5.7.2011 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband