Sunnudagur, 30. ágúst 2009
Ljósmyndasamkeppni
Morgunblaðið hefur í sumar staðið fyrir skemmtilegri ljósmyndasamkeppni. Sökum þess hversu frjálslegar reglurnar eru þá senda fjölmargir inn skemmtilegar og fjölbreytilegar myndir. Á hverjum degi er síðan valin mynd dagsins og oft á tíðum eru valdar afar skemmtilegar augnabliksmyndir þar sem ekki hefur þurft neitt til nema venjulega manneskju með venjulega myndavél. Í lok sumarsins eru valdar bestu myndirnar og veit vegleg verðlaun.
Ég fer oft inn á vefinn og skoða þar myndir, t.d rakst ég á þessa stórgóðu mynd af Jökulárslóni í óvenjulegum búningi. http://www.mbl.is/mm/folk/ljosmyndasamkeppni/vikan.html?week=35
Föstudagur, 28. ágúst 2009
Styttist í nýtt heimili
Nú erum ég, Gugga og Rikki búinn að vera á ferðinni vestur í Dali og svo á Selfoss um helgar í nokkrar vikur. En nú hyllir undir að við getum farið að flytja búslóðina vestur í Búðardal. Við búumst við að í næstu viku eða um næstu helgi verðum við flutt.
Eldri börnin verða því líka eflaust fegin, því eins og er þá er allt í kössum og drasli viku eftir viku hér á Viðvöllunum á Selfossi.
Föstudagur, 21. ágúst 2009
Döpur áhersla
Það er gleðiefni að fá góðar og jákvæðar fréttir reglulega. Slíkar fréttir hafa þó ekki fengið náð fyrir augum ritstjóra og fréttastjóra undanfarna mánuði, heldur hafa næstum allir fréttatímar og fréttasíður verið undirlagðar af leiðindarfréttum af fjármálum. Þessi ágæta verksmiðja, sem hér er fjallað um, rís í kreppunni; er ljós í myrkri og ætti að hafa verið til umfjöllunar miklu meira. Og kannski eru bara fleiri verksmiðjur í smíðum...hver veit ? Allavega eru fréttamiðlarnir alls ekki að uppfræða okkur á slíku.
Almenningi er haldið í neikvæðum hugleiðingum og svartsýnishjali. Þetta er döpur áhersla.
![]() |
Aflþynnuverksmiðja gangsett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 14. ágúst 2009
Lítið bloggað
Vegna flensu komumst við hjón seinna en áætlað var vestur í Dali. Við gátum ekki hafið vinnu fyrr en 10 ágúst í nýja skólanum. Gugga startaði leikskólanum með afar hjálpsömu starfsfólki og ég fór með Kela að skipuleggja grunnskólann.
Erpur hinn nýji og Rikki voru í góðu yfirlæti á Brunná hjá afa og ömmu ásamt fleirum.
En reyndar var svo mikið að gera að ég fann ekki tíma til að blogga fyrr en nú, þegar ég er kominn aftur á Selfoss í helgarfrí.
Laugardagur, 8. ágúst 2009
Nýjasti heimilismeðlimurinn
Um miðjan júlí var farið að Erpsstöðum í Dölum og sóttur þangað hvolpur. Hvolpurinn fékk nafnið Erpur og hefur síðastliðnar vikur haldið til á Víðivöllunum. Þar hefur hann fengið margar mömmur. Ein þeirra er Káta, sem í fyrst var lítt hrifinn að Erpi, en það breyttist og í dag er hún lang duglegust að leika við hann.
Erpur er alltaf í góðu skapi og alltaf á fullu að leika sér...nema þegar hann sefur. Hér fylgja m
yndir af þessum nýja heimilismeðlim.
Föstudagur, 7. ágúst 2009
Þá fer nú verkið vonandi að hefjast
![]() |
Vegur um Djúpafjörð þarf ekki í umhverfismat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 6. ágúst 2009
Raðskvettari gengur laus
Nú er ljóst að raðskvettari gengur laus í höfuðborginni. Hann mun endurtekið hafa skvett rauðri málningu á hús auðmanna. Við síðustu skvettu brást honum bogalistin og til hans sást þannig að hugsanlega fer lögreglan nú að ná þessum dularfulla glæpamanni.
Fórnarlömbin eru hingað til hvítir ískenskir auðmenn, sem virðast hafa bruðlað með almannafé. Þannig þarf venjulegur almenningur ekkert að óttast þennan skæða raðskvettara.
![]() |
Sást skvetta málningu á húsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Hvað er venjulegt fólk ?
Ég efast um að umsvif og umgjörð öll í kringum Karl Wernersson bendi til þess að hann hafi viljað láta flokka sig sem venjulegan. Þvert á móti. Tekjur, bifreiðar, fasteignir og lífstíll var langt langt frá venjulegu fólki.
Karl Wernersson skar sig meðvitað frá fjöldanum en vill nú helst af öllu vera talinn venjulegur maður. Hvað venjulegt fólk er svo nákvæmlega er annað mál...
![]() |
Knésetja menn eigin fyrirtæki af ásetningi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 2. ágúst 2009
Í dag
Í dag höfum við hærri byggingar og breiðari vegi, en bráðara skap og
þrengri sjónarmið.
Við höfum stærri hús, en minni fjölskyldur.
Við eyðum meiru, en njótum minna.
Við höfum meiri þekkingu, en minni dómgreind.
Við höfum meira af lyfjum, en lakari heilsu.
Við höfum margfaldað eignir okkar, en rýrt gildi okkar.
Við tölum mikið, við elskum lítið og við hötum of mikið.
Við komumst til tunglsins og til baka aftur, en það vefst fyrir okkur að
fara yfir götu eða hitta nágranna okkar.
Við höfum geiminn á valdi okkar, en ekki vald á eigin sálum.
Við höfum hærri tekjur, en lægra siðgæði.
Þetta eru tímar meira frelsis, en minni gleði.
Við höfum miklu meiri mat, en minni næringu.
Þetta eru tímar fínni húsa, en fleiri brostinna heimila.
þegar tveir afla heimilisteknanna, en skilnuðum fjölgar.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar