Leita í fréttum mbl.is

Raðskvettari gengur laus

Nú er ljóst að raðskvettari gengur laus í höfuðborginni.  Hann mun endurtekið hafa skvett rauðri málningu á hús auðmanna.  Við síðustu skvettu brást honum bogalistin og til hans sást þannig að hugsanlega fer lögreglan nú að ná þessum dularfulla glæpamanni.

Fórnarlömbin eru hingað til hvítir ískenskir auðmenn, sem virðast hafa bruðlað með almannafé.  Þannig þarf venjulegur almenningur ekkert að óttast þennan skæða raðskvettara.


mbl.is Sást skvetta málningu á húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er venjulegt fólk ?

Ég efast um að umsvif og umgjörð öll í kringum Karl Wernersson  bendi til þess að hann hafi viljað láta flokka sig sem venjulegan.  Þvert á móti.  Tekjur, bifreiðar, fasteignir og lífstíll var langt langt frá venjulegu fólki.

Karl Wernersson skar sig meðvitað frá fjöldanum en vill nú helst af öllu vera talinn venjulegur maður.  Hvað venjulegt fólk er svo nákvæmlega er annað mál...

 


mbl.is Knésetja menn eigin fyrirtæki af ásetningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag

 

Í dag höfum við hærri byggingar og breiðari vegi, en bráðara skap og

þrengri sjónarmið.

Við höfum stærri hús, en minni fjölskyldur.

Við eyðum meiru, en njótum minna.

Við höfum meiri þekkingu, en minni dómgreind.

Við höfum meira af lyfjum, en lakari heilsu.

Við höfum margfaldað eignir okkar, en rýrt gildi okkar.

Við tölum mikið, við elskum lítið og við hötum of mikið.

Við komumst til tunglsins og til baka aftur, en það vefst fyrir okkur að

fara yfir götu eða hitta nágranna okkar.

Við höfum geiminn á valdi okkar, en ekki vald á eigin sálum.

Við höfum hærri tekjur, en lægra siðgæði.

Þetta eru tímar meira frelsis, en minni gleði.

Við höfum miklu meiri mat, en minni næringu.

Þetta eru tímar fínni húsa, en fleiri brostinna heimila.

þegar tveir afla heimilisteknanna, en skilnuðum fjölgar.


Birna Björt tvítug

Birna og BjarniÍ gær þann 28.júlí varð Birna Björt tvítug.  Af því tilefni var fjölskyldum og vinum boðið í veislu.  Litla húsið á Víðivöllum 14 fylltist tvívegis í gær.

Það er skrýtið að hugsa til þess að nú er liðin 20 ár síðan fyrsta barn okkar Guggu kom í heiminn.

Hér er svo mynd frá því í gær af Birnu og Bjarna (kærastanum hennar).


Gott mál

Þá eru hjólin fyrir alvöru farin að snúast.  Þjóðernisvelgjan sem streymir fram á furðu mörgum vígstöðvum núna fer vonandi núna að dvína.
mbl.is ESB-umsókninni vísað áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir frá Látrabjargi komnar inn

Þá eru myndirnar frá gönguferð minni um Látrabjarg og nágrenni komnar inn.  Finnið þær hér til hliðar undir hlekknum myndaalbúm.  Mér gekk hinsvegar ekki vel að raða þeim þar upp í tímaröð svo það er einnig hægt að skoða þær á Flikr síðunni minni: Slóðin þar er :

Ferðamenn flykkjast í Dalina

Svo er að sjá sem aldrei hafi verið meiri ferðamannastraumur í Dalina en í sumar.  Öll tjaldstæði eru meira eða minna full og stöðugur straumur ferðamanna út um allt.  Íssalan (beint frá búi)  hjá Togga og Helgu á Erpsstöðum hefur farið langt fram úr vonum og hér má lesa frétt frá Dóru á Skriðulandi. http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item288979/


Á maður að skilja þetta ?

Skilanefnd gamla Kaupþings eignast nýja Kaupþing.  Fór þá gamla Kaupþing ekki á hausinn ?  Hver er munurinn á gamla Kaupþingi og skilanefnd Kaupþings ?
mbl.is Skilanefndir eignast tvo banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búinn !

Komið ný skolplögn og líka ný vatnslögn.  Mölin á planið var hinsvegar ekki til svo eitthvað þarf að bíð eftir að bílaplanið verði áferðafallegt á ný.  Þá er það bara lokahnikkurinn. Bara bílskúrinn eftir ómálaður.

Nýr fjölskyldumeðlimur kominn á heimilið.  Átta vikna gamal hvolpur frá Erpsstöðum.  Hann heitir náttúrulega Erpur.  Svaka krútt en líka svaka erfiður.  Mætti sofa meira mín vegna.


Viðhaldið

Þessa daganna er verið að mála húsið að utan.  Tekur tíma sinn, en ekki svo leiðinlegt í góðu veðri.  Þessu fylgja sprunguviðgerðir á bílskúrnum.

Svo á þriðjudaginn kemur verður hafist handa við að skipta út skolplögn...(bja)Sick

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband