Leita í fréttum mbl.is

Páskabingó

DSCN1495Rikki og vinir hans; systkinin Matti og Sunna, ákváðu fyrir nokkrum vikum að stofna til Páskabingós fyrir fjölskyldur sínar.  Bingóið skyldi haldið miðvikudaginn 31. mars. Í tvo daga stóð undirbúningurinn yfir.  Krakkarnir byrjuðu á því að kaupa verðlaun; þ.e. páskaegg,   nokkur stykki og ekki af smærri endanum).  Til þess þurfti allnokkurt fé, sem  þau höfðu safnað sér með margvíslegum hætti.  Því næst var hafist handa við að skreyta stofuna heima hjá Rikka, þar sem bingóið skyldi haldið. Það tók margar margar klukkstundir, því þessu fylgdi heilmikið föndur og sköpunargleði.  Það voru m.a. blásnir upp hanskar sem notaðir voru sem hænuhausar, perlað páskasraut og fl. og fl.

Þegar dagurinn rann upp var hafist handa við veitingarnar, en börnin bökuðu pitsur.  Foreldrarnir (Gugga, Lói, Steina og Kalli) þurftu ekkert að gera annað en að setjast í sóffann og njóta kvöldsins.  Eftir góðan málsverð hófst bingóið og var notast við "alvöru" bingóvél, sem krakkarnir höfðu útvegað sér.  Spilaðar voru fjórar umferðir.

Áformin sem krakkarnir voru í upphafi með voru stór. Þau lögðu mikið á sig í langan tíma; söfnuðu fé, skreyttu fyrir kvöldið, elduðu mat og héldu bingó.  Afraksturinn var yndislegt kvöld sem fjölskyldurnar tvær áttu saman.  Þökk sé þeim Matta, Rikka og Sunnu.


Bloggfærslur 3. apríl 2010

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 206647

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband