Leita í fréttum mbl.is

Lucia

Í dag er ljósahátíð.  Dagurinn er til heiðurs dýrðlingnum Luciu sem þýðir "sá sem ber ljósið" enda er Lucia vel þekkt sem verndardýrðlingur blindra og sjónskertra. Lucia er  ítölsk og er á þeim slóðum mikilsverður dýrðlingur og þá sérstaklega meðal kvenna.  En vegna tengsla við birtuna og nálægðar 13. des. við vetrarsólstöður varð hún persónugervingur sólstöðuhátíða á Norðurlöndunum. Um siðaskiptin reyndu mótmælendur að losa sig við dýrðlinga úr kaþólskum sið en ekki tókst að losna við Luciu.

Á 18. öld fór að bera á þeirri Lúsíu sem þekkist í dag þegar elsta stúlka heimilisins var klædd sem Lucia og bar fram kaffi og brauð til heimilisfólks.   Snemma á 20. öldinni var síðan farið að halda skipulagðar Lúsíuhátíðir í Svíþjóð. Á Íslandi er siðurinn að færast í aukana, þó mest meðal Svía, Norðmanna og Íslendinga sem hafa búið á Norðurlöndunum.

Svo skemmtilega vill til að hjá okkur býr skiptinemi frá suðru Ítalíu, sem heitir Lucia.  Hún segir að móðir sín hafi viljað að hún héti sama nafni og dýrðlingurinn.  Og viðurkennir að uppáhaldsdýrðlingur sinn sé Lucia.....já svo það var eiginlega út af því sem ég ákvað að lesa mér aðeins til um þessa hátíð.


Bloggfærslur 13. desember 2007

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband