Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju Flateyringar !

Í mínum huga er mikilvægt að störf hjá ríkinu, sem jafnhagkvæmt er að vinna á landsbyggðinni,  dreifist um allt landið en séu ekki öll á höfuðborgarsvæðinu eða í stærstu þéttbýlisstöðum landshlutanna.  

Eins og þetta tilvik sannar þá skiptir íbúafjöldi  staðanna  ekki öllu máli þegar tekið er við opinberum verkefnum frá Reykjavík, heldur skiptir umfang og eðli verkefnanna máli þegar og staðsetning er síðan valin .  Þannig er ljóst að mjög margir staðir á landinu koma til greina með ýmissleg verkefni.

Flateyringar koma örugglega til með að sinna þessu verkefni vel.  Til hamingju Flateyringar !


mbl.is Innheimtustofnun hefur starfsemi á Flateyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sarah Palin...

Sarah Palin, varaforsetaefni Rebúblikana í Bandaríkjunum, hefur m.a eftirfarandi skoðanir:  Hún vill láta kenna sköpunarsöguna í grunnskólum sem vísindi til jafns við þróunarkenninguna.  Hún vill banna fóstureyðingar alfarið.  Þá  líka við  eftir nauðgun og sifjaspell.  Hún er á móti hjónabandi og sambúð  samkynhneigðra og því að þeir fái að ættleiða börn.  Hún vill láta bora eftir olíu í þjóðgörðum Alaska.  Hún er ævifélagi í samtökum byssueigenda og því á móti allri takmörkun á byssueign. Hún er fylgjandi dauðarefsingum. 

Nei...hún er ekki 150 ára gömul eins og halda mætti af upptalningunni...hún er 44 ára !


« Fyrri síða

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Sept. 2008
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband