Mánudagur, 29. júní 2009
Vá
Kominn heim úr 4 daga ferð um Látrabjarg og Rauðasand. Tók 300 myndir. 20 stiga hiti og sól allan tímann. Myndir koma seinna.
Vá
Mánudagur, 22. júní 2009
Skemmtileg ferð
Ferðalagið norður í Skagafjörð var mjög skemmtilegt. Við fengum 2 gráðu hita fyrstu nóttina og 1 stigs frost þá næstu. Það var hálfkalt í tjaldvagninum þessar nætur. Siðan fengum við bara hið besta veður. Og tjaldvagninn reyndist mjög vel.
Við vorum á ráðstefnunni um langömmu Elinborgu á föstudaginn og gekk hún afar vel. Flott framtak þessi ráðstefna. Það mætti um 90 manns.
Á laugardegi vorum við á Sigló og þar var alveg himneskt veður. Margt hefur breyst þar síðan við vorum þar fyrir um það bil 5 árum síðan. Komin göng, varnargarðar og búið að fylla upp í tjörnina fyrir framan gamla húsið okkar á Eyrarflötinni....samt sami fallegi bæjarbragurinn.
Á sunnudag vorum við á Akureyri í 20 stiga hita. Héldum okkur úti allan daginn fyrst í sundi og svo í Kjarnaskógi.
Í dag fórum við svo hringinn í kringum Vatnsnesið. Skoðuðum Borgarvirki, Hvítserk, seli og æðarvarp.
Myndir koma tæplega strax en ég tók helling...því ég er að leggja strax af stað í aðra ferð á morgun. Þarf að vera kominn á Rauðasand á miðvikudagskvöld, en þar hefst nokkra daga gönguferð um Látrabjarg, sem ég fer með pabba og mömmu í.
Nóg að gera....
Fimmtudagur, 18. júní 2009
Skreppum norður
Í dag förum við Gugga og Rikki norður í Skagafjörð og á Siglufjörð og komum aftur á Sunnudaginn eða mánudaginn. Fer svona eftir veðri.
Á morgun er ráðstefna um Elinborgu Lárusdóttur rithöfund í Varmahlíð í Skagafirði. En Elínborg var langamma min svo það er tilhlýðilegt að fara á ráðstefnuna.
Notum svo laugardaginn til að skreppa á Sigló, en það er orðið býsna langt síðan við vorum þar síðast.
Miðvikudagur, 17. júní 2009
Gatan mín
Víðivellirnir á Selfossi er gömul og gróin gata og það sem einkennir götumyndina öðru fremur er mikið af fallegum reynitrjám í görðum. Þessi tré eru afar sérstök með það að þau blómstra fallega og bera síðan fallega rauða berjaklasa. Þegar trén eru í blóma leggur sætan angan um götuna og þegar blómin falla eru gangstéttirnar þakktar hvítum blómum. Þannig er tréð allt sumarið meira eða minna öllum til yndisauka.
Ein mynd með sem ég náði af blómum reynitrés í mínum garði.
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Svona eiga menn að vera
Frábært framtak hjá Grétari og ljóst að fer ekki inn markaðinn þar sem hann er stærstur. Grétar er Siglfirðingur í húð og hár og hann lætur æskustöðvarnar ganga fyrir hugsanlegri hagnaðarvon.
Svona eiga menn að vera.
![]() |
Nokkuð sem mig hefur lengi langað til að gera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 12. júní 2009
Ljósmyndakeppni
Mánudagur, 8. júní 2009
Galtarholt

Laugardagur, 6. júní 2009
Stulli búinn með grunnskólann
Fimmtudagur, 4. júní 2009
Dugar þetta ?
Er þetta ekki grunnsamlega lítill munur ? Þurfum við ekki miklu meiri jákvæðan vöruskiptajöfnuð ef við ætlum að greiða upp erlendar skuldir ? Hefði haldið að þessi tala ætti að vera svona þrisvar sinnum hærri.
Hversu mikill ætli lekinn á gjaldeyrishöftunum sé í rauninni ? Varla er gott að stjórna landinu ef enginn veit hvert útfluttningsverðmætið er í rauninni.
![]() |
Afgangur af vöruskiptum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 1. júní 2009
Nokkrar vormyndir komnar inn
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar