Miðvikudagur, 28. júlí 2010
Pósturinn á dyramottunni
Pósturinn er með auglýsingaherferð þessa dagana þar sem reynt er að sannfæra fólk um að best sé að fá að geyma póstinn á pósthúsi þá daga sem maður er í burtu í ferðalagi. Ekki sé gott að geyma hann á dyramottunni. Öryggisins vegna.
Hvernig sem ég hugsa þetta skil ég ekki hverju ég er bættari með að geyma póstinn á pósthúsinu.
Afhverju má hann ekki liggja á dyramottunni í læstu húsi ? Ekki skemmist hann eða fer neitt. Og það þarf ansi mikinn póst til að hann hlaðist upp fyrir lúguna. Nú ef það kviknar í, eða það er brotist inn eða vatn flæðir um allt....ætli ég hafi ekki meiri áhyggjur af öðrum hlutum en póstinum mínum.
Bloggfærslur 28. júlí 2010
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 206646
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar